Dagblað - 03.02.1925, Page 1
Priðjudag
3. febrúar
1925.
I. árgangur.
2. “
tölublað.
HbagBtaé
Ýmsir þeirra, er alið hafa
aldur sinn að mestu eða öllu
ieyti hér í höfuðborg íslands,
eru nú komnir á efri ár, og
aðrir eru enn á bekta skejði.
Hvorirtveggja muna hér æfina
aðra. Breytingarnar hafa verið
aerið stórstígar undanfarið. Borg-
in hefir vaxið ört, fært út kví-
arnar og hefir haft fataskifti
svo, að útlit hennar er nú
alt annað en áður var. Bærinn
litli er orðinn borg, með borg-
arstjóra og nál. 20 þús. ibúum.
Rúmur fimtungur allra lands-
manna eiga hér heimili, og stunda
flestir þeirra atvinnu hér alt árið.
I stað opnu bátanna færa nú
íjimknúð fiskiskip aflann að
iandi.
Umhverfis bæihn voru áður
mógrafir, mýrar og óræktarmó-
ar, nú vélræktuð svæði, grösug
tún og mörg nýbýli.
Torfbæir voru hér víða, og
húsakynni fátækleg og léleg; nú
eru hér rúmgóð og vönduð
steinhús, og stórhýsi á einstaka
stað.
Götur voru hér fáar og for-
ugar; nú eru víða stór stein-
iögð stræti.
Strætin hafa verið holgrafin
mörgum sinnum, og þar komið
fyrir leiðslum fyrir vatnsskólp,
gas og rafmagn. Nú er stutt í
vatnið, og oftast bjartara inni
>og úti en áður fyr.
Margvíslegar breytingar aðrar
hafa átt sér stað, og aukin
menning á marga lund, og er
bygging hafnarinnar langnauð-
synlegasta framfarasporið, sem
stigið hefir verið hér í borginni.
Tekjurnar hafa aukist, en út-
gjöldin hafa einnig aukist að
stórum mun, og álagabyrðin er
mörgnm borgaranum ísjárvert
áhyggjuefni. Sumum þykir sem
sljórn borgarinnar hafi færst
heldur mikið í fang og að safn-
að hafi verið skuldum að óþörfu
að undanförnu.
Skal þetta nánar athugað hér
í blaðinu bráðlega.
ÐýrtíOin.
Nýustu Hagtíðindi birta
skýrslu um smásöluverð á ýms-
um nauðsynjavörum hér í Rvík,
eins og það var í janúarmánuði
að meðaltali, eftir skýrslum
kaupmanna. Sézt á yfirliti þessu,
að þær vörur, sem yfirlilið grein-
ir, eru 15 °/o hærri í verði held-
ur en á sama tíma í fyrra, en
208 °/o hærri í verði heldur en
fyrir 10 árum. Og þó hefir orð-
ið 3 °/o lækkun síðan í október
í haust.
Við þennan útreikning er það
að athuga, að tekið hefir verið
meðaltal af verðhækkun var-
anna án þess að gerður sé nokk-
ur greinarmunur á þeim eítir
því hvort þær eru notaðar mikið
eða lítið. En svo hefir Hagstof-
an gert áætlun um framfærslu-
kostnað 5 manna fjölskyldu hér
í bæ og samkvæmt henni þarf
sá maður, er hafði 1800 króna
tekjur árið 1913 að fá nú um
6000 krónur lil þess að standa
ekki ver að vígi en þá, í bar-
áttunni fyrir tilverunni. Matvöru-
útgjöld hafa hækkað um 203
°/o, en útgjöld til Jjósmetis og
eldsneytis um 174 °/o. Síðastlið-
liðinn ársfjórðung hefir þó orðið
2/8 °/o lækkun á matvörum að
meðaltali, og 6 °/o af ljósmeti.
Er lækkun sú eÍDgöngu á korn-
vörum, garðávöxtum, sykri og
fiski, en aftur á móli hafa allar
aðrar vörur hækkað í verði,
sérstaklega brauð (10°/o).
Útfluttar vörur
árið sem leið.
Samkvæmt skýrslum þeim, er
gengisskráningarnefnd fær um
útflutning íslenzkra afurða, jafn-
skjótt og þær fara á skip, hefir
verðmagn þeirra numið rúmum
80 miljónum króna árið sem
leið, þar af eru 50 miljónir fyrir
fisk og tæpar 6 miljónir fyrir síld.
Til samanburðar má geta
þess, að árið 1921 nam verð-
magn útfluttra afurða 46 milj.,
eða nær helmingi minna en árið
sem leið. Stafar þessi mikli
munur aðallega af því, að sjáv-
arafurðir hafa orðið meiri í ár
en endranær; en þó munar það
mestu, hve verðið, sem fengist
hefir fyrir þær, hefir orðið miklu
hærra en venjulega.
Að öllu samtöldu mun fram-
leiðsla á verkuðum fiski síðasta
ár hafa orðið 40°/o meiri en
árið þar á undan.
^inu er siður í
landi liverju.
Um líkt leyti og það var á-
kveðið hér í bæjarstjórn að láta
smiða landgöngustiga til þess að
ljá þá skipum, sem liggja hér
við hafnarbakkana, var skip-
stjóri nokkur dæmdur í Hull til
þess að greiða 25 Sterlingspunda
sekt fyrir það, að skip hans átti.
ekki sæmilega landgöngubrú.
Ný flugvél.
í Englandi hefir verið í smíð-
um flugvél af alveg nýrri gerð
og á hún að vera í förum milli
Lundúna og meginlands Evrópu.
Flugvél þessi er í fisklíki, væng-
irnir í laginu eins og uggar, en
stýrið eins og sporður. Henni er
ætlað að flytja átta farþega í
senn og fljúga 115 enskar milur
á klukkustund.