Dagblað - 27.03.1925, Side 3
D AGBLA-Ð
3
NYJA BIO
Brunaliðshetjan
(Det Tredie Signal).
Sjónleikur í 7 þáltum, leikinn af þeim
Ralph Lewis,
Johannie Walker,
Ella Hall og fleirum.
Um þessa mynd getur maður með góðri samvizku sagt,
að hún er ein með betri myndum, bæði hvað leik og efni
snertir, enda eru hér samankomnir einhverjir þeir beztu
leikkraftar, sem Ameríkumenn hafa yfir að ráða.
Komið og sjáið þessa mynd, og þið munuð sannfærast
um, að þelta er réít.
Sýning kl. 9.
Bretar welja þýzk
skip.
Fimm þýA skip, Kurmark,
Frankenfels, Rotenfels, Freien-
fels og Braunfels, er Bretar
gerðu upptæk í byrjun stríðsins
í Indtandi, hafa nú verið aug-
lýst til sölu. Á skipum þessum
hafa Bretar grætt rúml. 1.700.000
pd. sterl. síðan 1914 og þykir
sumum ensku blöðunum lítil
ástæða til þess að losa sig við
skipin nú, þar sem þau muni
annaðhvort lenda hjá Þjóðverj-
um aftur eða þá hjá Grikkjum.
Yaralögreglan.
»Nationaltidende« flytja grein
um frv. stjórnarinnar um vara-
GUÐM. SIGURÐSSOJÍ,
klæðskerl, Ingólfsstr. 6.
Ódýrasti klæöskeri borgar-
innar.
Mikið af úrvals fatefnnm
(pýzkum).
Saumalauu á fötum aðeins
50 krónur.
Fljót afgreiðsla. Komið i tima.
lögreglu, og segir þar meðal
annars:
— Fað er enginn efi á því,
að frv. þetta er komið fram
vegna þeirra áhrifa í íslenzka
alþýðuflokknupi, er komið hafa
frá Bolzhewikkum í Rússlandi.
Það er mjög vel skiljanlegt, að
stjórnin kæri sig ekki um það,
að aflur komi hið sama fyrir
og áður (Ólafsmálið) og hlýtur
því að verða litið þannig á, að
þetta frv hennar sé mjög nauð-
synlegt og komið fram af knýj-
andi ástæðum.
744 er sími DaiailÉi
Soinir járnlnniiliikóiigsiiis.
ur minn hér. Bið yður símsenda peninga fyrir
fargjaldi heim aftur.
Weeks, konsúll Bandaríkja.
— þetta er kærandi. Ég er viss um að hon-
um þykir vænt um það, að ég hefi tekið yður
upp á arma mína, vinur minnl
— Pér eruð ágætirl
— Minnist þér ekki á það. Mér þykir mikið
vænt um að komast í kynni við föður yðar,
sérstaklega vegna þess að okkur vantar fé hér.
— Hann lætur ekki alla hlaupa með sig i
gönur, mælti Kirk. Ég held, að ég sé sá eini
maður, sem hefi fengið hann til að opna budd-
una.
— Allir heppnismenn eru varkárir, mælti
Weeks. En ef hann bara vissi um öll þau tæki-
færi, er hér gefast til þess að græða fé, þá-----
Hann ballaði sér aftur á bak í stólnum, svo
að brakaði í, og mælti svo enn;
— Herra minn, vitið þér það, að kókoshnetu-
pálmi afkastar 3 centa virði á degi hverjum,
undir eins og hann er orðinn 5 ára, og menn
þurfa ekki að hafa annað ómak um hann en
Safna saman hnetunum?
— Nei, það veit ég ekki.
— Alveg rétt hjá yður. En ég skal segja yður,
að hvergi í heimi vaxa betri kókoshnetur en hér.
Og eftirspurnin eykst svo óðfluga, að eftir 10
ár verður bara hörgull á þeim. Hugsið þér um
þaðl Er það ekki stórmerkilegt og athugana-
vert, að dýrtíð skuli verða á kósoshnotum!
Konsúllinn þagnaði til þess að gefa orðum
sínum meiri áhrif!
— Fetta er voðalegt! mælti Kirk. Til hvers
eru kókoshnetur notaðar?
— Pær eru étnar auðvitað! Rað eru búnar
til úr þeim kökur og þær eru hafðar í konfekt.
Nú skal ég segja yður það, að land, þar sem
hægt er að rækta kókoshnetur, er til sölu og
kostar aðeins 75 cent ekran, og fræ getur
maður fengið fyrir 5 cent hvert. Verkamanna-
laun eru 35 cent á degi hverjum. Hér er eng-
inn kuldi, engir ormar, engin lús. Ekki þarf
annað en sitja i rólegheitum og þær detta
þá i fang manns.
— Lýsnar?
— Nei, nei, kókóshneturnar.
— Fað var bærilegt!
— En þetta er minst. Vitið þér það að upp
af jarðveginum hérna sprettur sykurreyr, sem
er eins gildur og lærið á mér. Og þegar sykur-
reyr er einu sinni, sáð þá má uppskera hann
óendanlega?
— Þetta hefi ég aldrei heyrt fyr.
— Þér gerið fengið keypt sykurreyrsland