Dagblað - 26.11.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
»Vefarinn nieð tólf kónga vitið«
er þýðingin kðlluð og kom út
1854.
Reykjavík var lengi að feta
sig fram, enda var bærinn
lftill um þessar mundir, 1300
manns. t'jóðólfur segir að skóla-
piltar 1849 hafi haft pallhús,
eða leikið á palli. Jón Guð-
mundsson ritstjóri Þjóðólfs
færðist það í fang að láta gera
leikpall á »Skandinavien« 1854,
(þar er Hjálpræðisherinn nú) og
setja þar upphækkuð sæti,
hann réði alla leikendur og
borgaði þeim, og seldi aðgang
til að standast kostnaðinn. Að-
gangurinn kostaði 4 mörk, 3
mörk og 2 mörk. Hann lét
leika Pakk eftir Overskou þýtt
á íslenzku, og slapp skaðlaus
frá öllu þessu. Hann gaf Reykja-
víkurbæ pallinn, sætin og leik-
sviðið, og Trampe greifi gaf
bænum ýmislegt af ljóðunum úr
Æfintýrum, sem hafði verið
leikið í stiftamtmannshúsinu.
Jón Guðmundsson er hinn
eiginlegi faðir leika og leikhúsa
í Reykjavík. Þjóðólfur er leik-
húsasagan frá þessum timum,
og uppörfaði jafnan hverja til-
ra'un, sem gerð var í þá átt.
1858 kom ný leiköld í bæinn.
1.—7. janúar 1859 var leikið
hér ýmislegt. Stefán Thordarsen
mun hafa verið aðalleikandinn,
og önnur nýjung var þá líka á
ferðinni. Sigurður Guðmunds-
son málaði andlit leikendanna
með þeirri list, sem var óþekt
áður. Það gerði hann siðan,
hvenær sem leikið var, þangað
til hann dó 1874. 1859 var
sumt leikið á dönsku og sumt
á íslenzku. í þessi skifti var
leikinn bæði Holberg og Moliére,
og Sigurður Guðmundsson setti
upp Tableau úr fornsögunum.
1860 er enn leikið í bænum, og
þá kom »Æfintýri á gönguför«
(sem svo hafði verið leikið hjá
Trampe greifa) og var leikið á
dönsku. 1861 —2 var enn leikið
i bænum, og þá komu fram í
fyrsta sinn »Utilegumenn« Matt-
bíasar Jochumssonar, sem þá
var enn í Latínuskólanum. I
bænum var ennþá Ieikið 1866,
og voru þá Utilegumennirnir
leiknir aftur meðal annars. Þá
voru hin leikritin að mestu leyti
eftir Hostrup.
Svo kom mesta dauðadeyfð
yfir leiki bæjarmanna. En Latínu-
skólinn fjörgaðist á ný. Par var
leikið hvað eftir annað frá 1867
—1872. Skólapiltar léku mjög
eftir Holberg. Og þegar bæjar-
búar fóru að fá nóg af honum,
sömdu þeir sjálfir leikritin. Þá
var í skólanum afbrigðaleikari
á alt sem var hlægilegt, Krist-
ján Eldjárn Þórarinsson, sem
síðar varð prestur. Við þessa
skólaleiki komu fram tvö leik-
rit eftir Kristján Jónsson skáld.
Kvæðin voru ágæt, en leikritin
eru nú týnd. Þar kom fram
leikur eftir Jón Ólafsson ritstj.,
sem hann mun hafa stungið
undir stól síðar. »Leikur í jóla-
leyfinu« eftir Valdimar Briem,
sem hlýtur að vera til, því hann
hefir verið leikinn fyrir norðan,
og þar kom fram »Nýársnóttin«
(eldri) eftir tlndriða Einarsson,
sem var leikin i jólafríinu 1871.
Frh.
jöor'gin.
Sjávarföll. Síödegisháflæður kl.
2,50 i dag. Árdegisháfiæður kl.
3,10 i nótt.
Nætnrlæknir í nótt er Guðmundur
Guðfinnsson, Hverfisg. 35. Sími 644.
Nætnrvördnr í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Hæg norðl. og vestl. átt
víðast í morgun. Heitast var í Rvik
6 st.. í Grindavík og St.hólmi 5. ísaf.,
Seyðisf. og Vestm.eyjum 4, Hornaf.
og Akureyri 1, á Raufarh. var 2 st.
frost og á Hótsfjöllum 4 st. — í
Færeyjum var 4 st. hiti, í Leirvík
2 st, á Jan Nayen 3 st. frost og í
Angmagsalik í gær 5 st. hiti. — Loft-
vægislægð fyrir vestan Jan Mayen.
Búist er við norðlægri áttmeð snjó-
komu sumstaðar á Norðurlandi.
Jarðarför Jóns Ólasonar kaupm.
fór fram í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Verslunarmannafélag Rvikur
fylgdi undir fána sínum og bar stjórn
þess kistuna í kirkju, en vinir og
venslamenn út, og inn i kirkjugarð.
Fundur í Sálarrannsóknarfélagi ís-
lands verður haldinn i kvöld, i Iðnó,
og hefst kl. 8*/a. Einar H. Kvaran
segir þar frá ýmsu merkilegu, sem
hann varð visari i utanför sinni en
þó einkum ýmsum dulrænum lækn-
ingum.
HDagBíað.
Bæjarmálahlað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445*
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjariorg2. Sími 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Auglýslngum í Dag.
hiaðið má skila í prentsmiðj-
una Gutenberg eða á afgreiðsla
hlaðsins. Sími 744.
Níræð er í dag Margrét Jónsdóttir
frá Vesturhópshólum, móðir Jóns
Porlákssonar ráöherra og þeirra
systkina.
Ný gamgöugubót. Síðasta ráðslöf-
unin til samgöngubóta í Miðbænum,
er að mjókka Hafnarstræti með því
að gera gangstétt fyrir framan bygg-
inguna frægu milli, nr. 17 og 19við
Hafnarstræti.
Svanur kom frá Eyrarbakka í gær,.
Farþegar með Botniu, frá útlönd-
um vorurauk þeirra sem taldir voru
í gær: Ungfrú Ingibjörg Zimsen
(borgarstjóra), Munch framkv.stjóri
við Flydedokken i Khöfn, Ólafur T.
Sveinsson vélfæðingur o. fl.
f Botuía á að fara héðan kl. 2 á
morgun vestur og norður um land
til útlanda.
Rán seldi nýlega afla sinn í Eng-
landi fyrir 860 sterl.pund.
Douro aukaskip Sameinaða félags-
insj kom hingað i gærkvöld með
ýmsar vörur tipkaupmanna.
Lciðrétting. í síðustu grein um
Leiki 'og leikhús (i gær) hefir mis-
prentast Dalotær á að vera Dalstæd
Ennfr. Sónnaey á að vera Sámsey.
Kappteflið. Dagblaðið flytur i dag
myndir af taflborðunum eins og þau
eru nú eftir síðasta leik. Einnig er
birt skrá yfir alls leikina frá upp-
hafi og hefir hún hvergi áður veriö
birt rétt.
Feningar:
Sterl. pd................ 22,15
Danskar kr............. 113,82
Norskar kr.............. 93,22
Sænskar kr............. 122,64
Dollar kr.............. 4,58'A
Gullmörk............... 108,99
Fr. frankar ............. 17.24
Hollenzk gyllini .......184,17