Dagblað - 06.10.1925, Síða 1
Priðjudag
6. október
1925.
I. árgangur.
205.
tölublað.
JÁRNBRAUTARMÁLIÐ er
eittstærsta þjóðmálið, sem nú
er á döfinni, en fremur hljótt
hefir verið um það núna und-
anfarið. Hefir svo jafnan verið
frá því það komst fyrst til um-
r*ðu, að aðra stundina hefir
það verið rætt og jafnvel rifist
um þaö af kappi, en hinn tím-
ann ekki á það minst. Samt eru
það margir, sem telja sjálfsagt
að járnbraut verði lögð hér áð-
nr en langt um liður, það sé
aðeins timaspursmál hvenær hún
komi, en í mörg ár geti það
"varla dregist hér eftir.
Þegar talað er um að leggja
flér járnbraut, er altaf átt við
járnbraut frá Reykjavík austur
^ Suðurlandsundirlendið og hef-
ir marg oft verið athugað hvaða
leið væri heppilegust og leiðirn-
ar mældar aftur og aftur.
Siðasta mælingin á væntan-
*egu járnbrautarstæði var gerð
sumarið 1923 af Norðmanninum
Sverre Múller og lagði hann ein-
dregið til, að járnbrautin yrði lögð
skemstu leið austur yfir HelLis-
beiði. Það væri styzta leiðin sem,
hægt væri að fara og brautin
þess vegna ódýrust.
Flestir munu nú hallast að
þeirri skoðun, að sjálfsagt sé að
fara þá leið þegar járnbraut verði
gerð austur á Suðurlandsundir-
lendið, en mikið álitamál er,
hvort það sé í raun og veru
hagkvæmasta leiðin. Hér er á
fleira að líta en eingöngu styztu
feið, og þá fyrst og fremst það,
að sem mest not geti orðlB að
Arautinni. Það er því mikilsvert
atriði að brautin liggi sem mest
um sveitir eða þar, sem góð
skilyrði eru fyrir nýbyggingu
svo flutningarnir geti orðið sem
mestir og hægast að koma þeim
áleiðis. — Það er öllum vitan-
^egt að Hellisheiðin er mjög ó-
^eppileg með tilliti til þessa, því
^ þeirri leið er flutningaþörfin
sama og engin fyr en komið er
anstur yfir fjall. Alt öðru máli
vœri að gegna ef farin væri svo
nefnd »norðurleið«, sem eitt sinn
var talin nærri sjáifsögð, en þá
lægi brautin upp Mosfellsdal og
hægustu leið austur í Þingvalla-
sveit. Á þeirri leið er óslitið gras-
lendi nærri alla vegalengdina og
það einna mesta hér nærlendis.
Gróðursælir og kjarnmiklir gras-
flákar breiðast þar út til allra
átta, óræktaðir og illa notaðir,
og biða þess eins, að samgöngur
batni og framtak athafnamann's-
ins fái þar að njóta sfn.
Einnig er á það að lfta að fólks-
straumurinn til Pingvalla vex
með ári hverju og mundi þó
verða enn meiri ef hægara væri
að komast þangað eftir hentug-
leikum hvers eins. Járnbraut
þangað austur, gæti því haft mjög
miklar tekjur af fólksflutningum
og eins og nú standa sakir er
ekki hægt að búast við öðrum
arðvænlegri flutningum. Yrði
járnbrautin lögð syðri leiðina
færi hún algjörlega á mis við
þann tekjustofn, sem Þingvalla-
ferðirnar geta verið, en arður af
þeim flutningum mundi áreið-
anlega vega mikið raóts við það,
sem stofnkostnaður yrði dýrari
ef norðurleiðin yröi valin.
Nokkurt álitamál er það hvort
enn er timabært að fá járnbraut
lagða hér á landi, og hvort ekki
væri heppilegra að endurbæta
vegina svo að þeir yrðu færir
bifreiðum bæði sumar og vetur.
Til þess að járnbraut geti
svarað kostnaði þurfa búskap-
arhættirnir mjög að breytast og
framleiðsla landafurða að marg-
faldast við það, sem nú er.
Erlendis eru bifreiðarnar orðn-
ar skæðir keppinautar járnbraut-
anna bæði um fólks- og vöru-
flutninga og má jafnvel búast
við, að þær nái yfirtökunum,
eftir því sem þær eru endur-
bættar-og þó einkum ef þær
yrði að mun ódýrari í rekstri
en þær eru nú. — Má einnig
búast við, að það sama yrði hér
uppi á teningnum, og eins og
landshættir eru, virðast þær geta
fullnægt flutningsþörf vorri fult
eins vel og járnbrautir.
Járnbrautargerð er svo mikið
stórmái á okkar mælikvarða að
það verður að athugast frá öll-
um hliðum og er mikið í húfi
að í engu sé þar rasað fyrir
ráð fram. —
-m.-w.
Að mjólka vel. Flestum er
kunnugt, að það er nauðsynlegt
að mjólka kýrnar vel. Bæði hefir
sjálf kýrin gott af því, að júfrið
sé alveg tæmt, og svo verður
mjólkurbunan feitari og feitari,
unz júfrið er alveg tómt.
Á dönskum búnaðarskóla hefir
nýlega verið birt skýrsla um
þetta atriði. Mjólkurfitan reynd-
ist á þessa leið, talið í pct.:
1 fyrstu bununni . . 3,90 %
Eftir 1 liter . , . . 4,10 —
— 2 — . . . . 5,00 —
— 3 — . . . . 5,60 —
— 4 — . . . . 5,90 —
— 5 — . . . . 6,10 —
— 6 — . . 6,30 r-
— 7 — . . . . 7,05 —
— 8 — . . 8,50 —
og í seinustu dropunum 9,70 —
Það er þvi áríðandi að mjólka
kýrnar vel og rækilega.
Svo eru lög sem hafa tog.
Pýzkt smyglaraskip, »Nord Fries-
land«, var tekið með Noregs-
ströndum fyrir alllöngu. Er ný-
lega fallinn dómur í því máli.
Ákærði nr. 1, stýrimaður og
sölustjóri Ducker, var dæmdur
til 120 daga fangelsisvistar og
2000 kr. sekt.
Ákærði nr. 2, Becher, í 90
daga fangehi og 200 kr. sekt.
Einnig var gert upptækt 30
þús. litrar, af brennivíni, er
Dúpker átti, og 10 þús. lítrar,
sem Becker var talinn eiga. En
skipið var ekki gert upptækt.