Dagblað - 22.02.1925, Qupperneq 2
2
DAGB LAÐ
vestari farveginn og gegn um
flóðgáttina. Nú var tekið til að
grafa fyrir undirstöðu stíflunnar
og reyndist það enn meira verk
heldur en í vestari kvíslinni, því
að hér var aurleðjan 130 feta
djúp. Samt hafa verkfræðing-
arnir sigrað alla örðugleika og
er búist við þvi að verkinu verði
lokið í júlímánuði í sumar.
Vinna þar margar þúsundir
manna og er unnið nótt sem
nýtan dag. Segja menn að það
væri bara barnaleikur að reisa
pýramida hjá þessu.
En þetta er ekki alt verkið.
Áveituskurði þarf um E1 Gazira
þvert og endilangt. Aðalskurður-
inn er 66 milna langur og 9—
30 metrar á breidd.
— Vegna þessa er það skilj-
anlegt, að Englendingar þykjast
eiga allmikilla hagsmuna að
gæta í Sudan, enda notuðu þeir,
eins og kunnugt er, hið fyrsta
tækifæri er gafst til þess að losa
Sudan undan yfirráðum Egypta-
lands, og gerðu það að brezkri
nýlendu.
Búast má og við þvi, að bóm-
ullarverð lækki að mun, þá er
þetta mikla fyrirtæki fer að bera
ávöxt, ef það reynist þá eins
happadrjúgt og menn gera sér
vonir um.
„Aug-u lierskipa“.
Þrátt fyrir alt allsherjarfriðar-
hjal, keppast þjóðirnar um það,
engu síður nú en áður, að íinna
upp eitthvað nýtt, er að gagni
mætti verða í hernaði. Meðal
þess má telja aukna samvinnu
milli flugvéla og herskipa. Hið
nýjasta á því sviði er það, að
tekist hefir að taka myndir úr
lofti, framkalla þær í flugvélinni
sjálfri og láta þær falla ofan á
þilfar herskips fáum mínútum
síðar. Fyrir skemstu tók ame-
riksk flugvél mynd af herskipa-
læginu hjá San Pedro og skil-
aði myndinni fáum minútum
síðar um borð í orustuskipið
California, og á sömu stundu
vissi flotaforinginn upp á hár,
hvar og hvernig hvert einasta
skip lá. Er það auðsætt, hverja
þýðingu þetta getur haft í hern-
aði. Flugvélar geta tekið mynd-
ir aí flota óvinanna, áður en
skipin sjást, og af þeim mynd-
um má ráða, hvernig hvert skip
er vopnað. Má glögt greina það
á myndum, þótt þær sé teknar
úr 20 þús. feta hæð. Enn frem-
ur sézt þá, hvernig hverju skipi
er lagt fram. Getur þá ílotafor-
ingi, áður en til orustu kemur,
haft fyrir framan sig »kort« af
flota óvinanna og vitað upp á
hár hvernig bezt muni að hefja
orustu, eða hvort orustu skuli
heQa vegna liðsmunar.
Borgin.
SjáTarfölI. Síödegisháflæöur kl.
3,45. Háflæöur í nótt kl. 4,10.
Messnr á ínorg’nn. Dómkirkjan:
kl. 11, sérn Bjarni Jónsson.
Landakotskirkja: Hámessa kl. 9
f. h. og kl. 6 e. h. guðsþjónusta meö
prédikun. Kaþólska kapellan á Jó-
fríðarstöðum í Hafnarfirði: Messa
kl. 10 f. h. og kl. 5 e. h. guðsþjón-
usta með prédikun.
Fríkirkjan: kl. 5, séra Haraldur
Níelsson og kl. 2, Árni Sigurðsson.
Sjómannastofan: kl. 6 guðsþjón-
usta.
K. F. U. M. Almenn samkomakl.
8V2. Stud. theol. Jakob Jónsson tnlar.
Allir velkomnir.
Til fróðleiks og skemtnnar í dag:
Kl. 2,30 Próf. Sig. Nordal:
Fyrirlestur um ritdóma.
KI. 3—4*/2 Hljómleikar áSkjaldbreið.
Kl. 5 Barnasýning í Nýja Bio:
»Þegar stórborgin sefur«.
Kl. 7»/2 Nýja Bio: Sama mynd.
KI. 772 Gamla Bío:
»Meðal skálka og skelma«.
Kl. 8 Leikhúsið:
Þjófurinn leikinn í siðasta sinn.
Kl. 9 Sýningar i Nýja Bio og Gamla
Bio.
KTÍkmyndaliúsin. Nýja Bio sýnir
mynd er nefnist »Þegar stórborgin
sefur«. í henni leikur hinn ágæti
leikari Johnny Walker, sem lék í
myndinni »Móðirin«. — Gamla Bio
sýnir mynd er nefnist »Á meðal
skálka og skelma«.
Hanstrlgningnr verða sýndar enn
á morgun. Er það í 16. sinn.
Bollndagur, eða öðru nafni leng-
ingardagur, er á morgun.
Sjúkrasamlag ReykjaTÍknr hefir
aðalfund i kvöld i G.-T.-húsinu.
Verða þar lagðir fram reikningar
5Ta HbagBlað. ,tSk
I Arni Óla.
ítstj rn. | G. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn tii viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Þegar stórhorgin sefur
eða
Þegar skyldan kallar.
Mjög fallegur sjóuleikur í
6 þáttum.
Aðalhlutverk leika:
Ralph Lewis og
Claire Mc. Dowell.
Samlagsins og kosnir 4 menn í
stjórn þess.
Tíðarfar. Frost hér í gærmorgun
3 stig, en viðast á landinu frost-
laust. í Kaupmannahöfn 2 stiga frost.
Spáð er austan og norðaustan átt,
með snjókomu á Norðuriandi og
Austurlandi.
Fomleifafnndnr. Rússneskur
prófessor, Koslov að nafni, hefir
um nokkur ár unnið að forn-
leifarannsóknum austur í Asiu,
þar sem nú er nefnt Gobi eyði-
mörk í Mongolíu. Þarna fann
hann rústir löngu týndrar höf-
uðborgar í ríki, sem liðið er
undir lok fyrir ævalöngu. Riki
þetta hét Tanguth, og höfuð-
borgin Harohoto. í rústum þess-
arar borgar fann Koslov bóka-
safn, þar sem voru 2500 bækur,
ritaðar á 7 tungumálum, og
súmar á máli, er engir fræði-
menn skilja nú.
Petta er í fæstum orðum
fréttin, eins og hún kemur frá
Rússlandi, en fræðimenn eru
alls eigi vantrúa á, að þetta
geti verið rétt. Pannig segir Sir
Frederick Kenyon, aðalbóka-
t vörður í British Museum, að
áður hafí fundist merkileg forn-
rit bæði i Turkestan og Tibet.
— Auk bókasafnsins fann Ko-
slov i rústum borgarinnar mörg
þúsund ára gamlar múmíur af
kinverskum höfðingjum.