Dagblað - 12.04.1925, Blaðsíða 1
Páskadag
12. apríl
1925.
I. árgangur.
59.
tölublað.
TJpprisutrúin.
Páskahugsanir.
Upprisutrúin er dýrlegasta eign
bvers kristins manns, því að
naeð henni eignumst vér hina
Hfandi von, og í henni aftur Ijós
sem lýsir gegn um gröf og
dauða. En upprisutrúin á þá
líka að bera ávöxt í lífi voru,
svo að það beri þess vott, að
vér erum gengnir yfir frá dauð-
anum til lifsins. Með þeim hætti
birtist »kraftur upprisu Krists«
í lífi voru. En það er megin-
gallinn á kristindómslifi fjölda
kristinna manna, hve lítið verð-
ar upprisu Krists, Lif vort á að
vera upprisu-líf — vér eigum
að framganga sem þeir, er þeg-
ar hafa dauðann að baki sér.
t*að er svo mikið af dauða í
oss öllum, — dauða, sem vér
verðum að upprísa frá, ef sam-
band vort við hinn upprisna
drottin á að vera annað en
nafnið tómt. »Ef einhver er í
samfélagi við Krist, þá er hann
ný skepna, hið gamla á að
verða að engu og alt að verða
nýtt« — segir postulinn, og þetta
á að verða fyrir kraft upprisu
hans. En vegna misbresta, sem
einatt vilja verða á þessu, sætir
trú vor lasti af mörgum van-
trúuðum, sem, hvað sem öðru
líður, skilja þó ávalt það, að
trúin á að bera ávöxt í lífi voru
og þá einnig upprisutrúin.
Vantrúar-spekingurinn Niet-
sche á að hafa sagt: »Betri ljóð
verðið þér að syngja mér, ef eg
á að læra að trúa á endurlausn-
arann ykkar; betur endurleystir
Verða lærisveinar hans að koma
tnér fyrir augu, til þess að eg
fái traust til endurlausnarverks
bans«. Pessi orð ættum vér að
leggja oss á hjarta. Pau minna
°ss á þann sannleika, að léleg-
^stu meðmælin með upprisutrú
v°rri, eru lélegir Kristslærisveinar.
Alt vort líf á að vera sffeld
upprisa frá dauðum fyrir guðs
kraft. Með þeim hætti verður líf
vort í sannleika undirbúningur
undir eilífðina. Og þá fyrst
verður kraftur Krists opinber í
lífi voru, er vér látum það vera
lif í sffeldri baráttu við syndina
og við alt, sem vill teygja oss
burt frá guði, og líf í látlausri
framsókn að fullkomnunartak-,
markinu. En hvernig má það
ske? Til þess er að eins ein
leið, sú, að vér af hug og hjarta
gefumst hinum upprisna frels-
ara og við það sameinumst
honum æ innilegar. Því að ein-
ungis í samfélaginu við hann
fáum vér fullar sönnur á, að
lífið er — þrátt fyrir alt —
sterkara en dauðinn, og ein-
ungis þar fáum vér sigurtóna
upprisunnar inn í Iíf vort, svo
að vér getum sagt í trausti til
máttar hans og miskunnar og í
vonglaðri upprisutrú guðs barna:
»Dauði, hvar er sigur þinn;
dauði, hvar er broddur þinn.
Guði séu þakkir, sem oss hefir
sigurinn gefið fyrir drottin vorn
Jesúm Krist«.
Um 5000 menn meiðast og farast.
fflörg hnndrnð þorp og borgir
jafnast við jörðn.
Hinn 19. f. mán. fór afskap-
legur fellibylur yfir suðurhluta
Illiuois og nokkurn hluta af
Indiana og Missouri. Mörg
hundruð þorp og bæi jafnaði
fellibylurinn við jörðu og rúm-
lega 20 borgir. Er þetta talið
eitt hið hræðilegasta slys af
völdum náttúruaflanna, annað
en jarðskjálftinn mikli í Japan
árið 1923.
Borginni Gorham sópaði byl-
urinn algerlega í burtu og mörg-
um bæum þar í grend. í Par-
rish i Illinois fór á sömu Ieið
og segja fregnir þaðan, að byl-
urinn hafi fleygt sumum likum
þeirra manna er fórust, meira
en mílu vegar.
Samkvæmt siðustu fregnum
hafa rúmlega 1000 manns farist
og rúmlega 3000 hlotið meiðsl
og limlestingar. Segja sjónar-
vottar að það hafi verið átakan-
legt að heyra neyðaróp og kvala-
óp manna, kvenna og barna úr
rústum húsanna. Viða kom upp
eldur og lagði í auðn það sem
bylurinn hafði eftir skilið. í
Murphysboro fauk skólahúsið.
Voru þar 245 börm inni um
það leyti og komust fæst þeirra
lifandi og ómeidd undan. í De-
soto fauk annar barnaskóli.
Voru þar 250 börn og komust
aðeins þrjú ómeidd af. Af 650
ibúum í Parrish komust aðeins
6 af óskaddir.
Eftir því sem opinberar skýrsl-
ur herma er manntjónið þetta í
borgunum:
í Murphysboro fórust nær 800
manns, en 990 meiddust meira
og minna. í West Frankfort
fórust 350, en 900 hlutu meiðsl.
f Parrish fórust 350, en 300
meiddust, og i Desoto fórust
400, en 400 meiddust.
Aðrir fellibyljir.
Stærstu fellibyljirnir, sem
komið hafa áður í Bandaríkj-
unum, eru þessir: f maí 1905 í
Oklahama; fórust 130 menn. í
sama mánuði i Kansas; fórust
30 menn. í júní 1908 í Kansas
og Nebraska; fórust 27. í apríl
1908 í Missisippi, Lousiana og
Alabama; fórust 450. í maí 1917
í Missouri og Illinois; fórust 67.
f júní 1919 í Minnesota; fórust
60. í april 1923 í Oklahama;
fórust 100. í júlí 1923 i Iowa;
fórust 63. f marz 1924 i Kan-
sas, Oklahama, Missouri og
Ohio; fórust 24. f júní 1924 í
Ohio; fórust 100 menn.