Dagblað - 05.03.1925, Blaðsíða 2
2
IDAGBLAÐ
það, að skjóta sel í friðlýstum
selalátrum.þar sem sektarákvæði
þau, sem í gildi eru — eru orðiu
svo gömul, að menn hafa fund-
ið til þess, að þau væru orðin
öldungis óviðeigandi, þar sem
þau eru svo lítil fjárupphæð,
að þau enganveginn geta verið
því til fyrirstöðu, að óhlutvand-
ir menn sjái sér hag í því að
brjóta lögin«.
Björgunarafrek.
Þegar maður sér getið verð-
launa til manna, sem Ieggja lif
sitt í hættu til þess að hjálpa
öðrum, dettur manni í hug, að
ekki hafi sem vert væri verið
vakin athygli þeirra, er hlut eiga
að máli um útbýtingu verð-
launa, á enn einu björgunaraf-
reki og frábærri hreystiraun.
Gerðist sá atburður í fyrravetur
á hlaupársdaginn 29. febrúar
og fram á næsta dag 1. marz,
er vélbáturinn Garðar á Fá-
skrúðsfirði, sem var að koma
úr fiskiróðri, bjargaði áhöfninni
af öðrum vélbát þaðan, Geysi
— er einnig var í róðri — rétt
um leið og hann sökk í hafið,
yfirísaður í blindbyl. Hið mikla
hetjustarf, sem skipstjórinn á
Garðari, Sigurgeir Jónsson, leysti
þar af hendi, er dæmafátt, og
ennþá göfugra fyrir það, að
hann stofnaði sjálfum sér í ber-
sýnilegan líísháska, til þess að
geta gert það, sem gera þurfti,
sem skal skýrt nokkru nánar.
Síðla dags, um kl. 5, rétt þeg-
ar snjóhríðin var að skelía yfir,
rakst Garðar á Geysi á upp-
siglingunni; var vélin þá orðin
í ólagi. Útlit veðurs^ var orðið
mjög ískyggilegt, og afréð Sig-
urgeir, skipstj. á Garðari, þegar
að fara ekki langt frá Geysi,
fyr«n útséð væri um, að vélin
kæmist í lag," þótt hann hins-
vegar sæi, að hann stefndi sin-
um eigin bát með því í tvísýnu.
Leið svo fram eftir kvöldinu,
að aðeins lítið eitt varð komist
áfram, því vélin í Geysi lagað-
ist lítið, en snjóbylurinn og
froslið harðnaði stöðugt, og ís
hlóð yfir bátana í náttmyrkrinu,
og sérstaklega Geysir, sem var
miklu minni, hlaut að ofþyngj-
ast fyr eða síðar, og hélt Garð-
ar sig mjög í námunda. Svo,
um kl. 1 um nóttina, rann upp
hin örlagaþrungna stund. Skip-
stjórinn á Garðari sá, að sjór
flaut með borði á Geysi og
skapadægur hans var þegar
komið. Rendi hann þá sem
skjótast að hliðinni og lét skip-
verja í sömu andránni stíga yfir
í sinn bát. Mátti og eigi tæpara
standa, því þegar Garðar var
kominn rúma lengd sína áfram,
sást Geysir síga í djúpið og
hverfa. Voru þeir þá út af
Breiðdal. Og loks kl. 11 um
morguninn náði Garðar inn til
Stöðvarfjarðar í sama kólgu-
bylnum, með mjög þjakaða á-
höfn, og bátverja af Geysi, 4
alls. Létti þó veðrinu augnablik
svo, að bátur treysti sér til að
skjótast úr landi og ná mönn-
unum í land úr bátnum, er
honum hafði verið lagt fyrir
akkeri. Annars, ef Garðar hefði
ekki tafist svona við Geysi og
sett sig í hættu, hefði hann
komist inn til Fáskrúðsfjarðar
kvöldið áður.
(»Hænir«).
Borgin.
Sjávarföll. Árdegisháflæður: kl.
1,40. Síðdegisháflæður kl. 2,10.
Nætarlæknir er í nótt Ólafur
Jónsson, Vonarstræti 12. Sími 959.
Nætnrvörður í Laugavegs Apóteki.
Gösta Borlings sagrn, kvikmyndin
sem nú er sýnd í Nýja Bíó, fær al-
mennings lof og er aðsókn meiri
að henni en flestum eða öllum
myndum sem hér hafa sýndar verið.
Peulngar:
Bankar:
Sterl. pd.........'.... 27,30
Danskar kr........ 102,48
Norskar kr........ 87,36
Sænskar kr........ 154,69
Dollar kr.......... 5,75
Látln er á Patreksfirði frú Stein-
unn Jónsdóttir, systir Björns heit-
ins Jónssonar ráðherra.
Engku herskipin, er send voru til
að leita að F. M. Robertson frá
Hafnarfirði, komu til Seyðisfjarðar
V)ag6lað.
f Arni Óla.
Ritstjórn: j G. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðslal Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Iír. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Sösía %S$Qrlings
saga.
Sýning í kvöld
kl. 8V>.
í fyrradag. Hin leitarskipin eru hætt
leitinni og hafa hvergi orðið botn-
vörpunganna vör.
Candida verður leikin á morguu
í Iðnó.
Varalögreglan. Enn var pað mál
til umræðu í neðri deild í gær og
stóðu umræður um það í rúmar
prjár stundir og voru all-heitar með
köflum. Sögðu gamlir pingmenn að
þeir hefðu ekki heyrt öllu meiri
skammir í pingræðum en nú. En
svo var fundi slitið, að ekki var
málið útrætt og öðrum málum sem.
á dagskrá voru varð líka að fresta.
Fasteignaeigandafélag Reykjavíknr
hélt aðalfund sinn í gærkvöldi í
Bárubúð. Stjórnin skýrði frá störf-
um sínum á liðnu starfsári, sem í
aðaldráttunum voru pessi:
Hún hafði sent þinginu i fyrra
mótmæli gegn lóðagjaldafrv. bæjar-
stjórnar og átt tal við þingnefndir
og þingmenn. Enn fremur hafði
hún safnað upplýsingum úr reikn-
ingum bæjarsjóðs á árunum 1908—
1922 og sent Alþingi upplýsingar
þær, og einnig skýrslur frá ýmsum
húseigendum um það, hvernig lóða-
gjöldin mundu koma niður á eig-
endum lóða og húsa. Hafði stjórn
fél. skrifstofu um tíma til þess að
safna gögnum í þessu máli og öðr-
um áhugamálum félagsins. Fékk
stjórnin því framgengt með starf-
semi sinni, að lóðagjöld voru færð
niður i 6°/oo í stað 2°/o.
Á fundinum fór fram stjórnar-
kosning. Gekk úr stjórn G. Kr Guð-
mundsson, en í hans stað var kosinn
Grimúlfur N. Ólafsson tollvörður.