Dagblað - 13.10.1925, Blaðsíða 3
DAGBLAÐ
3
Barytonsöngvarinn
Einar E. Markan.
Konsert í Nýja Bíó í kvöld kl. 7.15.
Páll isólfsson adstoöar.
Aðgöngumiðar seldir mánudag og þriðjudag í bókaverslunum
Sigf. Eymundssonar og ísafoldar.
50 ára hjúsknparafmœli eiga i dag
Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur
Sveinbjörnsson á Valdastöðum i
Kjós. Eru þau víðþekt sæmdarhjón
og munu margir hugsa hlýlega til
þeirra á þessum minningardegi.
Gullbrúðkaup þeirra verður haldið
hátiðlegt að Valdastöðum, og sækja
það m. a. margir vinir þeirra héð-
an úr bænum.
Peningar:
Sterl. pd............... 22,45
Danskar kr............... 112,25
Norskar kr............... 92,72
Sænskar kr............... 124,49
Dollar kr. ............. 4,648/*
Gullmörk .............. 110,40
Fr. frankar ............. 21,44
Næst síðnsta krossgátn hefir mörg-
ium reynst erfið, því engin ráðning-
barst blaöinu. í gær kom ný kross-
gáta og er sömu verðlaunum og áður
tÆálningarvörur:
Blýhvita, Zinkhvita, Fernisolfa,
Þurkefni, Japanlakk.
Lögnð málning.
Ódýrar en góðar vörur.
Yfir 120 tegundir af veggfóðri,
frá 45 aurum rúllan af
enskum stærðum.
Hí. liiti & Liós.
heitið fyrir réttar ráðningar og verða
þær að vera komnar á afgreiðslu
blaðsins fyrir næstu lielgi.
Lausn á XII. krossgátu kemur i
blaðinu á morgun.
Sjó-ngBruna-
vitrjggiígap.
Níninr:
Sjótr.
Brunatr.
Framkv. stj.
Vátrygglö
Jhjá
ÍSLEIVZKU
íélagi.
542
254
309
Sonnr járnbrantakéngsliis.
að ég mætti til að aðvara yður, áður en málið
kæmi svo langt, að það færi að verða alvara
úr leiknum. Við skulum ganga inn í hitt her-
bergið til þess að njóta góðs af sjávarloftinu.
Hún gekk á undan honum gegnum dagstof-
una og þaðan út á svalir með hægindastólum
og hengirúmi.
— Elsku góði. Kæri grunnhygni Kirk, þér
lendið þá alt af i einhverjum vafningum og
vandræðum. Þér ættuð sannarlega skilið, að ég
slæi alveg af yður hendinni. Og þér hafið forð-
ast mig i fleiri vikur.
— Ég hefi alveg verið að kafna i vinnu, síð-
an ég hækkaði i tigninni. Ég hefi engan tima
haft til þess að ganga út.
— Sannarlega! Þér hafið þó haft tíma til
þess að hlaupa eftir fyrsta laglega, spænska
stúlkuandlitinu, senr þér sáuð. Ég er sannarlega
reið við yður, Kirk, enn ég held samt ekki, að
ég ætti að finna að þessu við yður, þvi þegar i
alt er litið er hún inndæl á sina visu.
— Eigið þér við ungfrú Garavel?
— Já. Var yður þetta fyllilega ljóst, hvað þér
vóruð að gera?
— Mér var fyllilega Ijóst, hvað ég ætlaði að
gera.
— Nú eruð þér hortugur! En hvers vegna
>öldnð þér endilega hana? Fað er þó um nógar
að velja, sem þér gætuð skemt yður með, án
þess að fjölskylda þeirra geri nokkrar athuga-
semdir. En með Andreas Garavel er öðru máli
að gegna. Hann er auðugur maður og hann
hefir pólitisk metnaðarmál og er stoltur. Ég býst
við, að ég verði nú að reyna að bjarga yður út
úr þessari klipu, eins og best má verða. Fér
hefðuð átt að vera varkárari.
— Biðið þér nú við, mælti Kirk gremjulega.
Ég mundi skilja betur, hvað þér eigið við, ef
þér segðuð mér, i hverju þessi »klípa« er fólgin.
— Ég á auðvitað við þessa heimskulegu
»trúlofun« yðar. Gerið yður nú ekki svona
heimskan.
— Ramón Alfarez hafði líka heyrt þessa sömu
frétt, og hann var svo elskulegur að biðja mig
að standa kyr augnablik, svo bann gæti drepið
mig. Það er auðvitað mjög glæsilegt að láta
bendla sig við ungfrú Garavel, en-------
— En þér hafið talað við hana. Pér hafið
heimsótt hana á heimili hennar.
— Já. Tvisvar, eftir heimboði Garavels sjálfs.
Og öll fjölskyldan sat og giápti á mig.
— Og þér vóruð þar til miðdegisverðar í gær.
Er það alt og sumt, sem þér hafið verið með
henni?
— N-neil Ég hefi líka talað við hana úti á