Dagblað - 14.08.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
hann alist upp í öðru landi
en Noregi. Þar vaknaði hann
snemma til iþróttaáhuga og
þjöðmetnaðar. Skorti þar eigi
fyrirmynd, sem sæmd væri í að
fylgja, þar sem nafni hans var,
Tryggvason. Er all-langt síðan
farið var að spá því, að þar
sem Ólafur krónprins er, myndu
Norðmenn hafa eignast »skíð-
konung« á nýl Var það meðan
Ólafur gekk i gagnfræða- og
mentaskóla, og vann hann þá
mörg verðlaun á ýmsum skiða-
mótum. Auk þess stundaði hann
flestar aðrar tegundir íþrótta, og
var jafnan framarlega í flokki.
Hann er einnig »sækonungur«,
og hefir unnið verðlaun bæði í
sundi og kappsiglingum. í vor
haiði Ólafur lokið heræfinga-
námi og varð herforingi við
herdeild norður í Finnmörku.
Meðan hann var þar nyrðra í
sumar, kepti hann í sundi við
hóp ungra hermanna, og bar
hann langt af þeim öllum í 1000
stiku sundi.
Nýskeð (80/7) var haldið kapp-
siglingamót mikið í Stafangri.
Sóttu þangað' margir frægustu
siglingamenu Norðurlanda. Einn
þeirra var Ólafur Hákonarson,
með seglsnekkju sina »ÓsIó«
(6 m. R. Klasse). Stýrði Ólafur
sjálfur snekkju sinni, og varð
»Ósló« sú önnur í röðinni í
þeim flokki (6 metra lengd, 22
fermetra seglflötur). »Una« II.
frá Ósló varð örlítið á undan.
Ólafur konungsefni hefir átt
því Iáni að gagna, að alast upp
á endurreisnaröld íþróttalífsins
í Noregi. Hann varð einnig
snemma snortinn af þeim holla
þjóðmetnaði og sjálfstæðisþrá,
sem einkent hefir alt þjóðlíf í
Noregi síðan 1905. Hann er
talinn drengur góður og sannur
Norðmaður. Það er því eigi að
ástæðulausu, að hann er orðinn
ástmögur þjóðar sinnar. Verður
hann óefað fyrirmynd norsks
æskulýðs á sínum tíma, engu
síður en nafni hans, Ólafur
Tryggvason. h.
Lyra kom til Vestmannaeyja í nótt
og átti að fara þaðan fyrir hádegi
í dag. — Bræðurnir Herluf og
Oscar Clausen fara með Lyru til
Noregs.
ilorgin.
SjáTnrföll. Siðdegisháflæður kl.
2,3 Ardegisháflæður kl. 2,35 í fyrra-
raálið.
Nætnrlæknir í nótt er M. Júl. Magn-
ús, Hverflsg. 30. Sími 410
Næturvörðnr í Reykjavíkur Apó-
teki.
Tíðarfar. Suðlægátt var víðast í
morgun og úrkoma hér sunnan-
lands. Heitast var i Stykkishólmi 11
st., í Reykjavík, Vestmannaeyjum,
Hornafirði, Seyðisfirði, Akureyri og
á Hólsfjöllum 10 st. alstaðar. Á
Raufarhöfn og ísafirði 8 st. í Fær-
eyjum var 11 st. hiti, Angmagsalik
6ogá Jean Mayen 5 st. — Loftvægis-
lægð fyrir vestan land. Spáð suð-
lægri átt með úrkomu á Suður og
Vesturlandi og einnig sumstaðar
norðan og vestan lands.
Lokaliljómleiknr þeirra H. Schmidt-
Reineche og Iíurt Haeser er í kvöld
kl. 7,30 eins og auglýst hefir verið.
Eftirþeim ágætu viðtökum að dæma
sem þeir félagar fengu um daginn,
má búast við mikilii aðsókn i kvöld.
þegar þess er líka gætt að verðið
er niðursett = að eins 1,50 og 2 kr.
sætið. — Sú breyting verður á hinni
prentuðu skrá, að í staðinn fyrir
4. lið (Spohr-konsertinn) kemur
Romance eftir d’Ambrosio ng Sænsk
þjóðlög eítir Fusella. Konsertinn
verður að byrja á slaginu vegna
þess að tíminn er takmarlcaður.
Mjólk er nú farin að minka tals-
vert og er jafnvel strax farið að
bera á mjólkurskorti, þótt hún sé
flutt víðsvegar að. — Mjólkurneytsla
fer vaxandi meðal Reykvíkinga og
er það gleðilegur vottur þess, að
menn kunna að meta jafn holla
fæðu og mjólkin er, og spara þá
eitthvað annað óhollara i staðinn.
Mjólkurverðið er heldur ekki svo
hátt nú, að almenningur geti ekki
neytt hennar.
Skaftfellingur hleður i dag til
Vestmannaeyja og hafnanna í Skafta-
fellssýslum. Fer haun sennilega héð-
an i nótt.
Gnllfoss fer héðan ki. 8 í kvöld
til ísafjarðar. Meðal farþega verða:
Carl Proppé framkv.stj. og frú, Carl
Sæmundsen kaupm., Karl Olgeirs-
son kaupm. á ísafirði, Guðm Karls-
son, Sigurður Skúlason, Svane lyf-
sali og frú.
Jón J. Kaldnl, hlauparinn frægi
er kominn hingað til bæjarins fyrir
skömmu, eftir margra ára dvöl er-
lendis. Ætlar [hanní að setjast liér
að og hefir keypt ljósmyndastofu
Jóhönnu Pétursdóltir, á Lauga-
TDacjBlað.
Bæjnrmálablad. Fréttnblað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjariorg2. Sími 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Áskriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
gfgjT" Rskarastofa Einars J.
Jónssonar er á Laugaveg 20 B
Inngangur frá Klapparstíg.
tJtsjirniignar rósir.
Blómaverslunin Sóley.
veg 11. Jón hefir mikla æfingu i
Ijósmyndagerð því hann hefir lengst
af unnið að henni erlendis.
Eimskipnfélag' íslnnds hefir nú rið-
ið á vaðið, með að ákveða að næt-
urblæstri skipanna verði hætt. Hér
eftir verður ekki blásið í eimpípu
skipa félagsins né rikissjóðsskip-
anna ef þau fara eftir kl. 8 að
kvöldi. í stað þess verður hringt
klukku í skipunum og burtfarar-
tíminn gefinn til kynna á þann hátt.
— Bæjarbúar munu vera þakklátir
félaginu fyrir þessa nýbreytni og
vonandi taka önnur skipafél. hana
upp.
Björn Bjarnarson hreppstjóri í
Grafarholti er 69 ára i dag.
Ari kom af veiðum í raorgun
með 120 tn. lifrar. Um helmingur
aflans var vænn þorskur en hilt
mest alt ufsi. — Hávarður Isfirð-
ingur kom inn til ísafjarðar í gær
eftir 12 daga útivist og hafði um
100 tn. lifrar.
Upp að Kolviðarlióll bauð Hjúkr-
unarfél. Likn um 40 börnum í gær-
morgun. Voru þau þar uppfrá all-
an daginn og skemtu sér ágætlega.
2 hjúkrunarkonur fóru með börn-
unum til að gæta þeirra.
Peningar:
Sterl. pd.............. 26,25
Danskar kr............ 123,70
Norskar kr............. 99,89
Sænskar kr............ 145,41
Dollar kr............... 5,42
Fr. frankar ........... 25,54
Gullmörk.............. 128,71