Dagblað - 17.11.1925, Side 2
2
D A G B L A Ð
Stirð tíð Jbeíir verið síðustu
viku og aflalítið. Vélbátarnir
eru fyrir stuttu farnir á veiðar,
og hefir Gizur hvíti komið inn
með mestan afla, 15 þús. kg.,
og Kári næstur með 6 þús. kg.
Þeir sem fóru út á laugardag-
inn, komu aftur inn allsleusir.
Taugaveikin er í rénun.
Tilkynnin g-
Irá Tafllélagi Kviliur.
Rvík, FB 16. nóv. ’25.
í gærkvöld var sendur héðan
leikur á borði I; 11. leikur Isl.
(hvítt) Dd2xí)d8.
í morgun kom hingað leikur
frá Norðmönnum á borði Ií, 11.
leikur þeirra (hvítt) Bb5XRc6.
í dag var sendur héðan leik-
ur á borði II, 11. ieikur ísl.
(svart) b5xBc6
Tafihorðið. í gær var sýnd
taílstaðan eins og hún var áður
en siðasti leikur ísl. var sendur.
Misritast, hafði í gær milli
sviga við taflborð I (svart) í
stað, hvítt.
Stærsta skipasmíði á Norð-
urlöudnm. Skipaútgerðarmaður
í Haugasundi, Knut Kpudsen,
hefir nýskeð látið smíða skip á
skipasmíðastöðinni í Nakskov í
Danmörku. Skip þetta er mótór-
tankskip (mótorskip með geim-
irum undir olíu- og bensín-
flutning) 13000 smálestir að
stærð og hefir tvær Dieselvélar
frá Burmeister & Vain með
3800 heslöflum samanlagt. Er
þetta stærsta skipið, sem smíð-
að hefir verið á Norðurlöndum.
Lotlskipanaustið á Svalbarða.
Þann 25. október kom skip það
til Svalbarða, er flutti bygging-
arefnið í naustið handa loftskipi
Roald Amundsens. Símaði skip-
stjóri þaðan, að ís hamlaði eigi
ferðum enn þar nyðra.
40,000 króuaþinglestrargjald.
Hlutafél. »Sandefallene« (orku-
ver í Ryfylki í Noregi) hefir
fyrir skömmu tekið 60 millj.
króna lán í Ameriku, og hefir
gefið eignir sínar að veði.
Skuldabréfið var þinglesið hérna
um daginn, og var lalið, að
þinglestrar kostnaður mundi
fara yfir 40,000 krónur.
Eldspýtnr lækka í verði.
Verðstjórn norska ríkisins hefir
tilkynt fyrir skömmu, að eld-
spýtur tækki í verði á þenna
hátt: Smásöluverðið sé eigi
hærra en 27 aura búntið (10
stk) og 3 aura hver stokkur.
Y firlýsing.
Ég les í Dagblaðinu í dag
að landlæknir hafi lagt sölu-
bann á Kruschen Salt, sé þetta
rétt, leyfi ég mér sem ncytandi
þessa salls, að lýsa því yfir til
allra sem þjázt af óregluleg-
um hægðum og lifrarkvillum
að ég hefi“ í mörg ár þjázt af
þeim, en siðan ég byrjaði í
sumar eftir 2 mánaða legu að
nota umtalað salt hefi ég orð-
ið fullbata og kenni mér ekki
neins meins.
Önnur blöð eru vinsamlega
beðinn að birta þessa yfirlýsingu.
Reykjavík 14. nóv. 1925.
S. Ármann.
Borgin.
Sjévarföll. Síödegisháflæöur kl.
5,58 í dag. Árdegisháflæður kl. 6,20
í fyrramálið.
Nætnrlæknir Konráö R. Konráös-
son, Pingholtsstræti 21, sími 575.
Næturvörður í Rvikur Apóteki.
'ffðarfar. Sunnan og suðvestan-
átt alstaðar i morgun og rigning í
Rvík og Vestm.eyjum. Heitast var í
Seyðisf. 10 st., Akureyri og Raufarh.
9, Rvík og Vestm.eyjum 8, í Stykkish.
og ísaf. 7. Úr Grindav., Hornaf. og
Grimsst. komu engin veóurskeyti í
morgun. — í Khöfn var 3 st. hiti,
í Færeyjum 8, á Jan Mayen 2 st.
frost og í Angmagsalik, í gær, 2 st.
frost. Loftvægislægðir fyrir norðan
og vestan land. Búist er við all-
hvassri suðlægri og suðvestlægri
átt með töluverðri úrkomu, eiukum
á Suður og Vesturlandi.
Atkvæðagreidsla um kaupgjalds-
málið fór fram á Sjómannafélags-
*2)agBlað.
Bæjarniélablað. Fréttaklað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjarlorg2. Sími 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
fundi i Hafnarfirði í gær, og var
miðlunartillögu sáttasemjara hafnað
með nærri öllum atkvæðum. (102
gegn 2), og er par með útséð um
að ekki gengur saman að sinni.
40 ára afmæli á stúkan Einingin
í dag. Verður pess minst með há-
tiöahaldi i Templarahúsinu i kvöld,
og mun par verða góður mann-
fagnaður.
Góð myud, sem sýnir »leyndar-
dóma hjúskaparlífsins« ér nú sýnd
á Nýja Bíó og mun margur hafa
beinlínis gott af að sjá hana.
50 ára afmæli Guðspekisfélagsins
er í dag og verður pess m. a. minst
í Reykjavíkurstúku félagsins meö
hátiðahöldum í kvöld.
Glaðnr fór til Patreksfjarðar á
föstudagskvöldið, og verður fram-
vegis gerður út paðan. Hinir nýju
eigendur eru ekju í félagi ísl. botn-
vörpuskipaeigenda, en samt verður
að ráða á hann skipshöfn eftir
taxta Sjómannafélagsins, pvi sú
kvöð hvílir á skipunum næstu tvö
ár, pótt eigendaskifti verði.
Landnámsmenn heitir fróðleg og
merkileg mynd, sem nú er sýnd á
Gamla Bíó. Sýnir hún landnám
hvítra manna í Veslurheimi og
marga af peim örðugleikum, sem
frumbyggjarnir áttu við að stríða.
Hjúskapur. Á laugardagínn voru
gefin saman í hjónaband, ungfrú
Sigríður Runólfsdóttir og Sigurjón
Gunnarsson, Barónsstíg 30.
Frú Gnðrún Gnðmnndsdóttir hef-
ir opnað nýja verslun í. Merkja-
steini (Vesturg. 12), og verslar par
með matvörur o. fl. Húsið hefir
verið mikið stækkað og endurbætt
í sumar.
Peningnr;
Sterl. pd................ 22,15
Danskar kr............. 114,06
Norskar kr.............. 93,24
Sænskar kr............. 122,38
Dollar kr................ 4,587*
Gullmörk .............. 108,98
Fr. frankar ............. 18,59
Hollerizk gyllini ......184,49