Dagblað - 11.07.1925, Qupperneq 2
2
DAGB LAÐ
fjelags Reykjavíkur, en um fé-
lag þetta mætti víst með réttu
segja hið sama, er sagt er í grein-
inni um skógræktarstöðina, að
það »er ekki orðið nema svipur
hjá fyrri sjón«. Formaðurinn,
borgarstjórinn, er víst sá eini,
sem ennþá veitir því máli at-
hygli. Ég hef stungið upp á
því, að setja þvergirðingu f
dældina fyrir neðan brekkuna,
og svo sá birkifræi og reynivið-
arfræi í brekkuna, en nota hinn
hluta svæðisins á annan hátt,
eða selja hann.
Að stofna nýtt trjáfélag í stór-
um stíl, eða með öðrum orðum,
að stofna skóg hér á landi með
því að gróðursetja, má teljast
óvinnandi verk vegna kostnaðar-
ins, því fyrir skógtrje verður ?ð
pæla upp 0.6 metra á dýpt og
blanda hið upppælda lag áburði.
Fyrir gróðursetningu runnateg-
unda þyrfti að pæla upp rúm-
lega skóílustungu á dýpt og
bera á áburð. Hægt væri að
gera þetta á tiltölulega stóru
svæði, t. d. eins stóru og brekk-
an í Rauðavatnsgirðingunni, með
því að pæla upp í röðum 0.6
metra á breidd með 0.6 metra
miliibili. Kæmi slíkt til mála,
vildi ég mæla með að planta
Caragana arborescens, (Síbiriskt
baunatrje), sem getur orðið um
4 metra á hæð og vex fljóft.
Þáð er hin harðgerðasta tegund,
er hefir verið reynd hér, og
einkar falieg með ljósgrænu
laufi og gulum blómum. Rað
má sjá það í garði ráðherra Jóns
Magnússonar Hverfisgötu, f garð-
inum í Aðalstræti og fl. st.
Þannig mætti koma upp lagleg-
um trjágróðri (kjarrgróðri) með
hóflegum kostnaði.
Ein hinna erlendu trjátegunda,
síbirisk lerk, hefir þroskast
sæmilega vel í óræktaðri mold
í skóggræðslustöðinni við Grund
í Eyjafirði, og orðin rúmlega 3.
metra há á 20 árum. í gróðrar-
stöðinni á Akureyri í ræktaðri
mold er hún orðin rúmlega 4*/2
metra há á sama timabili. Vér
höfum þó enga tryggingu fyrir
því, að hún muni þroskast eins
vel annarstaðar á landinu. Fá-
einar lerkiplontur hafa verið í
Rauðavatnsgirðingunni, en eru
íyrir löngu dánar.
Kofoed-Hansen.
Npánarkouungi
sýnt banatilrseöi.
f mánuðinum sem leið, tóru
þau konungshjónin spönsku með
sérstakri lest frá Madríd til
Barcelona. Á einun stað í Cate-
lonía eru jarðgöng og rétt áður
en lestina bar þar að, fundu
varðmenn þar afarmikla sprengju
og var henni þannig fyrir komið
að kveikja mátti í henni með
rafmagni langar leiðir frá. Er þaö
talið vafalaust, að með þessu
hafi átt að stytta konungs-
hjónunum aldur, þá er lestin
rendi inn í göngin. Sprengjan
er 175 pund að þyngd og af
sömu gerð eins og þær er flug-
vélar nota.
Fleiri tilræði voru þeim hjónum
og sýnd meðan þau dvöldu í
Barcelona, enda er það miðstöð
uppreistarmanna á Spáni. En
þau komust þó ósködd frá öllum
þeim tilræðum.
Það er annars merkilegt, að
Alfons konungur skuli eigi
hafa verið myrtur fyrir löngu,
þvi að engum núlifandi þjóð-
höfðingja hefir jafn oft verið
sýnt banatilræði. En hann hefir
tekið þessu öllu með hinni mestu
rósemi sem sjálfsagðri »áhættu
stöðu sinnar« og á hann safn
af ýmsum munutn, sem standa
í sambandi við þessar morðtil-
raunir.
í tyrsta sinn var honum sýnt
banatilræði 18 mánaða gömlum.
Var þá blandað eitri í mjólkur-
flösku sem hann drakk af.
Árið 1905 var hann á ferð í
vagni um götur París ásamt
Loubet forseta. Var þá varpað
sprengikúlu á vagninn. Brotnaði
hann og hestur, sem lifliðsfor-
ingi Spánarkonungs reið, beið
bana, en alvarlegri urðu afleið-
ingarnar ekki.
Árið 1906 kvæntist hann
Enu prinsessu af Battenberg, og
er þau komu akandi frá kirkj-
unni, var sprengikúlu varpað að
þeim. Báðir ökuhestarnir voru
drepnir og vagninn brotnaði,
en þau hjón sakaði ekki.
Árið 1913 var skotið á konung
og straukst kúlan við höfuð
hans en meiddi hann ekki.
í janúar 1917 var reint að
valda járnbrautarslysi á lest
IDagBlaÓ.
j Arni Óla.
Ritstjórn. j g. Kr. Guðmundsson.
Afgrdðsial Lækjartorg 2.
skrilstofa j Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaöverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuói.
konungshjónánna skamt frá Gra-
nada.
í oktober sama ár var þeim
Machado forseta í Portugal sýnt
banatilræði í San Sebastían, en
báðir sluppu ómeiddir.
Árið 1918 var Alfons konungi
og ýmum ráðherrum hans byrl-
að eitthvert eitur. Veiktust þeir
allir mikið, en batnaði þó aftur.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður kl.
8,50. Árdegisliáflæður kl. 9,15 í
fyrramálið.
Nætnrlæknir í nótt er Guðmundur
Guðfinnsson, Hverfisgötu 35. Sími
644.
Nætnrvörður í Laugavegs Apóteki.
Tungl síðasta kvartil kl. 8,34 e. h.
á morgun.
Messur á morgun. Dómkirkjan:
Kl. 11, séra Friðrik Hallgrímsson,
og aftur kl. 5.
Fríkirkjan: Kl. 2, séra Árni Sig-
urðsson.
Lankakotskirkja: Kl. 9, hámessa
(Engin siðdegisguðspjónusta).
Tíðarfar. Hiti í morgun 8—13 stig,
kaldast í ísafirði. Breytileg átt —
sunnan stinningskaldi í Vestmanna-
eyjum og Grindayik, annarsstaðar
hægra veður og logn norðan og
austan. í nótt var talsverð rigning
víðasthvar á landinu. Úrkoman hér
6 mm. síðan í gærmorgun. í morg-
un var og víða regn og mun hald-
ast hér sunnanlands í dag og víðar.
Síldarskipin eru nú flest farin
norður. Undanfarna daga hafa far-
ið: Þorsteinn, Svanur, Alden, Jón
forseti o. fl.
Nyja Bio sýndi í gærdag íslenzku
kvikmyndina hans Lofts Guðmunds-
sonar fyrir farþega á »Franconia«.
Var sýningin allvel sótt og þótti
þeim mikið til myndarinnar koma