Dagblað

Útgáva

Dagblað - 26.04.1925, Síða 2

Dagblað - 26.04.1925, Síða 2
2 ) DAGB LAÐ Ping-tíðindi. Fjárlögin. Fjárveitinganefnd Ed. hefir skilað breytingartillögum við fjárlagafrv. eins og það kom frá Nd. Var þeim breytingartill. út- býtt í gær, en eigi hefi eg at- hugað hve miklu nemur á upp- hæðum frá því sem frv. kom frá Nd. Meðal þeirra breytinga, er nefndin leggur til, er að skera niður styrki skáldanna Jakobs Thorarensens, Stefáns frá Hvíta- dal og Halldórs Kiljan Laxness. P'á hefir og nefndin viljað færa til betra máls, það er sett var inn í íjárlfrv. í Nd., svo sem að kalla ekki Eggert Ei- riksson (Briem) heldur Eggert Briem frá Viðey, ekki Skutils- fjarðareyri, heldur ísafjörð. Þá hefir nefndin og lágt til aö landið kaupi grasasafn Helga Jónssonar dr. og ætlað til þess 2500 kr. á næsta ári, er sé 7* andvirðis þess. Þá hefir og nefndin gert þá breytingartill. á styrk til Lofts Gúðmundssonar, að í stað þess að hann fái þóknun fyrir kvik- myndatöku, skuli koma að hann fái þóknun til þess að gera um- bætur á kvikmyndurn sínurn. Ennfremur vill nefndin heimila stjórninni að greiða S veini Björns- syni 10 þús. kr. upp í tjón við húsakaup í Kaupmannahöfn vegna embættis síns. Alls eru breytingartillögunar 61 og eru flestar efnisbreyting- ar, og margar munu þykja at- hugaverðar. Herpinótaveiði. Frá sjávarútvegsnefnd N. d. er komið álit um herpinótaveiði á Skagafirði og segir þar svo: Sjávarútvegsnefnd hefir athug- að þetta frumvarp. Formaður nefndarinnar náði tali af herra Bjarna Sæmundssyni fiskifræð- ingi, sem tjáði sig meðmæltan þessu frv. Taldi hann ekki rétt- mætt né í nokkurn stað sann- gjarnt, að Skagfirðingar friðuðu Skagafjörð fyrir herpinótaveiði svo langt út, sem lögin frá 1923 heimila, og þess vegna væri rétt að afnema þau lög. t*á leitaði nefndin einnig álits stjórnar Fiskifélagsins, og kom forseti félagsins á fund nefndarinnar. Gaf hann frv. þessu mjög ákeð- in meðmæli sín og taldi brýna þörf á, að það yrði að lögum á þessu þingi. Sjálfur hefir hann stundað síldveiðar með herpi- nót, og kvað hann hverfandi litlar líkur til þess, að þær veið- ar gætu skemt veiðarfæri þeirra manna, er þorskveiðar stunda, þótt á sama svæði sé. Að öðru leyti áleit hann litlar líkur til, að síldveiðar með herpinót á þessu umrædda svæði tálmuðu göngu síldarinnar eftir firðinum, af því að átan, sem síldin eltir, hlýtur að berast með straumum og vindi, án þess að slík veiði hafi þar nokkur áhrif. Það eitt þótti forseta Fiskifélagsins að þessu frv. að það gangi ekki nógu langt, og beindi hann á- kveðnum tilmælum til nefndar- innar, um að fá heimildarlögin frá 1913 einnig úr gildi numin. Einn nefndarmanna, J. Möller, álítur réltara að taka málið upp á þeim grundvelli, að nema úr gildi heimildarlögin frá 1913, en hefir óbundið atkvæði silt um frumvarpið eins og það nú liggur fyrir. Jón Baldvinsson hefir einnig óbundið atkvæði um málið, en meiri hluti nefnd- arinnar ræður til þess að sam- þykkja frv. óbreytt. Borgin. Sjávnrföll. Síödegisháflæður eru í kvöld kl. 7,30. Ardegisháflæður kl. 7,50 í fyrramálið. Nætnrlæknir er í nótt Jón Krist- jánsson, Miðstr. 3 A. Sími 686. Nætnrvörðnr er í Laugavegs- Apóteki. Esjn var á Aknreyri í gær. Gísli Ólnfsson frá Eiriksstöðum hélt skemtun í Bárunni í gærkvöld. Las hann upp kvæði, er hann hafði sjálfur ort; eirinig hermdi hann eftir ýmsum mönnum og fór með kvæði eftir gömlum kvæðamönnum. Er Gísli mesta hermikráka og fer vel með efni. Skemtunin var vel sótt. TÐagBlað. {Arni Óla. G. Kr. Guðmundsson. Afgreiðsla I Lækjartorg 2. skrifstofa J Sími 744. Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd. Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. ■HBB NYJA BIO OSHBHi Örlög1 útlagans. Kvikmynd í 7 þáttum. Aðalhlutverk leika: Elaine Hammerstein og Convay Tearle, ' hinn ágæti, fallegi leikari, sem allar stúlkur eru svo hrifnar af. Hann lék. t. a. m. á móti Normu Tal- madge í myndinni í viðj- um ásta og örla^ga, og fleiri myndum. Leikur hans í mynd þessari er snildar góður sem endranær. Sýningar kl. 6—772 og 9. Börn fá aðgang að sýn- ingnnni kl. 6. Peinngnbuddu með 20 krónum í var stoiið frá litilli stúlku í búö um daginn. Hafði hún lagt budd- una á búðarborðið, meðan hún beið eftir afgreiðslu, en þegar hún ætlaði til að taka, var buddan horf- in og þjófurinn kominn út. 1’orBkhnusarnir og: þjóðin. Svo nefnir dr. Guðmundur Finnhoga- son fyrirlestur, sem hann heldur í Nýja Bíó kl. 4 í dag, að tilhlutun Stúdentafræðslunnar. Skátaguðsþjónnsta var haldin í Dómkirkjunni á sumardaginn fyrsta, um kvöldið kl. 8’/«. Séra Árni Sig- urðsson predikaði, og var kirkjan alskipuð skátum úr öllum félögum í bænum. Penna dag — 23. apríl ár hvert — koma skátar saman viðs- vegar um heim og endurnýja skáta- heit sín. I'orleifnr Jónsson póstmeistari er sjötugur í dag. Hefir hann gegnt póststörfum um 25 ár og áunnið sér almenningsbylli fyrir reglu og áreiðanleik. Látinn er hér í bænum Porleifur, sonur Jóels Þorleifssonar trésmiðs. Hann varð aðeins 17 ára að aldri.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.