Dagblað - 17.02.1925, Síða 2
2
DAGB LAÐ
af höndum lyfseðil á áfengi, og
það geti ekki talist til lækninga,
eða brýtur aðrar reglur laganna,
sæti hann 200—5000 kr. sekt
fyrsta sinn, helmingi meira næst,
og missi leyh til að gefa út
áfengisseðla í þriðja sinn. Nú
flytur skip hingað ólöglega á-
fengi, svo að telja megi veru-
legan hluta af farmi þess, og
skal það þá gert upptækt með
dómi til handa ríkissjóði. Skip
skal ávalt vera að veði til trygg-
ingar greiðslu á sektum eða
málskostnaði. Þá er skip fallið
undir lögin, er það er komið
inn fyrir landhelgi, en landhelgi
telzt í þessum lögum ná -4 sjó-
milur út fyrir yztu annes og
sker, og lokar fjörðum, sem pkki
eru breiðari en 12 sjómílur.
Erindi
send Alþing-i.
27 búendur i . Borgarhafnar-
hreppi skora á Alþingi að veita
í ár 300 kr. til að kaupa ferju
á Hornafjörð og 50 kr. á ári til
viðhalds ferjunni.
187 ibúar Dalasýslu lýsa ó-
ánægju sinni út af nokkrum
ósanngjörnum og ófrægjandi
blaðagreinum, er út hafa komið
til andmæla Staðarfelli sem
skólasetri og skora á Alþingi
að vinna að því, að skólinn
verði reistur sem fyrst.
Jón Bjarnason húsmaður á
ísafirði og Guðsteinn Einarsson
formaður í Bolungarvík, sækja
um 20 þús. kr. styrk til þess
að leita að fiskimiðum við Græn-
land og athuga þar skilyrði fyrir
hverskonar veiðiskap.
Hreppsnefnd Ólafsfjarðar-
hrepps fer þess á leit, að Ólafs-
fjörður verði gerður að sérstöku
læknishéraði, eða að hreppnum
verði árlega veitt fjárhæð til
læknishalds, er nemi hálfum
læknislaunum með dýrtíðarupp-
bót.
Eiríkur prestur Stefánsson að
Torfastöðum fer þess á leit, að
rikissjóður kaupi af sér til handa
prestsetrinu íveruhús* ásamt 5
útihúsum.
Nefnd til undirbúnings stofn-
unar héraðsskóla i Árnessýslu
sækir um styrk til skólastofn-
unarinnar, er nemi a. m. k. */s
stofnkostnaðr og til árlegs rekst-
rar a. m. k. sem svarar launum
skólastjóra.
Borgin.
Stefán skáld frá Hvítadal hefir
dvalið hér í borginni um mánaðar-
tfma. Hann fer nú'einhvern daginn
til Vífilsstaða, og dvelur par um
hrið sér til beilsubótar.
lá við slysi. Á sunnudaginn datt
drengur í Tjörnina þar sem vök er
eftir ístöku. Er Tjörnin þar djúp og
hefði drengurinn eflaust druknað ef
fullorðinn maður hefði ekki verið
þar nærstaddur, stokkið út í vökina
og náð í hann.
Tíðarfar. í gær var kyrt veður
um alt land og lítið frost víöast.
Pó voru 7 stig í Seyðisfirði, 14 á
Grímsstöðum og 12 á. Raufarhöfn.
Bjartviðri alls staðar og loftvog
stöðug. Búist við austlægri átt sunn-
an og vestanlands og hægviðri á
austurlandi. Ekkert samband var
enn við ísafjörð.
Villemoes kom hingað í fyrradag
með koiafarm til Eimskipafélagsins.
Fylla lá í Viðey í gær og tók kol.
Látin er á Stokkseyri Gyðriður
Hjaltadóttir, móðir Hjálmtýs Sig-
urðssonar kaupmanns.
Utflutningrnr íslenzkra afurða hef-
ir numið 6,252,800 krónum í janúar-
mánuði, samkvæmt skýrslu Gengis-
nefndar. I*ar af eru kr. 3,731,986 fyr-
ir verkaðan fisk, kr. 1,172,134 fyr-
ir óverkaðan fisk og rúmlega 1
milj. kr. fyrir isfisk, eða samtals
nær 6 miljónir fyrir fisk.
Um 9000 rjúpur voru iluttar út í
janúarmánuði.
Sudurland fer ekki til Borgarness
i dag eins og til stóð, heidur þ. 19.
þ. m. Bíður eftir fulltrúum Búnað-
arþingsins.
Gulifoss fer frá Kaupmannahöfn
i kvöld.
Útilegubátarnir. Pessir bátar komu
hingað um helgina: Hermóður (eign
Sigurðar Hallbjörnssonar, ísafirði)
með 44þús. ® fiskjar, ísleifur (eigandi
Magnús Thorberg Ísafiröi) með 36
þús., Nanna (eig. Hf. Hrogn A
Lýsi o. fl.) með 32 þús. Percy
(eign Jóh. Eyfirðings & Co.) með
um 40 þús. og Gissur hvíti með um
52 þús.
tí!%: ÍDagSlað.
, f Arni Óla.
Ritstjórn: j G. Kr. Guðmundsson.
Afg ogðsla i Lækjartorg 2.
skrifstofa j Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd„
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Fiskifélngið. Aðalfundi þess var
lokið i gær. Fulltrúar á Fiskiþing
voru kosnir: Bjarni Sæmundsson
fiskifræðingur, Magnús Sigurðsson
bankastjóri, Jón Óiafsson og Geir
Sigurðsson skipstjórar. Til vara A.
V. Tulinius, Sigurjón A. Ólafsson,
Óskar Halldórsson og Matthias
Ólafsson.
Kvikmyudahúsin. Nýja Bio sýnir
nú mynd sem mikið er af látið,
enda leika í henni beztu Ieikendnr
Bandaríkjanna, Norma Talmadge
og Convay Tearle.
Gamla Bio sýnir líka góða mynd.
Leikur Gloria Swanson aðalhlut-
verkið.
Botnia kom hingað í gær. Meðai
farþega var Knud Zimsen borgarstj.
Sagt er að botnvörpungarnir, sem
voru að veiðum vestra um fyrri
helgi, hafi fengið aðvörunarskeyti
frá loftskeytastöðinni á Jan Mayen
um það að fárviðri væri í nánd.
Væri betur að þeir hefði tekið þá
aðvörun til greina og að þeir minn-
ist þessa framvegis, er þeir fá slík
skeyti.
Aðkomnmenn. Guðbrandur Magn-
ússon kaupfélagsstjóri i Hallgeirsey,
Porsteinn kaupféiagssljóri Jónssoa
i Reyðarfirði, Jón bóndi Jónsson í
Stóradal. Sitja þeir á fundum, sem
stjórn S. í. S. heldur um þessar
mundir.
Samsæti héldu Búnaðarþingmenn
og aðrir starfsmenn Búnaðarfél.
Halidóri Vilhjálmssyni skólastjóra
á laugardagskvöld í minningu fimt-
ugsafmælis hans. Sama dag var
honum afhent gjöf frá samverka-
mönnum og nemendum, hylla, er
Ríkarður Jónsson hinn oddhagi
hefir smíðað, og er það hinn mesti
kjörgripur.
Búnaðarþingina verður sennilega
slitið i dag.
Sjárarföil. Ardegisflæður kl. 11,5&
og kl. 12,20 í nótt.