Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 01.08.1925, Side 2

Dagblað - 01.08.1925, Side 2
2 DAGB LAÐ óhreinsuðu gulli og silfri, nær miljón dollara virði af gull- stykkjum og átta tunnnr fullar af 20 dollara gullpeningum. Aðalfarmur skipsins var ma- hogni-viður og er talið að hann muni ekki hafa skemst neitt, þótt hann hafi legið svo lengi í sjó. Enn fremur 2000 ámur af Baccardyrommi frá Cuba og geisimikið af óhreinsuðum kopar. Merida liggur á sjávarbotni 40 mílur frá Hog Island. Er óvíða í Atlanzhafi jafn úfinn sjór og þar, því að á,þeim slóð- um slær saman Chesapeak- straumnum og Golfstraumnum. Sjávarbotninn er sendinn og skola straumarnir sandinum alla- vega og er talið líklegt að Merida hafi oft verið sandorpin og þess vegna hafi gengið svo illa að finna skipið áður. Hneykslismál í Pýzkalandi, Réttarfar Prússa fordæmt. Fyrir skemstu andaðist dr. Hoefle, fyrverandi ráðherra, i prússneska ríkisfangelsinu í Ber- Hn. Hafði hann verið tekinn fastur fyrir fjársvik. En dauði hans hefir orðið til þess að uppi hefir orðið fjöður og fit um alt Þýzkaland, til þess að fordæma hið prússneska réttar- far, því að sagt er, að fangelsis- vistin hafi drepið Hoefle. Flest blöðin hafa verið full gremju út af þessu, og prússneska þing- ið hefir skipaö sérstaka rann- sóknarnefnd í málið. Greiddu ihaldsmenn meira að segja at- kvæði með skipun nefndarinnar. — Vitni þau, sem rannsóknar- nefndin hefir látið kalla, eru á einu máli um það að fordæma hegningarstofnanir Prússa. Pann- ig sagði t. d. Hermann Múller, fyrverandi utanríkisráðherra, að meðferðið á þeim, er lentu í greipum prússneska dómsvalds- ins, væri þannig, að þeir yrði aldrei framar að mönnum. »Að vísu eru þeir ekki píndir með glóandi töngum, en það er beitt enn verri piningaraðferðum gagn- vart sálarlífi þeirrav, mælti hann. Dr. Hoefle var lasinn, þá er hann var hneptur í varðhald, og er fullyrt, að það hafi flýtt fyrir dauða hans, að hann fekk eigi fullnægjandi læknishjálp, og að illa og ódrengilega hafi verið farið með hann. Blöðin benda á, að als þannig sé farið með fyrverandi ráðherra — ekki einu sinni ráðherra úr flokki jafnað- armanna, því að Hoefle var mið- flokksmaður — hvers megi þá vænta um meðferð á Pétri og Páli, sem lendi í klónum á prússnesku yfirvöldunum. Borgin. Sjávarföll. Siðdegisháílæður kl. 3,8. Ardegisháflæður kl. 3.40 í nótt. Næturlæknir Konráð R. Konráðs- son, Pingholtsstræti 21, simi 575. Aðra nótt Daniel Fjeldsted Lauga- veg 38. Simi 1561. NæturTÖrður í Reykjavíkur Apó- teki. Tíðarfar.Norðlæg átt var um land alt í morgun, en hvergi hvass og alstaðar heiðskírt. Heitast var í Hornafirði, 12 stig, víöast annar- staðar 10—11 stig. í Kaupmannahöfn var 14 stiga hiti, i Angmagsaiik og á Jan Mayn voru 4 stig. Loftvægislægð var yfir Skandinavíu. Spáð er hægri norð- lægri átt og þurviöri á Suöurlandi. Messur á morgun. Dómkirkjan kl. 11 sira Friðrik Hallgrímsson. Landakotskirkja. Kl. 9. Hámessa. (Engin siðdegismessa). Lækuarnir Jón Hj. Sigurðsson og Mathías Einarsson verða báðir fjar- verandi um þriggja vikna tima. Pró- fessor Sæm Bjarnhéðinsson gegnir störfum fyrir Jón á meðan, en Ólafur Jónsson fyrir Matthias. fley er nú byrjað að flytja til bæ- arins. Komu tveir bátsfarmar at töðu frá Akranesi núna í vikunni. Er lítil eftirspurn að heyi ennþá ðg seldist þessi taða mjög treglega og fyrir lágt verð. Brauðsölubúðlr verða aðeins opn- ar til kl. 11 á morgun vegna frí- dags verslunarmaDna. Ætti fólk að hyggja aö þvi i tíma. Suðurland fór til Borgarness í morgun með fjölda farþega. Par á meðal var Jón Leifs hljómlistar- fræðingur og Annie Kona hans. Fara þau siðan gangandi upp Borg- $)ag6laö. Arni óla. Ritstjórn: G. Kr. Guðmundsson. Afgreiðsla L!ekjartorg 2. skrii'stofa Sími 744. Rjtstjórn til viðlals kl. 1—3 siðd. Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. Anglýslngum í Dng- lilaðið má skila í prentsmiðj- una Gutenberg eða á afgreiðsln blaðsins. Sími 744. BQT Rakarnstofa Einars J. Jónssonar er á Laugaveg 20 B Inngangur frá Klapparstíg. arfjörð og norður í Húnavatnssýslu. Ætlar Jón að kynna sér íslenzk kvæðalög og alþýðusöngva, sem hann hyggur að lielzt sé að flnna meðal almennigs i sveitunum. Ætlar hann að skrifa niður lögin eins og hann heyrir þau sungin. Búðum verður lokað kl. í 4 dag og á mánudaginn verða allar verzl- anir lokaðar allan daginn vegna þess að frídag verzlunarm. (2. ág.) ber að þessu sinni upp á sunnud. Eldur kviknaði i gær í trésmiða- verkstæði Kristins Jónssonar vagna- smiðs. Var slökkviliðið kvatt til hjálpar og brá það fljótt við að vanda. Var eldurinn slöktur áður en teljandi skemdir urðu að. Stórhýsi S. D. Aðventista var reist P^ær. Er það stórt og myndarlegt hús og á að verða mjög vandaö að öllum frágangi. Clementina kom inn til Pingeyrar í gær með um 100 tn lifrar. SjÓTátryggingarfélag íslands hefir nýskeð aukið starfsvið sitt með því aö taka aö sér allskonar bruna- tryggingar eins og auglýst heflr verið. Axel Tulinius hefir veitt félaginu forstöðu frá stonfun þess og sýnt mikinn áhuga i starfi sínu. Hefir felagið dafnað vel undir stjórn hans og er nú orðið mjög öflugt tryggingarfélag. Tulinius Hef- ir einnig annnast brunaryggingar fyrir »Nordisk Brandforsikring« en lét af því starfi 1. júlí s. 1. þegar brunatryggingardeild Sjóvátrygg- ingarfélagsins tók til starfa, svo að hann geti eingöngu unniö aö við- gangi þessa innlenda félags.

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.