Dagblað - 08.06.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
alþm. Jónsson langa»ræöu, er
aðallega snerist um flokkaskift-
inguna í þinginu. í*á töluðu
Jón Magnússon forsætisráð-
herra, Magnús Jónsson dócent
og Jón Ólafsson framkvæmdar-
stjóri, séra Ingimar Jónsson að
Mosfelli, Stefán Diðriksson kaup-
félagsstjóri og Lárus bóndi
Helgason á Klaustri. Var þá
ræðutími takmarkaður, þótt því
væri lítið sint, er þjóðmálin
voru annarsvegar. Töluðu þá
ýmsir aftur, og síðast Árni
bóndi Jónsson í Alviðru.
Fundarmenn fengu allir gott
hljóð og fór fundurinn rólega
fram, þótt orðahnippingar yrðu
nokkrar milli andstæðinganna.
Var einkum gerður góður róm-
ur að ræðu Jörundar, enda
voru flestir fundarmenn Fram-
sóknarliðar.
Enn er grafið.
Ekki hafa stjórnarvöld þessa
bæjar treyst sér til að verja gerð-
ir sínar um ráðstöfunina við-
viKjandi nýju byggingunni við
Hafnarstræti, sem Dagblaðið
hefir andmælt mjög ákveðið og
með fj'lstu rökum. Hefir það
verið gert oftar en í eitt skifti,
og skal enn að því vikið.
Haldið er áfram að grafa fyrir
grunni hússins, en engin mót-
mæli önnur en Dagblaðsins hafa
komið fram opinberlega. Fjöldi
manna hefir samt þakkað Dag-
blaðinu fyrir andmæii þess og
tjáð sig eindregið fylgjandi þeirri
afstöðu sem það hefir tekið til
þessa máls og skipulagsbreyt-
inga bæjarins yfirleitt. En ekki
er nóg að menn votti einhverju
máli fyigi sitt ef ekkert er að-
hafst til að koma einhverju á-
leiðis til framkvæmda. Svo er
um þessa húsbyggingu og verð-
ur þar að taka fastara í taum-
ana ef duga skal.
Daglega staðnæmist fjöldi fólks
við þennan grunngröft og
undrast þá ráðstöfun að
leyfa að byggja þarna hús, og
þannig, eins og ætlast er til að
það verði. Fæstir munu skilja
hvað fyrir þeim mönnum hefir
vakað, sem þessu hafa ráðið,
annað en auðsveipni við ein-
staka menn, sem vegna eigin-
hagsmuna og stundaraðstöðu
hafa viljað fá þessu framgengt.
Virðist þeir menn eiga töluverð
ítök í stjórnendum bæjarins, og
er slík »vinsemd« sizt holl bæj-
arfélaginu. En — áfram er graf-
ið fyrir grunni þessa sameigin-
lega minnisvarða skipulagsnefud-
ar, byggingarnefndar og bæjar-
stjórnar og hætt er við, að um
leið sé grafið til fulls undan
áliti þeirra, nema fram komi
opinberlega fullnægjandi skýring
á þessum ráðstöfunum.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður kl.
6,35. Árdegisháflæður kl. 7,5 í fyrra-
málið.
Nætiirlæbnir f nótt er Daníel
Fjeldsted, Laugaveg 38. Sími 1561.
Nætnrvörðnr í Laugavegs Apóteki.
Slökbviliðið var narrað í morgun
inn á Vatnsstíg. Var brunaboði brot-
inn af rælni og mun sá maður, sem
valdur var að pví hafa náðst. Er
það undarlegt, að fullorðnir menn
skuli liafa gaman að því að brjóta
brunaboðana og narra slökkviliðið.
Mega slíkir menn vera einkennilega
innrættir. — í hvert skifti, sem
slökkviliðið er kvatt saman, kostar
það bæinn um 500 krónur og auk
þess er mörgum manni gert óþarft
og dýrt ómak. Ætti því enn þyngri
refsing að liggja við þéssum stráka-
pörum heldur en nú er.
Snorri Sigfússon yfirsíldarmats-
maður er nýkominn tii bæjarins og
dvelur hér nokkra daga í síldar-
matserindum.
Æflsögu Jóus Slgurðssonar er í ráði
að gefa út. Hefir háskólaráöið sam-
þykt að veita 5000 kr. í ritlaun fyrir
hana eða 150 kr. fyrir hverja örk
og má bókin ekki verða lengri en
33 arkir og á að vera lokið í árs-
byrjun 1930. Bókmentatélagið mun
gefa hana út.
Odðfellovv-stúka er nýstofnuð i
Vestmannaeyjum. Eru þær þá fjór-
ar hér á landi, 2 i Reykjavík, 1 á
Akureyri og 1 i Vestmannaeyjum.
Utflutningur islenzkra afurða í
maimánuði hefir samkvæmt skýrslu
frá Gengisnefndinni numiö 3,730,522
krónum og er það 106,627 kr. meira
en útflutningurinn nam í aprílmán-
^DagBíað.
I Ami Óla.
otstjorn. | q Kr Guðmundsson.
Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sírui 744.
Ritstjórn til viötals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuöi.
uði. Hæzti liðurinn er fyrir verkað-
ann fisk, rúmar 2 miljónir kr. Pá
er lýsi fyrir rúma 1 miljón, óverk-
aður fiskur fyrir 431 þúsund og
hrogn fyrir rúmlega 87 þús. krónur.
— Verðmæti annara vörutegunda.
hleypur á nokkrum þúsundum.
Kappreiðar verða háðar á Skeið-
vellinum við Elliðaár, dagana 3., 4.
og 5. júlí og verða verðlaun veitt
alla dagana, en aðalkappreiöarnar
verða siðasta daginn og er heitiö
200 krónum í aukaverðlaun handa
þeim hesti sem setur nýtt met.
E.s. Snðiirland fer upp í Hvalfjörð
í kvöld eða á morgun. Tekur þaö
vörur úr Gullfoss og fer með þær
inn að Kalastaðakoti og Hrafneyri
á Hvalfjarðarströnd og inn á Lax-
vog í Kjós.
Gullfoss kom hingað I nótt. Far-
þegar voru: Halldór Vilhjálmsson
skólastjóri á Hvanneyri og frú,
Pórarinn Kristjánsson hafnarstjóri
og frú, Jens Waage bankastjóri og
frú, Geo. Copland og frú, Konráð
R. Konráðsson læknir, Gunnar Ein-
arsson skrifstofustjóri, ungfrúrnar
Kristjana Guðmundsdóttir, Jakobína,
Jóhanna og Elín Arinbjarnar, Regine
Dinse, Karen Grote, Pórður Jóns-
son úrsmiður, Guðm. Einarsson frá
Miðdal, Osvald Knudsen málari,
Eggert Kristjánsson kaupmaður,
Páll Stefánsson heildsali, nokkrir
enskir ferðamenn o. fl.
Víðsjá.
Hinn 21. maí andaðist Guð-
rún Jónsdóttir húsfrú í Reykja-
hlíð við Mývatn. Hún var dóttir
Jóns Illugasonar í Baldurshéimi.
Hún var gift Einari Friðrikssyni,
og bjuggu þau fyrst í Svartár-
koti og síðan í Reykjahlið. Húu
var nær Úttræðu er hún lézt.
Jónas Þorbergsson ritstjóri og
ungfrú Sigurlaug Margrét Jón-
asdóttir frá Uppsölum, voru gefin
saman í hjónaband fyrir skemstu.