Dagblað - 12.08.1925, Qupperneq 1
Miðuikndag
12. ágúst
1925.
I. árgangur.
m.
tölublað.
ENDA þótt þrifnaðar- og heil-
brigðismálin hafi færzt í
mun betra horf hér í höfuð-
staðnum hin síðari árin, er það
deginum Ijósara, að ennþá er
mörgu ábótavant í þessum efn-
um, svo sem drepið heíir verið
á í Dagblaðinu áður.
Skulu hér nú tekin nokkur
atriði fram, þau er miklu um
valda hvert stefnir.
Frá hverju einstöku húsi í
bænum er við og við ekið als-
konar úrgángi ösku og rusli,
sein safnast hefir frá heimilun-
um. Hefir bæjarfélagið menn í
þjónustu sinni sem annast verk
þetta. Hverjum húseiganda er
skylt að hafa safnþró eða lokað
flát við hús sitt, þar sem öllu
úrkasti er safnað. Skarnkassar
þessir eru ekki alls staðar í góðu
lagi og standa víða opnir svo
ódaun leggur um nágrennið, eða
þeir eru of litlir, svo útúr flýtur
áður en hreinsað er. Á þetta sér
einkum stað þar sem margbýli
er. Þessu er hægt að kippa í
lag, þótt þeir sem hlut eiga aö
máli séu kærulausir í þessu efni,
með því að lögskipa vissa gerð
og stærð af skarnkössum, sjá
nm að þeir fáist jafnan keyptir
sanngjörnu verði, og ganga svo
ríkt eftir að þeir verði notaðir
á réttan hátt. Það má alls ekki
kella í þá skólpi eða vatni, því
af þessu leggur ódaun ef heitt
er í veðri, og jafnframt skemm-
ast kassarnir einkum að vetrin-
um í fróstum.
Æskilegast væri að skarnakst-
ur .færi fram að nóttu, eða
soemma að morgni dags, en
ekki um hádaginn, svo sem nú
á sér stað, og að alls þrifnaðar
sé vandlega gætt við hreinsnnina
°g aksturinn.
Enn þá standa opnar saur-
íennnr með fram götum, og er
mikil óhollusta að því, ekki sfzt
f>;rir b°rnin» sem velta sér oft
óátalið í götunni. — Var mikil
bót aö því er opna rennan við
Jílappárstíg var afnumin, um
leið og gatan var endurbætt,
þótt viðar blasi enn við sama
sjónin, t. d. í Miöbænum, við
Tjarnargötu, í Grjótaþoipinu og
í Vesturbænum.
Við Tjarnargötu eru sum hús-
in svo fúin og hrörleg, að varla
geta þau talist hæfir mannab'ú-
staðir, og stingur það mjög í
stúf við önnur vegleg hús sem
við sömu götu eru, enda er og
þrifnaðurinn þar eftir.
Þar sem jafn margbýlt er og í
»Pólunum«, þarf alls þrifnaðar
að gæta, og er sárt til þess að
vita hvernig umgengnin er víða
í þeim sambýlishúsum bæarins
og þó einkum í kringum þau.
Breitt svæði er á mörgum
stöðum milli gatna og húsagarð-
ur stór, við mörg hús. Er þar
oft safnað alls kyns rusli, smáu
og stóru, og mætti benda á það
hér og þar, þótt ekki verði það
gert að þessu sinni.
Óþurkarnir í vor og sumar
hafa verið til stórtjóns fyrir
verkun framleiðslunnar, en einu
hef eg þó veitt eftirtekt, og það
er, að heilbrigði manna hefir
verið með bezta móti, og má
það líklega þakka rigningunum
að einhveju leyti, sem skolað
hafa burt óhreinindum, er í
hitatíð mundu hafa eitrað loftið.
En hitatíö getur komið hér sem
annarsstaðar, og þá er sjálfsagt
að farið yrði sem fyrst eftir þeim
bendingum sem getið er um hér
að framan.
íþróttafréttir.
Sundskálinn í Örfirisey er nú
opinn til daglegra afnota fyrir
bæjarbúa. Skálavörður hefir ver-
ið ráðinn, og er hann þar alla
daga til eftirlits og aðstoðar.
Sundsýningin á sunnud. ætti
að hafa opnað augu margra fyrir
listgildi sundíþróttarinnar, auk
þess heilnæmis, sem henhi er
samfara. Bæjarbúar, og þó eink-
um unga fólkið, ætti ekki að
telja sporin út í Örfirisey, og
því siður að kveinka sér við, að
fá sér sjóbað. Sund og sjávar-
böð eru ein bezta heilsubót, og
engum nauðsynlegri en borgar-
búum, sem hafa miklar kyr-
setur og innivinnu.
Álafosslilaupið fór fram á
sunnudaginn, og tóku aðeins 2
menn þátt f þvi: Magnús Guð-
björnsson og Ingimar Jónsson
bakari. Magnús varð hlutskarp-
ari, og rann hann leiðina á 1
klst. 11 mín. og 42 sek., og er
það aðeins skemri tími en í
fyrra, en þá vann hann lika
þetta hlaup. Ingimar var tæp-
um 15 mínútum lengur á leið-
inni. — Fremur lillum íþrótta-
áhuga lýsir það, að ekki skuli
nema 2 mena taka þátt í jafn
frækilegu hlaupi og Álafoss-
hlaupið er. 1 fyrra voru þeir
heldur ekki nema tveir, sem
tóku þátt í hlaupinu, en þá var
veður mjög slæmt og óhagstætt.
Núna var veðrið eins og á varð
ljosið, svo ekki þurfti það að
draga úr þátttökunni.
íþróttamót líorgfirðinga var
fjölment, en þó ekki eins og
stundum áður. Venjulegar íþrótt-
ir fóru þar fram, en kappsláttur
var ekki háður að þessu sinni.
— Kappglíma var þar háð, og
tóku 7 menn þátt í henni. Hlut-
skarpastur varð Hannes Ólafs-
son á Hvítárvöllum, með 6 vinn-
inga. Glíman var yfirleitt ljót,
því engir gllmdu vel, nema
Hannes og Þorsteinn Vilbjálms-
son frá Efstabæ.
100 metra hlaup, 400 metra
hlaup og víðavangshlaup voru
þreytt, og varð Þorsteinn frá
Efstabæ fljótastur í háðum lengri
hlaupunum. Þorsteinn er efni-
legur íþróttamaður og liklegur
til meiri frama.
Kapprelðar voru haldnar í
sambandi við íþróltamótið, var