Dagblað - 10.06.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
öðru hvoru hefir verið fleygt í
Tjörnina fyrirhyggjulaust og til
fánýtis, til að hreinsa hana í eitt
skifti fyrir öll, og halda henni
hreinni! Nú var Tjörnin orðin
veruleg bæjarprýði. Og það var
nautn og hressing að ganga með-
fram henni á kvöldin eftir heit-
an dag. — En sorpflugurnar og
rotturnar höfðu flutt burt í
mesta pússi! — h.
Moskus-naut i Noregi.
Rannsóknarskipið »Quest«,
sem fór til Grænlands í fyrra-
sumar, og kom hér við, hafði
með sér heim aftur til Noregs
nokkur moskus-naut frá Austur-
Grænlandi. Voru 4 þeirra sett í
hólma allstóran á Norður-Há-
logalandi. Hafa þau þrifist þar
vel í vetur. Verði sú raunin á
að þau þoli sumarhitann, má
búast við, að gerð verði frekari
tilraun í þessa átt, sérstaklega í
Norður-Noregi. Enda eru þaðan
mestar ferðir til Grænlands.
Frá Tit>et.
Frönsk kona, Alexandre Da-
vid, er nýlega komin heim til
París eftir 14 ára æfintýraferö í
Asíu um lítt kunn héruð Kína
og Tibet.
Hún var send til Indlands
árið 1911 af fræðslumálaráðu-
neyti Frakka til þess að rann-
saka lífsskoðanir Búddatrúar-
manna. 1 Indlandi hitti hún
Dalai Lama, sem Kínverjar
höfðu hrakið burtu frá borginni
Lhasa i Tibet, en til þeirrar
borgar má enginn hvítur maður
koma. Fýsti nú Alexandre Da-
vid að komast til þessarar borg-
ar, hvað sem það kostaði. En
það var hægra sagt en gert.
Hún byrjaði nú með því að
dvelja í 2 ár í helli uppi í há-
fjöllum og hafði þar með sér
kennara til þess að læra tungu-
mál Tibet-búa og kynnast sögu
þeirra og bókmentum. Síðan
dvaldi hún þrjú ár í Koum-
Boum, og þóttist þá vera orðin
svo fær i málinu, að hún treysti
sér til þess að leggja á stað til
Lhasa. Tók hún nú á sig föru-
konugerfi og fór gangandi á
stað, en hvað eftir annað var
henni þó snúið aftur. En hún
gafst eigi upp að heldur, og
lagði nú leið sína yfir fjöll og
firnindi. Pað var árið 1922. En
enn var henni snúið aftur. Hélt
hún þá til Kína og lagði upp
þaðan í nýjan leiðangur 1923,
og hafði þá með sér stúlku frá
Tibet. Fóru þær fótgangandi og
höfðu ofan af fyrir sér með
betli. Ferðuðust þær aðallega
um nætur, og veittu útilegumenn
þeirn oft eftirför, en altaf tókst
þeim þó að skjóta sér undan
árásum.
Fegar þær komust yfir fjöllin,
sem eru á landamærum Kína
og Tibet, voru þær komnar í
þau héruð, er enginn hvítur
maður hefir áður farið um.
Náðu þær svo til Lhasa eftir
miklar þrautir og dvöldu þar í
tvo mánuði sem betlarar, og
grunaði engan um erindi þeirra.
Pykir þetta hafa verið hin mesta
frægðarför.
Borgin.
Sólarupprás kl. 2,10. Sólsetur kl.
10,45.
Sjávarföll. Síödegisháflæöur kl.
8,20. Árdegisháflæöur kl. 8,45 í fyrra-
málið.
Nætnrlæknir. Jón Kristjánsson
Miðstræti 3 A. Sínsi 686.
Nætnrvörðnr í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Sunnanátt var um alt
land i morgun og hvassviðri i Rvik
og Vestmannaeyjum. Heitast var á
ísafiröi 16 stig, á Seyðisfirði voru
15 stig, á Raufarhöfn 14, á Akureyri
12 st. og jafnheitt í Færeyjum. í
Reykjavik var 9 stiga hiti og tölu-
verð úrkoma og eins á Isafírði og
i Vestmannaeyjum. í Kaupmanna-
höfn var 20 stiga hiti í morgun, en
á Jan Mayen 5 stig. í Angmagsalik
var 9 stiga hiti í gær.
Spáð er allhvassri suðiægri átt
með skúrum á suður- og vestur-
landi, en þurviðri á norður- og
austurlandi.
Jnrðarför og minningarathöfn
hjónanna Arna Jónssonar, er fórst
með es. Robertson, og Porbjargar
ÍDacjfilað.
J Arni Óla.
Ritstjórn: | g. Kr. Guðmundsson.
Afgrmðsla 1 Lækjartorg 2,
skrifstofa j Simi 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 siðd.
' Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuöi.
1. fl. BIFREIÐ til leigu.
Sími 341.
Magnúsdóttur, er lézt 30. f. m., fer
fram frá dómkirkjunni í dag og
hefst með húskveðju á heimilinu,
Pingholtsstræti 15, kl. 1.
Botnvörpnngnrnir. Ása kom af
veiðum í gær með 81 tn. lifrar, og
Karlsefni með 70 tn.
Kári Sölmundarson kom inn til
Viðeyjar með um 100 tn. lifrar.
Svnnnr er væntanlegur frá Breiða-
fírði annaökvöld.
Esjn var í Stykkishólmi i morgun,
, og er væntanleg hingað kl. 7—8 i
kvöld.
Sknftfcllingur liggur hér enn,
hlaðinn vörum til Eyrarbakka, og
bíður byrjar.
Snðnrlnndi hefir ekki enn gefið til
Hvalfjarðar, en mun fara þangað
strax og lygnir.
Lnxveiðin í Elliðaánum hefir ver-
ið fremur treg undanfarna daga.
Einn daginn fékst þar aðeins 1 lax,
en i gær var góð veiði og voru 14
laxar komnir á land i gærkvöldi.
Kvikmyndnhúsin. Nýja Bio sýnir
»Barnið frá Vin«, sem tekin er eftir
gamanleik eftir Svend Rindom.
Leikur Gunnar Tolnæs aðalhlut-
verkið. — Gamla Bio sýnir mynd
sem nefnd er »Pegar syrtir að«, og
er hún gerð eftir sögu eftir Rudy-
ard Kipling, og ér leikin af Para-
mount-félaginu.
Tekjn- og eignnskattnr. Peir, sem
kært hafa út af skattinum, og vilja
ekki hlita úrskurði skattstjóra, geta
kært skattinn fyrir yfirskattanefnd
og er frestur til þess, til 23. þ. m.
í yfirskattanefnd eiga sæti Björn
Pórðarson hæstaréttarritari, Sig-
hvatur Bjarnason og Pórður Sveins-
son.
Heimilisiðnaðarfélag' Islnnds hefir
aðalfund sinn hinn 24. þ. m. i Kaup-
þingssalnum. Fer þar fram kosning
forseta og tveggja fulltrúa.