Dagblað - 12.11.1925, Blaðsíða 1
Fimtudag §íkw\ jf /• árgangur.
12 nóvember T/ } MM #^/3 237.
1925. Amr.&W&fUwWwVr tölublað.
VERNIG á að bæta ár hús-
næðisvandræðunum?
Þessi spurning vakir fyr-
ir hverjum alvarlega hugsandi
manni hér i Reykjavík. Pessa
spurningu hafa fulltrúar vorir í
bæjarstjórn margþvælt og þæft
árum saman. Þessari spurningu
'hafa þeir sðmu fulltrúar leitast
að svara, en aldrei orðið sam-
mála um úrlausn til bóta, ekk-
ert ráö, sem bygt sé á staðreynd-
um. Þess vegna hefir orðið svo
örlítið ágengt í byggingarmál-
nm bæjarins. —
Á eitt hefir þó meiri hluti
fulltrúanna fallist til þessa, og
það er að halda dauðahaldi í
húsaleigulögin, svo sem væri
þoð fyrsta ráðið til bjargar. Má
því með sanni segja, að bæjarstj.
sé i þessum skilningi sú mesta
y>íháldsstjórn<K, sem hér héfir set-
ið, frá því Reykjavík komst úr
reyfunum. Meiri hluti bæjarstj.
hefir að vísu gert virðingarverða
tilraun til þess, að breyta húsa-
leigulögunum í betra horf Ný
reglugerð var samin og samþykt,
en þegar til landsstjórnarinnar
kom, var hún ófáanleg til að
veita samþykki sitt, enda mun
reglugerðin hafa brotið í bág
við vilja og stefnu alþingis.
Nú er verið að fitja upp á
nýjan leik. Frumvarp kom ný-
lega fram í bæjarstjórn frá St.
Jóh. Stefánssyni bæjarfulltrúa,
sem stefndi í líka átt og sú
reglugerð, sem við eigum nú við
að búa. Þótti sumum það þó
helzt til bóta, að segja mætti
upp leigjanda, ef annað húsnæði
jafngott væri útvegað á öðrum
stað í bænum. — Frumvarp
Þetta var felt, borgarstjóri með
at»nað hefir komið, sem nú á
aó taka til bænar á næsta fundi
^jarstjórnar.
því aðallega fundið til á-
gætis, ag þar er ákveðið, að
skriflegij. samningar sé gerðir um
leigu á sérhverju húsnæði, er hús-
næðisnefnd samþ. Með þessu
móti hygst borgarstjóri að hafa
hemil á, hverjum sé leigt og að
bæjarmenn verði látnir sitja fyr-
ir húsrúmi, er það losnar. —
Ýmsar aðrar nýjungar finnast í
þessu siðasta frumvarpi, sem
eru þess verðar, að teknar sé
til athugunar sérstaklega.
Hvað sem öllum þessum frum-
vörpum líður, þá er eitt víst:
Að alt of langur dráttur hefir
orðið á umbótum eða fram-
kvæmdum, sem bætt gæti úr
húsnæðisvandræðunum. Þegar
alt er komið í eindaga er svo
gripið til þess örþrifaráðs, undir
veturinn, að reisa hús »upp á
bæjarins kostnað« til þess að
firra þá stórvandræðum, sem í
mestum háska eru staddir, sak-
ir íbúðaskorts. Má nærri geta
hvernig þau hús verða úr garði
' ger, ef dæma mætti eftir fyrsta
trágangi Suðurpólanna sælu. Er
því hætt við, að þessi aðferð verði
kák eitt og kattarþvoltur hjá
bæjarstjórn Reykjavíkur.
Aðstreymi innflytjanda íil bæj-
arins eykst jöfnum höndum og’
bygt er. Bærinn er opinn, og er
er öllnm frjálst að leita sér at-
vinnu og kaupa bús. Bærinn
vex að íbúatölu, en húsnæðis-
eklan verður hin sama og fyr.
Dagblaðið hefir oftlega áður
gert þetta vandamál að umtals-
efni og gefið þau ráð, sem heppi-
legust virðast, eins og högum
er háttað: —
1. Að húsaleigulögunum verði
aflétt.
2. Að lagðar verði fyrst um
sinn hömlur á innflutning
manna til bæjarins, og
3. Að bæjarstjórn aðstoði þá
sem auka vilja húsnæði með
nýbyggingum, eða á annan
hátt þannig, að útvega þeim
lán með svo hagfeldum kjör-
um, sem unt er.
Það hefir verið rökstutt ræki-
Iega hér í blaðinu, að húsa-
leigulögin, eins og þau nú eru,
standa í vegi fyrir framkvæmd-
um, — Fetta sanna og nýbygg-
ingar síðari tíma, sem flestar eru
einstakra efnamanna íbúðir, en
ekki fjölskylduhús.
Peningar fást ekki til nýbygg-
inga. Það þýðir ekki að berja
að dyrum hjá bönkunum, því
þeir eru öllum þorra manna
lokuð völundarhús. — Peningar
ekki til — lánum ekki peninga
til nýbygginga á þessum viðsjálu
tímum — er svarið. Pess vegna
liggur beint við, að bæjarstjórn
athugi þá leið, sem hér er bent'
á: Hjálpi mönnum þeim, sem
ekki hafa nægilegt byggingarfé.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB„ 11. nóv. ’25.
* ’
Yerkalýðstélðg Hollendinga og
Breta.
Símað er frá Amsterdam, að
brezk verkamannafélöghaldi fund
með Amsterdam-internationale
í desember til þess að ræða um
möguleika fyrir samtökum og
samvinnu við rússnesku verka-
mannafélögin.
Stórmcrk vísindi.
Simað er frá Vinarborg, að
prófessor Steinach hafi á fundi
í vísindafélagi lagt fram greinar-
gerð fyrir nýrri aðferð til þess
að sprauta »ekstrakt« í kyns-
kirtla ófrjórra dýra, sem hafi
þau áhrif, að þau verði aftur
frjóvgunarfær (forplantnings-
dygtig). Er talið ekki ósennilegt,
að hægt verði siðar meir að yngja
upp konur með þessari aðferð.
Bayern konnngsríki?
Simað er frá Berlín, að Rup-
precht fyrv. krónprins hafi vilj-
að reyna að gera Bayern að
sérstöku konungsriki og beðið
Hindenburg leyfis, en hann hafi
þverneitað og hótað að bæla
hverskonar þannig lagaða til-
raun niður með vopnum.