Dagblað - 05.04.1925, Síða 1
Sunnudag
5 opríl
1925.
WaaBíaé
I. árgangur.
55
tölublað.
VEGURINN milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavikur er nú
vafalaust fjölfarnasti veg-
ur landsins. D^glega fara um
hann nú í vetur að jafnaði 36
bifreiðar fástar áætlunarferðir
með fólk, og má telja daglega
umferð 3—400 manns auk mik-
illar umferðar flutningabifreiða.
Kð er að vísu svo, að fullerfitt
er að halda núvérandi vegi
sæmilega færum, en ég vænti
þess, að takast megi með auknu
viðhaldi og stöðugu alt árið að
"koma veginum í það horf, að
hann megi teijast nothæfur enn
í nokkur ár. Umferð um hann
hefir aukist afskaplega með
hverju ári, og haldi slík aukning
áframj getur að vísu farið svo,
að ekki þyki rélt, eða nokkur
hagsýni í þvi, að fresta lengur
að gera þar nýjan og fullkomn-
ari veg. —
Þannig kemst vegamálastjóri
að orði i bréfi til fjárveitinga-
nefndar Nd. Alþingis. Er enginn
efi á því, að þessi veguí er lang-
fjölfarnastur allra vega, en á
hefir það löngum þótt skorta,
að honum væri haldið sæmilega
við. Með aukinni umferð ár frá
ári, hefði viðhald þurft að auk-
ast að sama skapi, en svo hefir
þó ekki verið og var viðhaldið
þö ekki á marga fiska áður.
Fyrir nokkrum árum var
kyrjað á því, að gera nýjan veg
mhli Hafnarfjarðar og Reykja-
vikur. Átti hann að vera breið-
an miklu en þessi vegur, og
lagður á alt öðrum stað, eða út
af veginum austur efst í Sog-
unum og liggja fyrir austan Bii-
staði og Digranes. En þessi
vegargerð komst ekki nema
skamt, því að bráðléga var
^erkinu hætt aftur og hefir veg-
arspotti þéssi, þótt alldýr sé,
e,8i komið að neinum notum
eritl* Að vísu má gera ráð fyrir
þy*. er nýr vegur verður gerður,
þ® verði haldið áfrám þessum
veSh en ekki tekið nýtt vegar-
stæði.
Eins og drepið er á í bréfi
vegamálastjóra er aðalumferðin
með bifreiðum. En viðhaldi
vegarins hefir ekki verið hagáð
sem skyldi fyrir þáu flutniuga-
tæki. Þegar holur hafa verið
komnar í veginn, hefir venjan
verið sú að setjá ofan í þær
smágrjót — eggjagrjót sem
böggur sundur hringana á hjól-
um bifreiðanna. Verður því af-
armikill viðhaldskostnaður þeirra
bifréiða, er um veginn fara. Að
visu er að jafnaði borin möl
yfir grjótið á eftir, en það er
ekki gert jafnharðan; eins og þó
þyffti að vera.
Végurinn er nú orðinn gam-
all og þolir því ver mikla um-
ferð heldur en nýir vegir. Þess
vegna þarf því að kosta miklu
til viðhalds hans, þangað til
nýr vegur er fenginn. Þetta er
vegamálastjóra ijóst og er það
gótt. En viðhaldinu verður þá
jáfnfiamt að haga svo, að veg-
úrinn váldi ekki skemdum á
dýrum flutningatækjum, eiris og
bifreiðar eru.
Ættarnöfiié
Fjárveitingariefnd Nd. kemur
fram með breytingartillögur um
það, að kenna alla, sem í fjár-
lögum eru néfndir; iið föður
sinn, enda þótt þeir hafi ættar-
nafn, og að ættarnafns sé aðeins
getið í svigum aftan við nafnið
til skýringar. I breytingaitillög-
um þessum stendur t. d. Vil-
helm Vilhelmsson (Bernhöft),
Sveinbjörn Þorsteinsson (Egils-
sonar), Jakob Jakobsson (Thor-
arénsfen), Sveinbjörri RórðárSon
(Sveinbjörnsson), Guðmundur
Guðmundsson (Bárðarson), Helgi
Pétursson (Péturss.), Bogi Jóns-
son (Th. Melsteð), Eggeit Ei-
riksson (Biiem), Einar Eihars-
son (Sæmundsen) o. s. frv.
Nái þessar brej'tingar fram
að ganga á fjárlögum, virðist
sjálfsagt að sama regia sé tekin
upp í Pingtíðindum, og að þar
sé ekki kallaður Sigurður Egg-
erz, heldur Sigurður Pétursson,
ekki Ingibjörg H. Bjarnason,
heldur Ingibjörg Hákonardóttir
o. s. frv.
Skaðabætur Þjóöverja
Skaðabótanefndin hefir nýlega
tilkynt, að skaðabótagreiðsla
Pjóðverja háfi verið £ 9,268,000
í febrúarmánuði, og af því hafi
komið £ 5 milj. frá þýzka járn-
brautarsambandinu.
Af þessu fengu Frakkar £
1,802,000, Bretland £ 1,087,000,
Belgía £ 315 þús., Ítalía £ 235
þús., Jugo-Slavia £ 150 þús.,
Japan £ 32 þús., Rúmériia £
24 þús., Portugal £ 19 þus. og
Grikkland £ 12 þús.
Bretar hafa nú móttekið frá
Pjóðverjum upp í skaðabóta-
kröfurnar £ 5,342,000.
Víðsjá.
Sjúkrasamlag Akureyrar.
Hagur samiagsihs stendur nú
með bezta móti. Varasjóðufiriri
er nú orðinn um 6,300 kr. Á
árinu hefir saml. greitt í sjúkra-
kostnað 3000 kt. Urri síðustu
áramót var tala hluttækra með-
lima 127. Félagið hefir blómgv-
ast á síðustu árum undir stjórn
þeirra Sigtryggs Porsteinssonar
og Jóhs. Jónssonar. Sámlagið
hefir fengið 500 kr. árlegan styrk
frá bænum síðustu 4 árin. Auk
þess hefir það fengið 2000 kr.
gjöf frá Ragnari Óiafssyni
konsúl. (Eftir »Degi«)