Dagblað

Tölublað

Dagblað - 12.04.1925, Blaðsíða 2

Dagblað - 12.04.1925, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐ IflÉDilor iOiaðnr Innlendur iðnaður er að fær- ast í aukana hér á landi, og fer áhugi manna á verklegum framkvæmdum vaxandi með degi hverjum. Að vísu er því svo háttað hjá oss, að landbún- aður og fiskveiðar eru og verða aðal máttarstoðir undir íslenzku lífi og hverskonar menningu, og allar aðrar atvinnugreinir hafa bygt og byggja á þeim tilveru sína. — Er þetta lýðum ljóst og þá eins hitt, að það er lífs- skilyrði fyrir íslenzku þjóðina, að sem flestir dugandi drengir fáist til að stunda framleiðsluna til lands og sjávar. Flotinn vex óðfluga og með hverju nýju skipi opnast ný leið á sjó og landi til aukinnar at- vinnu. Sveitirnar heimta sitt, ræktun landsins f stórum stíl kallar á nýja og góða krafta til starfs og framkvæmda. Ef atvinna eykst til lands og sjávar og ef góðæri og aflabrögð haldast í hendur þarf enginn að svelta sakir atvinnuleysis. Enda verða allir að vera einhuga um það, að láta íslendinga sitja fyrir atvinnu þeirri sem býðst. Bregðist afli eða komi aftur- kippur í útgerð eða landbúnað af einhverjum óviðráðanlegum orsökum, svo atvinna bregðist við framleiðsluna, þá er voðinn vis, einnig á öðrum svæðum. Kem eg þá að því, er eg vil gera sjálfum mér og öðrum ljóst: Sá iðnaður einn á hér tilveru- rétt, sem aðalatvinnuvegirnir skapa og veita frjómagn, enda verður hann að vera fyllilega samkepnisfær á frjálsum markaði. þar sem saman fer ódýrt og hentugt efni. fullkomin tæki og mikil eftirspurn eða neyzla, eru líkindi til að innlenda fram- leiðslan standi þeirri útlendu á sporði. Þá er það metnaðarmál og sjálfstæðismál í fylsta máta, að efla innlenda iðnaðinn, því að hann verður landsmönnum happadrýgri en sá útlendi. þá á hann fullan rétt á sér, enda vafalaust holt og heillavænlegt, NYJA BIO Röddin úr tnrninu # Sjónleikur í 7 þáttum, tekinn á kvikmynd af amerikska félaginu First National. Aðalhlutverkið leikur: Norma Talmadge. Sýningar 2. páskadag kl. 7*/2 og 9. Barnasýning kl. 6, og þá sýnd hin ágæta barnamynd JLiitli vitavörður- inn, þar sem Baby Peggy leikur aðalhlutverkið. ---------- Hreins handsápur hafa alla sömu kosti og beztu erlendar handsápur og éru auk þess íslenzkar. Fást í næstu verslun. Z& J2S Gleymið ekki innlendu vörunum hjá oss: Niðursoðið kindakjöt í 1 og xh kgr. dósum. Niðursoðin dilkakæfa i 1 og V* kgr. dósum. Niðursoðnar fiskbollur í 1 kgr. dósum. Pylsur allskonar, þar á meðal »spegepylsa«. Kæfa í belgjum, nýsoðin. Saltað dilkakjöt í 112 kgr. tunnum. Frosið dilkakjöt o. fl., o. fl. Sláturfólag- Suðurlands. Símar 249 & 250.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.