Dagblað - 04.07.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
Norðurför Amundsens.
Suðurpólsförin ekkert á móti
mannraununum nú.
Hinn 21. maí lögðu þeir fé-
lagar á stað frá Kings Bay á
Svalbarða í tveimur flugvélum,
en komu eigi aftur fyr en 19.
júní og þá allir í annari flug-
vélinni. Hina höfðu þeir orðið
að skilja eftir í isnum. Höfðu
þeir lent í hinum mestu mann-
raunum og mesta rnildi að þeir
skyldi komast lífs af. Fer hér
á eftir útdráttur úr skýrslu
Amundsens sjálfs um ferðina.
Neyddir til að setjast.
Klukkan 1 aðfaranótt 22. maí
skýrir Feucht okkur frá því, að
nú séum við hálfnaðir með
benzínið af geymunum. Við á-
kveðum því að leita að lend-
ingarstað. Við sjáum stóra vök,
en Riiser Larsen lízt ekki á hana.
Við erum svo að sveima þarna
og fljúgum lágt. Alt í einu fer
aftasti mótorinn að hósta ákaft
og viðbúið að hann hætti að
ganga. Erum við því neyddir
til að setjast. Rétt fram undan
okkur er rajór áll út úr aðal-
vökinni, og borgarís á báðar
hendur. Við setjumst á nýjan
ís sem er fremst í álnum og
hoppar flugvélin á ótal smá-
jökum sem sporðreisast og velta
alla vega. Inzt í álnum nemum
við staðar rétt við ishellu og
getum gepgið hiklaust upp á
hana. Flugvélin er óskemd. Við
ætlum að snúa henni og komast
út úr álnum, út á aðal-vökina,
en þá lokast állinn fremst og
við erum innikróaðir.
Það er af Dietrichson að segja,
að þegar hann sá Riiser Larsen
setjast, hélt hann að hann væri
»snar-vitlaus«, eins og hann
.komst siðar að orði. Sjálfur
settist hann í stóru vökinni, þar
sem bezt horfði við. Þetta viss-
um við ekkert um, héldum jafn-
vel að Dietrichson hefði haldið
áfram.
Við sáum fljótt að ísinn gat
á hverri stundu molað flugvél
okkar og bárum þvi i skyndi
af henni öll matvæli og annað
hafurtask okkar. Síðan gerðum
við staðmælingar er sýndu að
við vorum á 87° 43' 2" norður-
breiddar og 10° 19' 5" vestur-
lengdar. Meðan við vorum að
leita að lendingarstað höfðum
við komist nokkru norðar.
Um nóttina fraus flugvélin
inni. Við hvíldum okkur í tvær
stundir en tókum svo að búa
okkur undir það að fara á fæti
til Kap Colnmbia
því að við bjuggumst við að
flugvélin mundi [ónýtast. Sam-
tímis skygndumst við eftir hinni
flugvélinni, en gátum ekkert til
hennar séð. Okkur kom saman
um að höggva dráttarbraut upp
á háfsinn, losa flugvélina og
draga hana þangað upp. Riiser
Larsen fékk einu öxina sem til
var, Feucht ísakkerið og eg
stóra sveðju, sem við bundum
á skiðastaf. Gekk okkur verkið
seint.
Seinni hluta næsta dags var
bjart veður og sé eg þá norsk-
an fána blakta í isnum all-langt
burtu. Urðum við þá fegnari en
frá verði sagt. Riiser Larsen nær
í fána og gefur merki, sem hin-
ir svara. Tölumst við nú við á
merkjamáli og fáum að vita að
allmikill leki hefir komið að
hinni flugvélinni um leið og hún
settist og að þeir urðu að dæla
hana nótt og dag svo hún sykki
eigi. Eg bað þá að reyna að
koma henni upp á isinn og gera
við hana.
Isrekið var þannig, að við
færðumst nær hvorir öðrum eftir
því sem leið.
Hinn 25. maí sáum við stór-
an útsel á ísnum, en gátum því
miður ekki náð honum.
Daginn eftir búa félagar okk-
sig undir það að heimsækja
okkur, því að þeir geta ekki
gert við vél sína nema með því
að fá hjálp. Hugðu þeir að fara
yfir lagísinn á vökinni til þess
að spara sér langan krók. Við
Riiser-Larsen fórum í móti þeim
og höfðum með okkur segldúks-
bát, því að dálítil opin vök var
á leiðinni. Þegar skamt er á
milli hverfa hinir bak við ís-
hrygg og rétt á eftir heyrum við
neyðaróp, ísinn hafði bilað undir
fótum þeim Dietrichson og Om-
dals og sukku þeir þar niður.
Straumurinn var svo sterkur,
ÍDagBlað.
j Arni Óla.
Ritstjórn: j Gi Kr- Guðmundsson.
Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2l
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 siðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Biaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
að þeir höfðu nær sogast út
undir ísinn. Ellsworth hafði ver-
ið aftastur. Hann náði í Diet-
richson og dró hann upp og á
siðustu stundu tókst þeim svo
að bjarga Omdal. Við þóttumst
þá úr helju heimt hafa. Var nú
flýtt ferðum til flugvélar okkar.
Þar fengu þeir sjóðandi súkku-
laði og þur föt. Það sem bjarg-
aði þeim var, að þeir voru í
björgunarvestum, sem við höfð-
um keypt af tilviljun á leiðinni
frá Ósló til Tromsö, og að þeir
höfðu ekki spent skíðahæl-
böndin. Frh.
Borgin.
Sjávnrföll. Síðdegisháflæður ki.
4,10. Árdegisháflæður kl. 4,35 i nótt.
Nœtnrrörðnr í Reykjavíkur Apó-
teki.
Tfðarfar. Hiti i morgun 8—14 st.
Sunnanátt alls staðar nema logn í
Seyðisflrði. Dálitið regn i ísafirði,
en mikil rigning í Stykkishólmi.
Loftvog stöðug. í Angmagsalik er
suðaustan gola og 12 st. hiti, á Jan
Mayen austan stinnings gola og 6
st. hiti. Loftvægislægð fyrir vestan
laDd. Veðurspá: Suðlæg átt, hæg á
Austurlandi, skúrir á Suður- og
Vesturlandi.
Messnr á morgnn. Dómkirkjan:
Kl. 11, séra Friðrik Hallgrímsson,
kl. 5, séra Bjarni Jónsson.
Fríkirkjan: KI. 5, séra Magnús'
Guðmundsson.
Landakotskirkja: Kl. 9, hámessa.
Peningar.
Sterl. pd.............. 26,25
Danskar kr............ 110,76
Norskar kr............. 98,47
Sænskar kr............ 144,98
Dollar kr............... 5,41 */«.
Sundskálinn. Pegnskylduvinna er
við hann í kvöld og verður farið
frá stefnbryggjunni kl. 8.