Dagblað - 09.10.1925, Page 1
Föstudag Ér ÉÍ Jfc I. árgangur
9. október ?/J/7/7/l //íifl 208
1925. M/Mlf VfVtW' tölublað.
FORIN á hafnarbökkunum er
orðin ein af þeim bæjar-
plágum, sem verstar eru við-
'trreignar. Verður ekki ofsögum
af henni sagt og er sízt að á-
stæðulausu þótt mikið væri rif-
ist út af henni á siðasta bæjar-
stjórnarfundi. Hitt væri síður
skiljanlegt, að nokkur skuli mæla
henni bót, eða vilja gera minna
úr henni en raun er á og sízt
eins ákveðið og þar var gert.
Það þarf ekki að rigna mikið
svo að teljast megi ófært fyrir
gangandi fólk fram á hafnar-
bakkana, og þegar rigningar hafa
gengið lengi eins og t. d. nú,
eru veruleg vandræði að fara
þar ferða sinna. Gins og öllum
er vitanlegt er hvergi eins mikil
umferð og niður við höfnina og
ætti því sérstök áherzla að vqra
lögð á, að hafa þar alt sem
þrifalegast. En það er alt annað
en svo sé. —
Mest er forin fram undan vöru-
geymsluhúsunum á vesturbakk-
anum, en að austanverðu er
varla hægt að segja hvort hún
er meiri í einum stað en öðr-
um, því alstaðar er þar aurvað-
allinn og óþverrinn. Að visu er
nú búið að leggja steinstétt fremst
á brúninni meöfram nokkrum
hluta hafnarinnar, en það bætir
Htið úr því vandræðaástandi,
sem þarna er í vætutíð.
Forin berst auðvitað fram á
brúnina svo litlu betra er þar
yfirferðar en ofar, sem ekkert
hefir verið gert til umbóta. Fver-
göturnar fram hafnarbakkann
verða auðvitað eins, því forin
berst óhindruð yfir þær frá götu-
endum og báðum hliðum.
»Reyndin« verður því sú, að
alstaðar má heita ófært yfir-
ferðar fyrir þá, sem ekki vilja
vaða aurinn upp í ökla og láta
sig einhverju skifta hvernig þeir
eru útlits. — Enginn afarkostn-
*ður virðist það þurfa að vera
Þótt eitthvað væri þarna gert
að draga úr mesta óþrifnað-
lúum, en ekkert er aðhafst í þá
átt. Mætti t. d. bera malarlag
ofan á gangstíginn með austur-
hlið vöruhúss Eimskipafélagsins
og banna bifreiðum umferð þar
eftir. Pótt ekki sé vegna þrifn-
aðarins eingöngu þá er nauð-
synlegt að banna þarna umferð
bifreiða, því vegna þess hve
vegurinn er mjór og einangrað-
ur til beggja hliða, er gangandi
fólki oft stórhætta búin vegna
bifreiðanna þegar umferð er mik-
il. Einnig mætti þvo steinstétt-
ina með vatnsslöngu og væri
það ekki mikill kostnaðarauki
en mundi verða til töluverðs
þrifnaðar. —
Auðvitað verður þarna aldrei
þrifalegt umhorfs fyr en búið er
að steinleggja alt hafnarsvæðið
eða ganga frá því á annan viðun-
andi hátt. En þótt ekki sé ráð-
ist í slík stórvirki, mætti saint
mikið gera þarna til þrifnaðar
án verulegs kostnaðar, og ættu
ekki að vera skiftar skoðanir
um, að á því sé full þörf og
megi ekki lengur dragast.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB„ 9. okt. ’25.
Fernmenjafandur á Labrador.
Sfmað er frá Halifax, að Mae
Millan sé aftur kominn úr norð-
urförinni. Fann hann á Labra-
dor 1500 ára gamla aðsetursstaði
Norðurlandabúa.
Hroðalegar aðfarir.
Simað er frá Tanger, að
Abd-el-Krim hafi grunað utan-
ríkismálaráðherra sinn um föð-
urlandssvik. Lét hann binda
hann og setja fyrir opinn fall-
byssukjaft og skjóta á hann,
svo líkami hans tvístraðist í
smá agnir.
Locarno-fundurinn.
Símað er frá Locarno, að
enginn viti með vissu hvað fer
fram á fundinum.
Khöfn. FB„ 10. okt. ’25.
Skjalaþjófnaðnr.
Símað er frá Rómaborg, að
samningi, sem ræða átti á
Locarnofundinum, hafi verið
stolið af itölskum blaðamönnum.
Samkvæmt áskorun fundarins
simleiðis bannaði Mussolini öll-
um blöðum ítaliu að birta
samninginn. Ákafleg reiði og
æsing er yfir þessu tiltæki meðal
allra þátttakenda á fundinum.
Fréttir frá Soregi.
Gnðmnndnr Hagalfn er um
þessar mundir í fyrirlestraferð
fyrir ungmennasamband Höröa-
lands í Noregi.
Noreg8banki lækkaði forvexti
um miðjan siðastl mánuð i 5°/o
(áður 5V2°/o).
Nýr prófessor við Listahá-
skólann í Osló er útnefndur Ax-
el Revold málari. Verður hann
eftirmaður Chr. Krogh’s, sem
gengur frá sökum aldurs. Var
fyrst talið að A. C. Svarstad
málari myndi hreppa embætti
þetta. (Svarstad er giftur Sig-
ríði Undset).
5000 söngvarar. F*að er í ráði
aö haldið verði allsherjar söng-
mót fyrir allan Noreg í Björg-
vin á hvítasunnu að vori. Verð-
ur þetta fyrsta allsherjar söng-
mót síðan Landssöngfélagið í
Noregi var stofnað. Er það sam-
band þetta, sem stofnar til alls-
herjarmótsins, og ræður það
yfir um 2500 söngmönnum. Auk
þess bætast við söngfélögin í
Björgvin, og telja þau um 500
manns, og verða það þá um
3000 söngmenn, er saman koma
á móti þessu. Einnig er í ráði
að stofna til barnasöngflokks
með 2000 börnum, og eiga þau
þá að halda sérstaka söngskemt-