Dagblað

Útgáva

Dagblað - 29.06.1925, Síða 2

Dagblað - 29.06.1925, Síða 2
2 DAGBLAÐ fá sig fullreynda í banngæzlu- iaráttunni, — og gefast upp, Sjáið bara hér hjá oss íslend- ingum, og bjá Norðmönnum, sögðu þeir og voru hróðugir. Jæja. Við skulum þá líta snöggvast á þessi lönd. Fyrir skömmu hafa símskeyti flutt þá frétt, að smyglaraflotinn við austurstrendur Ameríku hafi ný- skeð tekið að flytja bækistöðv- ar sínar til Kyrrahafsins. Hvers vegna? Eðliiega sökum þess, að strangt eftirlit við austurströnd- ina hefir gert smyglurunum næsta ókleift að gera »good buisness« þar lengur, og svo hefir verið tekið afar hart á smyglurum þeim, sem bann- gæzluliðið hefir klófest. Hyggj- ast þeir nú að reyna til þrautar við vesturströnd Ameríku. En að líkindum verður þeim jafn erfitt um snúninga þar sem eystra, áður en langt liður. Skulum vér þvi spyrja að leiks- lokum.------ Hvernig snýr þá málið við í Noregi? — Stendur eigi atvinnu- rekstur smyglara þar í bliðum blóma ennþá? t*að mun nú vera svona upp og niður með það! Þeir, sem lesa með öðru aug- anu, munu fullyrða að svo sé, og sýna það með tölum. Síðast- liðið ár jókst tala þeirra, sem hegnt var fyrir smygl og bann- lagabrot, úr 650 og upp i 919. Sjáið þið til, segja andbanning- ar beggja megin hafsins. Fram- förin er auðsæ. Smyglurunum hríðfjölgar! En hvað sýnir tala þessi, ef lesið er með báðum augum? Hún sýnir, að eftirlit með bannlögunum hefir verið aukið og skerpt að miklum munl Hver hefir svo orðið árangur- inn annar en sá, að fylla fang- elsin? Banngæzluliðið norska (tollgæzlumenn, lögregla o. fl.) skýrir svo frá: í Björgvinjar-umdæmi má telja, að smyglarar sé algerlega horfnir. Óslóarfjörður, sem áð- ur »flóði í smyglunarsprútti«, er nú orðinn »þur að kalla«. Skýrir lögreglan í Ósló frá, að þar sé mesta brennivínsleysi, svo að þeir, sem eigi komist af dropalaust, verði annaðhvort að drekka suðuspíritus eða brugga sjálfir í heimahúsum. Austur við »Grísaboða«, á landamærum Noregs og Sví- þjóðar, er nú orðið nær ókleift að koma i land feng sínum á þeim miðum. En þar hefir smyglaraflotinn haft aðalbæki- stöð sina árum saman, og selt óspart á báða bóga. Nú sitja flestir hinna helztu og frægustu smyglara og aðstoðarmenn þeirra í fangelsi eða gæzluvarðhaldi. Og sú hefir orðið raunin á, að atvinnan hefir eigi borið sig nægilega vel til lengdar. Nokkur þúsund króna sektir, margra mánaða fangelsi og missir skipa og »vörubirgða« hefir þrásinnis farið með allan gróðann og langt fram yfir það, bjá mörg- um þeirra. Snúa þeir þá baki við þessum »glæsilega atvinnu- rekstri» sínum, er svo illa árar hjá þeim. — Þetta er þá hrafl síðustu frétta frá löndum þeim, er áttu að vera oss íslendingum til aðvör- unar og leiða oss frá villu vorri í bannmálinu inn í spádóms- anda og sannleika andbanninga. — En reynslan er sannleikur, sagði Repp sálugi. h. Borgin. Sjávnrföll. Síðdegisháflæður i dag kl. 11,33. Árdegisháflæður kl. 12,10 á morgun. Tnngrl f. kvartil kl. 8,43 f. h. Nætnrlæknir Ólafur .Þorsteinsson Skólabrú 2. Simi 181. Nætnrvörðnr i Reykjavíkur Apó- teki. Tíðnrfar. 8—13 stiga hiti var i morgun og mjög breytileg átt. Suð- austan stinn gola i Vestmannaeyj- nm og regn. Mikið regn var í Grinflavik. Úrkoma hér síðasta sól- arhring 5,5 mm. Ekkert veðurskeyti kom frá Kaupmannahöfn. —> Loft- vægislægð við Suðvesturland. Spáð er breytilegri vindstöðu á Norö- vesturlandi, en suðlægri átt annars staðar, úrkomu viða og þoku viö Suður- og Austurland. Slys. Þorbjörn bóndi í Ártúni var að flytja mjólk til bæjarins i gær í hestvagni. Þegar hann kom á Bar- ónsstig, þurfti hann að stiga af vagninum, en er hann steig á vagninn aftur, fældist hesturinn, og *DagBlað. I Arni Óla. Ritstjórn: ^ G Kr Guðmundsson. Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2. skrifstofa j Sími 744. Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd. Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. Myndaverðskrá ókeypis yfir ódýr vasaúr, úlfliðsúr, festar, rakhnifa, rakvélar, hár- klippur, skeiðar, borðhnífa, eldhúsáhöld og ótal margt annað, ef þér sendið 30 aura burðargjald. Norsk Industrimagasin A/S Box 615 — Oslo — Norge. ______________________________ IJÉgr Rakarastofa Einars J. Jónssonar er á Laugaveg 20 B Inngangur frá Klapparstíg. náði Þorbjörn ekki taumunum. Fór hesturinn í fælni niður allan Bar- ónsstig og sleit alt af sér. Féll Þor- björn af vagninum og meiddist mikið á höfði, fór úr liði um öxl og heflr víst meiðst eitthvað meira. Var hann borinn inn í hús þar skamt frá. Stórstnkuþingið, hið 25. i röðinni, verður sett í dag, og hefst með guðsþjónustu i dómkirkjunni kl. 1. Prédikar þar síra Gunnar Bene- diktsson frá Saurbæ. Samsæti verður síra Bjarna Jóns- syni haldið á morgun í tilefni af 15 ára prestþjónustu. Látin er hér í bænum húsfrú Þorbjörg Níkulásdóttir, Vesturgötu 56. Hún var systir Karls Nikulás- sonar, konsúls á Akureyri, en gift Jóni Jakobssyni íshúsverðí. Sigurður Eiríksson regluboði er nýlátinn að heimili sonar síns á Isafiröi. Hjúskapur. Bergljót Stefánsdóttir Eiríkssonar myndskera og Hjörtur Nielsen bryti á Lagarfossi voru gef- in saman i gær. Embættispróf í lögfræði: Ingólfur Jónsson, Kristján Þ. Jakobsson, Sig- urður Grímsson og Valtýr Blöndal luku embættisprófi við Háskólann hér í fyrradag, allir með 2. eink. betri. Ísiandsglíman verður háð i Barna- skólaportinu á fimtudagshvöld. Verð-

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.