Dagblað - 10.09.1925, Side 2
2
DAGBLAÐ
Bannið í Noregi.
Blaðið Stormur flutti nýskeð
grein úr norsku blaði, »Bergens
Aftenblad«, er átti að sýna, hví-
lík smán og óhæfa bannið væri
þar í landi. Pótt undarlegt megi
virðast, flutti Stormur grein-
ina á norsku. Ritstjórinn »nenti
ekki« að snara henni á íslenzku.
Svo mikill var hans áhugi fyrir
góðum málstað.
Greinar af þessu tagi standa
þráfaldlega i norskum andbann-
ingablöðum. Fyrir skömmu flutti
stærsta blað Noregs mjög svæsna
grein af þessu tagi. Það var
Osló-blaðið »Aftenposten«, blað
bruggara og brennivínssala, ríkt
blað og voldugt. Nafnkunnur
læknir norskur, Birger.Överland
að nafni, skrifaði í Björgvinjar- *
blaðið »Dagen« og andmælti
»Aftenposten«. Överland læknir
er alkunnur um allan Noreg,
og er á sífeldu ferðalagi fyrir
berklavarnarfélögin. Hann ritar
m. a. á þessa leið:
»Sjálfur hefi ég aldrei verið
neinn elddýrkandi bannsins. Gn
ég hefi reynt að hafa augun
með mér, til þess að geta mynd-
að mér sjálfstæða skoðun um
áhrif bannsins. Ég ætlaði mér
sannarlega ekki að takast á
hendur þá ábyrgð, að reyna að
halda við banni, sem hefði
gagnstæð áhrif því, sem til var
ætlast. — En það sem ég hefi
séð og athugað, sérstaklega síð-
astl. ár, virðist mér benda í alt
aðra átt heldur en greinin í
»Aftenposten« skýrir frá. Það
fellur í hluta minn, að vera á
sífeldu ferðalagi — bókstaflega
um allan Noreg. Ég skal fús-
lega játa, að hér er ekkert fyrir-
myndarástand í bindindismál-
um. En á hinn bóginn verður
niðurstaðan ætíð sú, að á flest-
öllum stöðum sé um gleðilega
framför að ræða«.
Peningar;
Sterl. pd.............. 24,00
Danskar kr............. 123,84
Norskar kr..............108,98
Sænskar kr............. 132,82
Dollar kr.............. 4,96‘/*
Gullmörk............... 117,89
Fr. frankar ............ 23,53
Borgin.
Sjáyarföll. Síödegisháflæður kl.
11,40 í kvöld. Árdegisháflæður kl.
12,20 á morgun
Næturlæknir Jón H. Sigurðsson,
Laugaveg 40. Sími 179.
Nætnrvörður í Rvikur Apóteki.
Tíðarfar. Ilægviðri um land alt. f
Reykjavík, Grindavík, Akureyri og
ísafirði var 9 st. hiti, Vestmannaeyj-
um, Stykkishóimi og Raufarhöfn 8,
Hornafirði 6, Hólsfjöllum 4 og
Seyðisfirði 3. í Færeyjum var 7 st.
hiti, Jan Mayen 4 og Angmagsalik
7 st. í gæfkvöld. Loftvægishæð 768
fyrir sunnan land. Spáð er hægri
suðvestlægri átt og þurviðri á
Norður- og Austurlandi.
Sigurðnr Skagfeldt söngvari gaf
mönnum kost á hér að heyra hina
háu og hljómmiklu tenórödd sina í
Nýja Bio í fyrrakvöld. Söng hann
islenzk iög eftir Svb. Sveinbjörnsson
(»Árniðurinn«) Bj. Rorsteinsson
(»Taktu sorg mína« og »Systkinin«)
og S. Kaldalóns: (»Alfaðir ræður«),
pótti mikiö koma til peirra, eink-
um hins síðasta. Söngvarinn ieikur
sér að háum tónum, ogkom pað bezt
fram í Arie úr op. «E1 Trovadore«,
Gral-Fortællingen úr op. Lohengrin
og Bajadser er hann tók aukalega,
hve frábærilega efnilegur ópera-
söngvari liann er.
Var hann margoft kallaður fram
að maklegleikum.
Skagfeldt fer héðan með Lyru í
dag og óskar Dagbl. honum heilla á
þroskabraut hans.
Frú Ilenriette Strindberg, söng í
siðasta sinn i gærkvöid fyrir fullu
húsi áheyrenda. Hefir söng hennar
aldrei verið eins vel tekið og varö
hún að endurtaka sum lögin og gaf
að lokum aukalag: »Svarta Rosor«,
eftir Sibelius. Áheyrendur sýndu
frúnni pakklæti sitt m. a. með fjölda
blómvanda er henni bárust. Brú
Strindberg hefir unnið hér almenn-
ings hylli fyrir söng sinn og er gott
þegar slíkir gestir sækja okkur heim.
þyzku stúdentarnir sungu í gær-
kvöld á Arnarhóli og var par mikill
mannfjöldi samankominn að hlusta
á pá. Sungu peir mörg lög og fjörug
og var söngur þeirra nokkuð frá-
brugðinn pví sem við höfum átt að
venjast. í dag halda peir til Ping-
valla og paðan austur um sveit-
ir, en koma hingað aftur áður en
þeir leggja upp í ferð til Norður-
landsins.
Síra Bjarni Jónsson, dómkirkju-
prestur er nú kominn til Rómahorg-
ar. Sat hann fyrst á kirkjufundi í
Stockhólmi, en fór svo þaöan í
suðurför.
V)ag6laé.
Jtæjarmálablad. Fréttnblað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Snæfellsför.
Snæfell hæsta fjall á landinn?
Frh.
Veður var heiðskýrt en all-
hvass á vestan og 15° hiti C. —
Okkur leizt leið sú, er okkur
hafði verið vísað til upp Fellið,
all-óárennilega brött og erfið,
svo við hugðum finna aöra
hægari og héldum því vestur
á við, skáhalt upp fjallið. En
sú varð raun á, að við fórum
mun verri leið en hin hefði
reynst, það sáum við er upp
kom. Snarbrattar grjótskriður
voru mestmegnis á leiðinni og
mjög erfiðar, bæði vegna bratt-
ans og svo fyrir það, hve laus-
ar þær voru. Þið virtist oft eins
og alt ætlaði að hrynja niður.
Eftir tvær og hálfa klukkustund
vorum við komnir upp að jökul-
hettunni, sem vera mun nálægt
einn fjórði partur. af hæðinni
og þar var stormurinn afskap-
legur, svo að hann reif skara
eins og mjöll. Upp jökulhúfuna
vorum við eigi meira en hálfa
klst. Þar var brattinn mun
minni og markaði þægilega fót-
um í snjóinn. Svo slotaði storm-
inum mikið og alt gekk greið-
ara. — Af Snæfelli er dýrðleg
útsjón. Til norðausturs og aust-
urs sér víða um Hérað, fjall-
garðurinn, sem aðskilur Firði
og Hérað, með öllum sínum
tindum, sem alt voru gamlir
kunningjar, í suðaustri Þrándar-
jökull og Hofsjökull, í suðri
Heinabergsjökull, Eyjabakka-
jökull og Brúarjökull, eða einu
orði sagt Vatnajökull, þessi ó-
endanlega mjallhvíta breiða, meö
skriðjöklum niður á hásléttuna.
í suðvestri gnæfa Kverkfjöllin
í norðurbrún jökulsins á milli