Dagblað - 12.11.1925, Blaðsíða 3
DAGB LAÐ
3
látið byggja hana og hún ætíð
verið í vörslu þeiría, en aldrei
ráðstjórnarinnar. Eftir fógetaúr-
skurði var kirkjan raunar dæmd
úr höndum þeirra, en þeir, á-
frýjuðu úrskurðinum til hæsta-
réttar. Forustumenn flóttamanna
voru þeir Baron von Myendorfl,
prinsinn af Altenburg og Potot-
sky hershöfðingi.
Nú bregður svo kynlega við,
að hæstiréttur ónýtir fógetaúr-
skurðinn og dæmir flóttamönn-
um kirkjuna, enda þótt Danir
hafi viðurkent ráðstjórnina og
eðlilegast væri að hún tæki við
eignum rússnesku keisarastjórn-
arinnar i Danmörku. Hér kem-
ur þá ef til vill til greina, að
Rússar hafa að sínu leyti ekki
viðurkent skuldakröfur einstakra
manna og fyrirtækja í Danmörku
til þeirra fjársjóða, er ráðstjórn-
in í upphafi byltingarinnar sló
eign sinni á. Dómur hæstaréttar
gekk út á, að ómögulegt væri
að segja með fullri vissu, hver
væri réttur eigandi kirkjunnar,
og krafa ráðstjórnarinnar var-
hugaverð, skoða bæri að flótta-
menn væri réttir notendur kirkj-
unnar, þar sem þeir héldi og
hefði haldið haldið henni við
um langan tima. Annars er mál-
ið þannig vaxið, að verjandi
flóttamanna lét sér þau orð um
munn fara, að málið hefði ver-
ið hið erfiðasta, sem komið
hefði fyrir danska dómstóla.
Dómurinn vakti mikinn fögn-
uð meðal flóttaraanna. Eftir rétt-
arhaldið þustu þeir út á götuua
og kystu hvern annan að rúss-
neskum sið. Siðar var haldin
þakkarguðsþjónusta í kirkjunni
fyrir verndardýrðling hennar,
Alexander Newski. Ekkjukeisara-
frú Dagmar og stórfurstafrú
Olga voru báðar viðstaddar
guðsþjónustuna.
L. S.
Bókaíregn.
Grimms ælintýri. Fimm úr-
vals æfiritýri úr safni Grimms-
bræðranna.með fjölda mynda
eftir pýzka listmálara.
íslenzk þýðing úr þýzkri
útgáfu, eftír Theodór Árna-
son. Annað he'fti. — Bókav.
Sigurj. Jónssonar 1925.
Það er ekki um of auðugan
garð að gresja, að því er snertir
íslenzkar bækur við barna hæfi,
og á Sigurjón þökk fyrir út-
gáfuna og Theodór fyrir þýð-
inguna á þessu öðru hefli
Grimms æfintýra. Var hið fyrsta
kærkomið ungum lesendum, er
hafa beðið með óþreyju eftir
væntanlegu framhaldi. Hér eru
að vísu saman komnir ýmsir
gamlir góðkunningjar, svo sem
Mjallhvit, Gullgæsin, Pyrnirós,
Hulda gamla o. fl., en gaman
er að eiga þau öll i heild með
1. hefti með nýrri og ódýrri út-
gáfu, sem prýdd er fjölda mynda.
— Bóksöluverð er kr. 2,50 í
sþirtingsbandi.
Jolm Lie: Kuútur i Álm-
vík. Saga frá Noregi. Bjarni
Jónsson isienzkaði. Sögusafn
Æskunnar. — Bókaverzlun
Sigurjóns Jónssonar, 1924.
Ekki er svo ýkjalangt síðan
að bók þessi kom út, og er
mint á hana um leið og hina
frá sama útgefanda, af þvi að
hún er vel fallin til lesturs
handa stálpuðum börnum, og
ekki dýr eftir stærð, 154 síður,
kr. 1,50 heft og 3,00 i bandi.
Sennr járiibrantakóng’slns,
— Auðvitáð! Pakka yður fyrir.
Hann ruddi sér hægt braut gegnum mann-
þröngina og gekk út undir bert loft. Hann var
svo taugaóstyrkur, að hann skalf á beinunum,
og hann blótaði öllum tíótelunum fyrir það, að
maður skyldi ekki einu sinni geta fengið sér
þar whisky-og-sóda þó líf lægi við.
Er hann var kominn út fyrir, kom Runnels
þegar til hans.
— Flýtið þér yður að segja mér það. Gátuð
þér ráðstafað þessu?
— Niunda dansinn.
— Ágætt! Mér þykir vænt um, að þetta er
búið. Herðið nú upp hugann og gleymið ekki,
að þér eigið að danza fyrsta danzinn við kon-
una mína. Nú fara þeir að spila. Ég — ég er
alt of taugaóstyrkur til að danza.
Er Anthony hitti frú Runnels, var hún einnig
svo út úr af eftirvæntingu, að hún hafði varla
vald á sjálfri sér.
— Eg held ég hafi þetta ekki af, stundi hún
upp, er þau voru komin út á gólfið. Hvernig
getið þér verið svona rólegur?
— Ég er alls ekki rólegur, sagði hann. Ég er
alveg eins kvíðandi og þér.
— En hún þá, auminginn litli! Hún lítur út
cins og hún sé dauðhrædd.
—• En — er hún ekki inndæl!
Frú Runnels játaði því fúslega, en alt í einu
varð hún þess vör, að Kirk færðist í aukana,
og vöðvar hans urðu harðir og stæltir, er ung-
frú Garavel sveif framhjá í faðmi Ramóns Al-
farez. Hún fann til hrolls, er hún hugsaði til
þess, að hér var að gerast alvarlegur sjónleikur
rétt fyrir augunum á henni.
í Kirks augum hafði Chiquita aldrei verið
svo inndæl og löfrandi né eins sérkennilega
spænsk eins og í kvöld. Hún var klædd yndis-
legum búningi, er sveipaðist eins og sólský ut-
an um hana. Allir tóku eftir henni, og herfor-
ingjar og aðrir karimenn þyrptust utan um hana.
Öðru hvoru leit hún sem snöggvast á Kirk,
og það augnaráð kom blóði hans í fossandi
hreyfingu. Honum var þetta augnaráð vissa fyrir
góðum árangri fyrirætlana sinna, og heit og hlý
gleðikend gagntók hann allan. En hvað mínút-
urnar voru lengi að^liða!
General Alfarez kom inn í salinn, og kliður-
inn jókst á ný við komu hans. Og er hann
heilsaði keppinaut sínum, Garavel, vingjarnlega
og brosandi, hófust fagnaðarlætin í kringum
hann. Fulltrúar skurðnefndarinnar gengu þá til
þeirra og óskuðu þeim til hamingju. Virtist nú
sem framboð Garavels væri viðurkent fyrir fult
og alt.