Dagblað

Issue

Dagblað - 22.03.1925, Page 3

Dagblað - 22.03.1925, Page 3
DAGBLAÐ 3 Elrindi seii d Alþiii^i. Alþýðusamband íslands send- ir umsögn um frv. um gerðar- dóm og málamiðlun í kaup- gjaldsþrætum og um frv. um sáttatilraunir í vinnudeilum. Áskorun Læknafélags Reykja- vikur um byggingu Landsspítala. Bréf Hjálpræðishersins um styrk til gesta- og sjómanna- heimilis í Vestmannaeyjum. Erindi U. M. F. í um hækk- un á styrk þess á þessu ári upp í 4000 kr. Árni prófastur Björnsson í Görðum á Álftanesi sækir fyrir hönd Elínar, dóttur sinnar, um 1000 kr. utanfararstyrk, til þess að hún fái fullkomnað sig í því, er lýtur að skólaiðnaði. IngibjörgGuðbrandsdóttirsæk- ir um að styrkur sá til leikfim- iskenslu, 600 kr., sem hún hefir notið síðustu 15 ár, verði aftur tekinn upp í fjárlög. Halldór Kiljan Laxness sækir um 3000 kr. styrk. Þorsteinn J. Sigurðsson sækir um 3000 kr. styrk til þess að fara utan og kynna sér alt er lýtur að tóbaksiðnaði. Stefán B. Jónsson sækir um 20000 kr. styrk, eða lægri upp- Nhæð, til útbreiðslu og eflingar lýðvarnarbreyfingar meðal lands- manna. Guðmundur Bergsson póst- fulltrúi sækir um utanfararstyrk til þess að hann geti kynt sér póststörf. Gunnar bóndi þórðarson í Grænumýrartungu sækir um 2500 kr. styrk til að byggja í- búðarhús á ábýlisjörð sinni. Runólfur bóndi Runólfsson í Norðlungu sækir um 2000 kr. styrk til að koma upp barna- skólahúsi í þverárhlíð. Bréf Fiskifélags íslands um bryggjugerð á Eyrarbakka. Áskorun fiskifélagsdeildar á ísafirði um afnám olíuverslunar ríkissjóðs. 14 rithöfundar óg listamenn skora á Alþingi að hækka styrk til skálda og listamanna upp í 24000 kr. Áskorun almenns fundar í Reykjavik 15. þ. m. um lands- spitalamálið, um að leitað verði samninga við stjórn landsspítala- sjóðsins um framlag úr sjóðn- um, alt að 75,000 kr. á ári, gegn 75—100 þús. kr. árlegu framlagi úr ríkissjóði til spitala- byggingar. Erindi sýslunefndar Norður- ísafjarðarsýslu um að Alþingi veiti til sundlaugar og sund- skálabyggingar í Reykjanesi 7» kostnaðar, alt að 2000 kr. Hveiti, Ha/ramjöl, Hrisgrjón, Rúgmjöl, Mais mjög ódýrt í pokum. HANNES JÓNSSON, Laugaveg 28. VagElaéiá enðnr ókeypis til mán- aðarmóta. Athugið þaðl Sonnr járnbrawtnkóngsins. — þér eruð nú ekki sá fyrsti, er segir það. En segið mér nú hreinskilnislega. Hvað kemur þetta alt því við, að ég vil vera kyr hér á skipinu? — Ef þér viljið vera kyr hér, þá verðið þér að greiða fyrir fram það, sem upp er sett. þér eruð ekki eins einfaldur og þér látist vera. — þarna hittuð þér naglann á höfuðið, mælti Kirk. En — meðal annara orða, má ég veðja við yður? — Um hvað? — Ég vil veðja við yður um það, að þér skiftið skoðun. Ég skal segja yður það, að ég er jafn einfaldur og ég læzt vera, og ég ska‘ sanna það. ofe nú skal ég veðja við yður hringnum minum á móti skyrtum yðar, að ég heiti Anthony, og komi ég ekki til yðar með ^°ga peninga fyrir fargjaldi til New York, meg- þér eiga hringinn, — Þetta er alt saman gott og blessað, en ég ^erð að láta yður vita það, að hinar einu upp- ysiQgar sem befi um yður, er reikningur yðar. , , Jæja þá; nú skal ég segja yður það, að a hrópa ég á hjálp framandi manna og skal ara með allar eigur yðar í land með mér! Rétt í þessu var skipinu lagt við bryggju og samtaliö var þvf á enda. Kirk ruddi sér braut í land og hugsaði með sér þá, að það væri ýmsir kostir við það að hafa engan farangur meðferðis. Iíom hann nú fyrst út á sólsteikta götu, þar sem úði og grúði af allskonar flutn- ingatækjum og sýndist honum ekki betur en að aliir ökumenn ætti í striði sin á milli. Hit- inn var óþolandi. Iíirk þerraði af sér svitann með klút gjaldkera og spurði sjálfan sig, hvort það gæti verið rétt, að nú væri desembermán- uður. Klunnalegir, tvíhjóla vagnar óku fram hjá honum. Sumum þeirra stýrðu svertingjar og sumum túrbanskrýddir Hindúar. Allir voru vagnarnir með klingjandi bjöllum, en hestarnir voru kaunum slegnir og mýbitnir fram úr hófi. Járnbraut var rétt fram undan, og þar kom lest rjúkandi og á henni málti lesa stafina P. R. R. þegar Kirk sá það hrópaði hann: — Húrra, ég er þá kominn til Jersey City! Ég fer strax með ferjunni frá Twentylhird Street og kemst til Hotel Astor eftir nokkrar mínútur! Hann ruddi sér braut gegn um þröngina á götunni og þangað sem simastöðin var. þar skrifaði hann skeyti, en þegar hann ætlaði að afhenda það, var honum sagt að aldrei væri sent skeyti, sem ekki væri borgað. Ætlist þér til að fá borgun fyrir fram? Já, herra minn.

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.