Dagblað - 07.09.1925, Blaðsíða 3
DAGBLAÐ
3
gleði! Má vel vera. að þeir sjálf-
ir og sumir aðrir telji þetta
meinlaust gaman, eða jafnvel
þakkavert frá vorri hálfu. En
mér virðist það í fyllsta máta
óviðeigandi, svo eigi sé harðari
orðum um það farið. h.
E. 8. Grein þessi var rituð
áður en ferðasaga Sendiherrans
birtist í' »Morgunbl«. í gær. Er
frásögn hans all fróðleg og
skemtileg, en haggar ekkert við
undirstöðuatriðum deilu vorrar.
Enda er í frásögn þessari al-
staðar notað orðið »ókannað«,
eins og eg hefi bent á, aö rétt
muni vera. — Aftur á móti
virðist ýmislegt athugavert við
rannsöknarför þessa, og er það
þá fyrst, að þar eru vegalengdir
sýndar liðlega tv'ófalt lengri en á
öðrum kortum, (t. d. Thorodd-
sena og D. Bruuns). Frá tjald-
stæði þeirra félaga við »Heljar-
gjá« og á leiðarenda fyrir aust-
an Kerlingar eru fullir 25 km. í
beina línu. Og frá Köldukvisl
höfðu þeir riðið í 4 st. um sæmi-
lega greiðfæra vegu, og mun
óefað mega telja þá vegalengd
um 20—25 km. með greiðum
seinagangi. Eru þá samkvæmt
þessu fullir 50 km. úr Illugaveri
og inn á Kerlingar. En á öðrum
kortum nær vegalengd sú langt
inn á Vatnajökul (Hágöngur).
— Annað er hitt, að sé notaður
mælikvarði sendiherrans á upp-
drætti hans, þá hafa þeir félag-
ar farið fulla 70 km. í einum
áfanga um hraun og jökla og
öræfi — eintómar torfærur —
staðið þó við hingað og þangað,
gert ýmsar athuganir, tekið
myndir, gert riss að korti, mælt
hæðir o. s. frv., — og alt þetta
á 16—17 stundum! Sé þetta rétt,
þá er það óefað afreks-met, sem
er fyllstu virðingar vert og við-
orkenningar, a. m. k. tel eg
það meira virði en landafundi
sendiherrans. h.
Þoltn skall á hér í Rvik og víðar
sunnanlands í gærkvöld; var hún
svört um tima, og er vonandi, að
ekki haíi orðið slys að.
Ij|»enrfos8 kemur hingað í dag frá
Englandi. Kom við í Grindavík og
losaði par Yörur.
Borgin.
Sjávnrföll. Síðdegisháflæður kl.
6,35 í kvöld. Árdegisháflæður kl.
6,58 í fyrramálið.
Kætnrlæknir Magnús Pétursson,
Grundarstíg 10. Sími 1185.
Næturvörður í Reykjavíkur Apó-
teki.
Tíðarfar. í gær brá til suðvestan-
áttar, og gekk hann með skúrum
hér í Reykjavík og í nágrenni; einn-
ig á Akureyri. Hitinn var 8—10 st.
í dag er vestan- og norðanátt víð-
asthvar á landinu, gott veður um
land alt, en víða kaldi. Loftvog ört
stígandi i Rvík og Vestmannaeyjum,
annarsstaðar fallandi. Hitinn mis-
jafn, 4—9 st., á Hólsfjöllum 0 st.
Veðurspá: purt og hægt veður, en
vindstaða breytileg.
frentftrafélagið er að verða eins
óheppið með veður og Skautafélagið
var i gamla daga. í gær var rigning
og þoka og gat það þvi ekki farið
skemtiferð upp að J ögbergi eins
og ákveðið var.
Jón A. Egilson skrifstofustjóri er
sextugur í dag.
Botnvörpungarnir. Njörður kom
af veiðum í fyrradag með 75 tn.
lifrar og Menja í morgun með 87 tn.
Síldveiðasklpin eru nú farin að
tínast hingað. íslendingur kom í
fyrradag og hefir hann aflað yfir
4000 tn. ísafold kom í gær og ís-
björnin i morgun.
Lyra er væntanleg til Vestmann-
eyja í dag og hingað í nótt eða
fyrramálið.
Frá bæjarstjómaríundl
---- Nl.
Björgunarshipið Geir, eða
eigendur þess, höfðu farið fram
á að fá uppgjöf á 1000 kr. út-
svari, sem lagt var á það þetta
ár, og að það yrði útsvarslaust
framvegis vegna taps á rekstrin-
um siðustu 5 árin. Telur félagið
árlegt tap 70—80 þús. krónur
og muni þaö láta skipið fara
héðan samstundis ef það fái-
ekki þessa ívilnun. Hafði meiri
hluta fjárhagsnefndar, (F*. Sv.
og J. Ól.) ekki þótt ástæða til
að sinna kröfunni, en minni
hluti (K. Z.) lagði til, að fella
niður útsvarið 1925 og leggja
ekki á skipið næstu 4 ár, gegn
því að félagið skuldbindi sig til
að láta Geir, eða annað jafngott
skip, verða hér að staðaldri þann
tíma allan.
Borgarstjóri mælti með tillögu
sinni og taldi líklegt að vátrygg-
ingargjöld skipa mundu hækka
ef Geir færi héðan og mundi það
koma niður á almenningi í
hækkuðu vöruverði. Skipaeig-
endum þætti það mikilsvert, að
hér væri gott björgunarskip
vegna öryggis flutningaskipanna
og héldi það m. a. farmgjöld-
um niðri.
þórður Bjarnason taldi það
barnaskap að halda, að félagið
hefði skipið hérna lengur en
það teldi sig hafa eins gott af
því og hafa það annarsstaðar.
Félag sem tapaði 70—80 þús.
kr. munaði lítið um eitt þúsund
krónur og vegna þess eins mundi
skipið ekki verða tekið héðan.
Áleit hann nauðsyn á að ís-
lendingar ættu sjálfir björgunar-
skip, svo við þyrftum ekki að
lifa á bónbjörgum og vera háð-
ir dutlungum annara. Áréttaði
B. Ól. ummæli Þórðar og sagði
að farmgjöld og vöruverð mundi
ekki hækka þótt Geir færi héð-
an, en áleit annars, að það væri
fremur verk landstjórnarinnar
en bæjarstjórnar að hlutast til
um að hér væri björgunarskip
til taks.
Stefán J. Stefánsson áleit bæj-
arstjórnina ekki vera réttan aðila
þessa máls. Hún gæti ekki, lög-
um samkvæmt, úrskurðað hverj-
ir væru útsvarsskildir eða ekki.
Það væri hlutverk Niðurjöfnun-
srnefndar. Bæjarstjórnin gæti að-
eins felt útsvarið niður, en ekki
ákveðið að félagið skuli vera út-
svarslaust næstu árin. Rétta leið-
in væri að, eigendur Geirs sneru
sér til Alþingis með þessa und-
anþágu-kröfu eins og t. d. Eim-
skipafélag íslands hefði gert.
Héðinn Valdimarsson kvað
hættulegt að gefa eigendum Geirs
þessa ívilnun, vegna þess for-
dæmis sem með þvi væri gefið.
Önnur félög gætu komið á eftir
og krafist útsvarsleysis og talið
sig hafa sama rétt til þess og
eigendur Geirs, og befðu þau
óneitanlega mikið til síns máls
ef fordæmið væri áður gefið.