Dagblað - 14.01.1926, Síða 2
2
D A G B L A Ð
Utan úr heimi.
Vildi flokkurinn koma til Kaup-
mannahafnar og danza þar,
skyldi þeir fá til þess veglegasta
salinn í borginni: Konunglega
leikhúsið. Konungur og drotn-
ing skyidi koma og horfa á.
Yrði einhverjir erflðleikar á að
komast heim aftur til jóla með
áætlunarskipi, skyldi Danmörk
senda herskip með flokkinn.
Þetta var veglegt boð og
freistandi, og ekki gat neinn
blaðamaður boðið annað eins
upp á eindæmi sitt. Hann hlaut
að vera sendimaður Dana.
Patursson svaraði á þessa
leið: Danmörk hefir árum sam-
an neilað óskum Færeyja. Nú
stoða því engin loforð. Ástæðan
til þess, að við viljum ekki fara
til Danmerkur, er sú, að hér
erum við gestir Ungmennasam-
bands Noregs. Hér erum við
taldir jafnmætir bezta æskulýð
landsins. Það verður eigi gert í
Kaupm.höfn. Ef til vill mynduð
þið sækja danzsýningu vora. En
það er þá af forvitni, eða til
þess að sjá, hvernig Eskimó-
arnir i Færeyjum leika sér. Pess
háttar sýningar höldum við
ekki. Hér í landi sýnum við leik
vorn norrænnm frændum vorum.
Kirkeby mælti: Pað er aðeins
þér einn, sem eruð svona þver-
girðingslegur«. — Patursson
spurði þá allan hópinn, hvort
þeir væri sér sammála, og kvað
við hvelt og einróma já frá öll-
um 23. — Samræðan þagnaði.
Kirkeby náði ekki taki, en var
á hælunum á þeim alla leið
upp að Litla-Hamri i Guðbrands-
dölum. Er hann varð þess var,
að viötökurnar voru alstaðar
þær sömu — jafn hlýlegar og
vingjarnlegar — sneri hann
heim aftur til Danmerkur«.
Brezknr botnvörpungnr, Lord As-
tor frá Hull, kom hingað í fyrradag
vegna bilunar. Var hann á útleið
og kominn um 60 sjómílur suður
af Vestmannaeyjum er leki kom að
honum. Sneri hann þá við og komst
við illan leik hingað. Var hann
hlaðinn flski, en varö að fleygja
nokkru af honum útbyrðis til að
lélta skipið, því engu mátti muna
að hægt væri að halda þvi ofan-
sjávar. Hélt hann beina leið upp i
fjöru, án þess að biða eftir hafn-
sögumanni. Mun verða gert við
hann hér, svo hann komist leiöar
sinnar út.
/'
Khöfn 12. jan. 1926.
Ummæli Pnssyfoot um
TÍnbannið.
Simað er frá New York city,
að Pussyfoot Johuson, bindindis-
frömuðurinn, sé kominn heim
úr Evrópuför sinni og segir
hann, að bannið hafí allstaðar
borið minni árangur en við var
búist. Ennfremur viðurkennir
hann, að amerísku bannlögin
hafi gert meira tjón en gagn.
[Gaman er að börnunum,
sagði karlinn. Hann átti sjö fifl
og það áttunda umskifting. —
Eitthvað í þessa áttina hljóta
þeir góðu amerísku andbann-
ingar að hugsa, er senda sím-
skeyti þetta og ætlast til að
menn hér eystra taki það trú-
anlegtl »Dagbl.« mun innan
skamms flytja stuttan útdrátt úr
ræðum P. J. er hann hélt ný-
skeð viðsvegar um Norðurlönd,
og má þá sjá svart á hvitu
skoðun þessa sanntrúaða bann-
postula. Verður fróðlegt að sjá,
hvort menn gleypa við þessari
flugu eins fúslega og þeirri
finnsku/]
K.höfn. FB., 13. jan. '26.
Eimreiðarránið í Uexicó.
Sfmað er frá Mexikóborg, að
árás ræningjanna hafi verið hin
hræðilegasta. Réðust þeir á fólk-
ið á lestinni af ólýsanlegri grimd
skutu á það, skáru sumt á háls,
en kyrktu aðra, eða lömdu til
dauða. Ræningjarnir þutu siðan
burt á eimreiðinni. Síðustu sím-
fregnir herma, að stjórnin hafi
sent herlið til þess að kiekkja
á ræningjunum og hafi þeir náð
þeim. Skall i blóðugan bardaga,
er lauk svo að margir ræningj-
anna voru drepnir, en hinir
handsamaðir. Ránsfé og gripir
fundust í fórum þeirra.
Lækning á stífkrampa.
Símað er frá París, að Vís-
indafélaðið hafi lýst því yfir, að
tveir læknar hafi fundið serum,
sem gerir menn algerleða örugga
gegn stífkrampa.
Vaxtalækkun í Pýzkalandi.
Simað er frá Berlin, að Rikis-
bankinn hafi lækkað forvexti
úr 9 í 8#/o.
HbagBlaé.
Bæjarmilablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Gaðmundsson,
Lækjartorg 2. Simar 744 og 445.
Viötalstimi kl. 5—7 siðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, b.f.
Aðstaða franskra jafnaðar-
manna til stjórnarinnar.
Simað er frá París, að social-
istar hafi ákveðið á fundinum,
að neita væntanlegri þátttöku
í stjórninni, nema þeir fái meiri
hluta ráðherranna úr sínum flokki
Mlshepnað rán.
Simað er frá Berlfn, að 3
menn hafi reynt að ræna f banka.
Mistókst ránið og flúðu þeir í
bifreið. Lögreglumenn eltu þá
á mótorhjólum um götur borg-
arinnar og út á vfðavang. Skutu
lögreglumenn margsinnis á eftir
þeim og drápu þá loks alla.
Nntnrlnknlr i nótt er Guðmundur
Guðflnnsson, Hverfisg. 35. Sími 64.
Nnturvörðnr i Rvíkur Apóteki.
Tfðarfar. Suðlæg átt hefir verið
undanfarna daga um land alt.
Snjólaust er um alt Suðurland og
viðar, en á Norðurlandi hefir snjór-
inn mikið minkað og viða komið
upp jörð, en þar var komið ódæma
snjókyngi og víða algjörlega
haglaust.
Dansinn i Hrnna verður leikinn i
kvöld. Aðsókn til þessa hefir verið
svo góð að búast má við að hann
verði leikinn nokkrum sinnum enn.
Eggert Stefánsson ætlar að syngja
i Frikirkjunni á sunnudagskvöld
kl. 8 ‘/» með aðstoð Sigvalda bróður
sins. Syngur hann eingöngu ísl.Llög,
m. a. nokkur ný eftir Kaldalóns.
Lögtak á ýmsum opinberum gjöld-
um til bæjarsjóðs er nú auglýst. Er
æskilegt að sem flestir geti borgað
þau áður en til lögtaks kemur, þvi
nógu tilfinnanleg eru þau samt öll*
um þorra manna.
Botnia og Nova komu hingaó 1
morgun,