Dagblað - 04.06.1925, Side 2
2
D A G B L A' Ð
■vissa tíma hvers dags, stjórnað
gerðum hennar og orðum og
sem segir sig vera Friðrik huldu-
læknia.
Frú Guðrún hafði fengið
mænuhimnubólgu fyrir 10 ár-
um og verið síðan sem næst
máttlaus öðru megin. Sérstak-
lega var vinstri fóturinn alveg
máttlaus og orðinn mjög visinn.
Hafði hún leitað til 8 lækna og
flestar hugsanlegar lækningatil-
raunir reyndar, en allar án nokk-
urs verulegs árangurs.
Lítið eða ekkert mun frú
Guðrún hafa lesið af spíritiskum
ritum né haft nein náin kynni
af því máli. Og norður hafði hún
skrifað án þess að búast við
nokkrum verulegum árangri.
Fyrstu áhrifin sem frú Guð-
rún varð fyrir voru þau, að
hún misti skyndilega stjórn á
öllum hreyfingum sínum »og tók
að gera ýmsar kynlegar og henni
algerlega ókunnar likamsæfingar.
Hófust þær að nóttu til og
þannig að eiginmaður hennar
vaknaði við að titringur fór um
allan líkama hennar. Reis hún
því næst upp og fór ofan á gólf
og framdi þar ýmsar arm- bol-
og útlima-æfingar.----Gat hún
að engu leyti ráðið við hreyfing-
ar þessar, en virtist eins og ein-
hver ósýnileg vera — sem þó
varð ekki skynjuð á venjulegan
hátt — stjórnaði sér«.
Fyrst í stað komu »áhrifin«
• á ýmsum tímum en svo varð
sú breyting á »að hún féll und-
ir vald þeirra vissa tíma á dag
(kl. 6 e. h. virka daga, en kl.
8 f. h. á sunnudögum). Vöruðu
þau í hvert sinn rétta klukku-
stund«.
Hefir frú Gruðrún fengið mikla
bót meina sinna og er nú farin
í sumardvöl til skyldfólks síns
á landi. Telur hún að samband
þeirra Friðriks muni haldast
áfram og hefir orð hans fyrir
því.
Nokkru eftir. að lækningatil-
raunirnar byrjuðu og hún komst
í samband það sem að framan
getur, fór hún sjálf að taka á
móti sjúklingum sem einskonar
milligönumaður milli hins dul-
arfulla læknis og sjúklinga þeirra
sem vildu leita hans.
Telja margir sig hafa fengið
mjög undursamlega lækningu og
fulla bót meina sinna hjá hin-
um dularfulla Friðriki lækni, en
fyrir milligöngu frú Guðrúnar.
Pessu til sönnunar fylgja
skýrsluni mörg vottorð frá hlut-
aðeingandi mönnum og virðist,
a. m. k. í fljótu bragði, vera erf-
itt að efast um sanngildi þeirra.
Skýrsla Hallgríms kennara
Jónassonar ásamt öllum vott-
orðunum sem henni fylgja, kemur
í næsta hefti »Morguns« og mun
mörgum leika forvitni á að lesa
hana alla. — —
Borg á sjávarbotni.
Arabi nokkur, sem var að
fiskveiðum skamt frá eynni Jerba,
sem er fram undan Tunis, fann
nýlega borgarrústir þar á sjávar-
botni. Frakkar sendu undireins
fornleifafræðinga þangað og
staðfestu þeir sögu Arabans.
Segja þeir að þarna sé rústir af
stórri borg og megi enn glögt
greina þar gatnaskipan. Á nú að
rannsaka þetta betur, með því
að láta kafara fara þar niður
og jafnvel er búist við því að
úr flugvélum megi sjá hve stór
borgin hefir verið og hvernig
hún hefir verið bygð.
Menn vita enn eigi hvaða
borg þetta getur verið,. en í
gömlum arabiskum þjóðsögnum
er getið um neðansjávarborg
fram undan Tunis og á hún að
vera bygð forynjum og yfirnátt-
úrlegum verum. Er hún nefnd
Domdaniel og er hennar getið í
»Arabiskum nóttum« (»Contin-
nation of the Arabian Nights«
1788—93).
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæöur kl.
3,32. Árdegisháflæður kl. 3,55 í nótt.
7. vika sumnrs hefst í dag. Far-
dagar byrja.
Nætnrlæknír. Halldór Hansen,
Miðstræti 10. Sími 256.
Næturvörðnr í Reykjavíkur-Apo-
teki, Sírai 60.
^agöíaö.
{Arni Óla.
G. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðsla | Lækjartorg 2.
skrifstofa j sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Oðr* Rakarastofa Einars J.
Jónssonar er á Laugaveg 20 B
Inngangur frá Klapparstíg.
I. fl. BIFKEIÐ iil leigu.
Sími 341.
tÆálningarvörur:
Blýhvíta, Zinkhvíta, Fernisolía,
Þurkefni, Japanlakk.
Löguð málning.
Ódýrar en góðar vörur.
Yfir 120 tegundir a£ veggfóðri,
frá 45 aurum rúllan af
enskum stærðum.
Hí. Hiti <& Ljós.
Sýning danskra listaverka verður
opnuð i Barnaskólanum á laugar-
daginn kemur af Knúti Danaprins.
Aðalfnndnr íslandsbanka verður
haldinn 1 júli. Hluthafar sem ætla
að sækja pann fund, verða að hafa
náð sér í aðgöngumiða fyrir 9. þ. m.
Kvlkmyndnhúsin. Nýja Bio sýnir
»Sværmere« sem gerð er eftir sögu
Knud Hamsuns. Gamla Bio sýnir
gamanmynd, þar sem þeir leika
»sá stóri og sá litli«.
Mcrcur fer héðan í kvöld. Meðal
farþega til útlanda er Einar skáld
Benediktsson og frú Ellingsen.
Willemoos kom hingað í gær meö
steinolíufarm frá Englandi.
Bntnvörpnngnrinn ísland kom í
gærkvöld frá Austfjörðum. Hefir
hann lagt þar upp afla sinn undan-
farið.
Colnmbia fer héðan i dag með
fisk til Spánar.
Niels fer einnig héðan i dag til
Englands með blautan fisk.