Dagblað

Tölublað

Dagblað - 25.02.1926, Blaðsíða 2

Dagblað - 25.02.1926, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐ matjurtanöfn á lalnesku, ensku og dönsku auk islenzku nafn- anna. Er það mikill hægðar- auki fyrir þá, er eiga aðgang að erlendum garðyrkjubókum. Og þá er eigi minst um vert, að almennar matreiðslureglur fylgja hverjum kafla um ein- stakar matjurtategundir, svo maður Iærir eigi aðeins að rækta þær, heldur einnig að matreiða þær og borða, og mun eigi síður nauðsyn á þvi. í formála bókarinnar segist höf. einnig hafa »haft það í huga, að bókina mætti nota við garðyrkjukenslu í bændaskólum og ungmennaskólum og ef til vill víðar«, t. d. í kvennaskólum og jafnvel í kennaraskóla. — Dettur mér þá i hug, það sem ég stakk upp á fyrir um 20 árnm siðan, að hverjum barna- skóla í sveit ætti að fylgja svo mikið jarðnæði, að þar mætti stunda garðyrkjukenslu og hafa hana sem allra rækilegasta. (»Skólabl.« 1907—08). »Hvannir« er mjög ódýr bók, einar 6 krónur, þótt tekið sé til- lit til þess að Búnaðarfél. ísl. hafi veitt styrk til útgáfunnar. Bók þessa þurfa allir þeir að eignast, er umráð hafa yfir fá- einum ferálnum af íslenzkrimold! Helgi Valtýsson. Alþingi. þingmannafrumvðrp. Þessi þingmannafrnmv. hafa komið fram í viðbót við þau sem áður voru talin. Hafa flest þeirra komið til 1. umr., og farið til nefnda. — Frumvarp til laga um al- mannafrið á helgidögum þjóð- þirkjunnar. Flutningsm.: Magnús Jónsson, Jón Baldvinsson og Jakob Möller. (Hefir áður verið sagt frá efni þessa frumvarps). — Frv. til laga um breytingu á vegalögunum. Flm. Bernhard Stefánsson. — Um að vegur frá Akureyri að fyrirhuguðu heilsu- hæli f Kristnesi verði tekinn i þjóðvegatölu, eins og aðrir vegir til sjúkrahúsa. — Frv. til laga um stofnun happdrættis fyrir ísland. Flm. Jör. Br. og P. Ottesen. — Um að, veita bræðrunum Sturla og Friðrik Jónssonum einkaieyfi til að stofna hér innlent happdrætti. Er gert ráð fyrir, að lekjur rík- issjóðs af happdrættinu geti ár- lega numið 200—800 þús. kr., eftir þvi hve mikið selst af happ- drættismið unum. — Frv. til laga um bæjargjöld i Vestm.eyjum. Flm. Jóh. Jósefss. Um heimild til að skattleggja öll hús og lóðir í kaupstaðnum um 0,4°/o fjörutíu aura af hverj- um 100 kr. virðingarverðs. Fyr- ir þetta fasteignagjald á bærinn að annast sót-sorp- og salerna- hreinsun húseigendum að kostn- aðarlausu og einnig gera »ráö- stafanir til að fyrirbyggja elds- voða«. — Frv. til 1, um húsaleigu í Rvík. Flm. M. J. og Jak. M. — Um að öll húsaleigulögin séu afnumin og húsaleigan gefir frjáls, »en þó má ekki segja upp hús- næðum til burtflutnings fyr en frá 1. okt. 1926«. (2. gr.). — Frv. til laga um einkasölu á útfluttri síld. Flm.: Jón Bald. — Þetta er sama frv. og borið hefir verið fram á siðustu þing- um, og fylgir því sama greinarg. — Frv. til laga um breyting á lögum nr. 40 (frá árinu 1919), um forkaupsrétt á jörðum. Flm.; Fór. Jónsson og Sv. Ólafsson. — Um að seijandi sé ekki skyld- ugur til að bjóða öðrum for- kaupsrétt að jarðeign sinni, ef hann selur hana barni sfnu, kjörbarni, fósturbarni eða syst- kyni, og að búseta þessara ætt- ingja sé ekki skilyrði fyrir kaupunum. — Frv. til laga um einkasölu á saltfiski. Fim.: Jón Baldvins- son. — Þetta er sama frv. og flm. hefir borið fram á siðustu þingum og þá íelt. Sama grein- argerð fylgir frv. nú og þá. Frv. til 1. um löggildingu versl- unarstaðar við Jarðfailsvik á Málmey. Flm. Jón Sigurðsson. »Frumvarp þetta er flutt fyr- ir mjög eindregin tilmæli Málm- eyinga«. Frv. til 1. um stöðvun á verð- gidi isl. peninga. Flm.: Tryggvi Þórhallsson. Frumvarpið er í 8 gr. og fylgir því mjög löng og itarleg greinargerð. Söng-, fiðlu og danz-plötur. — Nýkomnar í mjög miklu úrvali. Fálkinn, Laugaveg 24. Simi 670. Borgin. Nætnrlæknir M. Júl. Magnús Hverflsgötu 30. Simi 410. Næturvörðnr í Rvíkur Apóteki. Jarðarför Siguröar Sigurðssonar ráðunautar fór fram í gær að við- stöddu miklu fjölmenni. Séra Ólaf- ur Ólafsson hélt húskveðjuna, en séra Bjarni Jónssou flutti kirkju- ræðuna. — Pingbændur báru kist- una frá heimili hans að kirkjunni en stjórn og starfsbræður hans úr Búnaðarfélaginu inn. — Oddfellow- ar báru kistuna úr kirkju en al- þingismenn og ýmsir bændur alla leið þaðan i kirkjugarð. Háskólafræðsla. Dr. Kort K. Kort- sen flytur erindi í Háskólanum kl. 5 i kvöid, um Limafjarðarskáldin. Aðalfnndnr K. F. U. M. verður haldinn i kvöld. Gnllfoss fór héðan kl. 12 i nótt til Vesturlands með margt farþega. Par á meöal: Sveinbjörn Egilson ritstjóri, Porst. Porsteinsson sýslum. og frú, Magnús Friðriksson á Staðarfelli, Hannes B. Stephensen kaupm., Jón Guðmundsson endur- skoðandi, Jóhann Porsteinsson kaupm. og Örnólfur Valdimarsson kaupmaður. Lyra fír héðan kl. 6 í kvöld á leiðis til Noregs. Meðal farþega verða: Pétur Á. Ólafsson konsúll, Hendrik Ottósson stud. jur. Björn Ólafsson heildsali, Guðm. Alberts- son flskkaupm., Július Guðmunds- son stórkaupm., Karl Einarsson fv. sýslum., A. J. Bertelsen heildsali, Ingvar Guðjónsson útgerðarm. á Akureyri o. fl. — Til Vestmanna- eyja fara m. a.: Einar H. Kvaran rilhöf., Ólafur Lárusson og Ásgeir Guðraundsson cand jur. Botnvörpnngarnir. Mai kom af veiðum í gær með 1000 ks. og fór til Bretlands i nótt. Geir kom i morgun með 1100 ks. ísflskssala. Jupiter seldi afla sinn í gær fyrir 1747 sterl. pd.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.