Dagblað

Útgáva

Dagblað - 14.05.1926, Síða 2

Dagblað - 14.05.1926, Síða 2
2 DAGBLAÐ Leikfélag Reykiavikur. Þrettándakvöid eða hvað sem vill. verður leikið á morgun (laugardaginn) kl. 8. síðd. Alþýðusýning. Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 3—7 og á morgun kl. 10—1 og eftir kl. 2. Sími 12. alt að xh milj. króna, og verð- ur því mikið hús og veglegt. Var fyrst gert ráð fyrir, að hún stæði norðan götunnar, vestanvert við spítalann, en síð- ar hefir verið ákveðið, að hafa hana sunnan götunnar en aust- an skólans, svo að segja á hæstu bungu Hólavallar. Þetta er nú það sem ráðgert er um kirkjubyggingu kaþólskra manna og skipulag þess bæjar- hluta, sem ennþá gæti orðið einna fegurstur. Mun ýmsum finnast, að þeir sem þessum málum ráða, séu furðu Ieiði- tamir við útlenda menn og haldi ekki eins vel á málstað bæjar- ins og skyldi. Það ber ekki vott um mikla sjálfstæðiskend, að leyfa keppinaut þjóðkirkjunnar að byggja sér varanlegt musteri á eftirsóknarverðasta bletti bæj- arins og gera því svo hátt undir höfði, að gatnaskipulag í heil- um bæjarhluta skuli við það miðað. Virðist erindi útlendinga hér vel rekið, en metnaðarmál- um og hagsmunaatriðum bæj- arbúa miklu minna gætt. Johannos Fönss sðng i gær i Nýja Bió við góða aðsókn og óskifta að- dáun áheyrenda. Annað kvöld efnir% hann til kirkjuhljómleika í Dóm- kirkjunni og á sunnudaginn les hann upp og leikur í Nýja Bíó. Eru bæjarbúar pá ekki eins söng- elskir og af er látið ef mörg sæti verða óskipuð í Dómkirkjunni annað kvöld, og þá ætti það ekki að spilla ánægjunni að Páll Isólfs- son verður við htjóðfærið. Sími 12. Alþingi. Þingfundir hafa nú verið frem- ur langir upp á síðkastið. Oftast verið tveir á dag i annari hvorri deild og stundum báðum, og ekki ósjaldan hafa fundir staðið fram yfir miðnætti. Hafa þingmenn nú tekið mikla rögg á sig á 11. stundu og hespað málin af með afbrigðum frá þingsköpum og annari flaust- ursafgreiðslu sem orðin er að fastri þingvenju þegar líða fer að þinglokum og i óefni er kom- ið um framgang ýmsra nauð- synjamála. Um bankamálin hafa orðið miklar umræður i Neðri deild og iauk þeim þannig, að Lands- bankafrumvarp stjórnarinnar var samþykt til E. d. — og hefir hún nú samþykt, að geyma það til næsta þings, þar eð fyrirsjá- anlegt var, að ekki ynnist timi til að afgrelða það á þessu þingi. — Við umræðurnar í N. d. hélt Benedikt Sveinsson aðallega uppi vörnum fyrir bankafrumv. sitt og gerði það vel og skörulega. Vildi hann láta rjúfa þing og efna til nýrra kosninga um banka- málin. Taldi liann þau slíkt stórmál, að þjóðin ætti að hafa ihlutunarrétt um að ráða þvi til farsællegra lykta, en héðan af yrði það ekki gert nema með nýjum kosningum. Till. Ben. Sv. var feld og frv. stjórnarinnar samþykt, eins og fyr segir. Nú bíður málið næsta þings og þá mætti svo fara, að á annan veg skipaðist um fylgi þess. Er eng- Dagblað Þjöðmála-, Bæjarmála- og Fróttablað. Útgefandi: Félag i Iteykjavík. Ritstjóri: Guöm. Porláksson. Afgreiösla: Lækjartorg 2. — Sími 744. Áskrifendagjald kr. 1,50 á mánuði. Prentsmiöjan Gutenberg h.f. inn efi á, að frumvarpið um sérstakan seölabanka á svo mikil ítök hjá þjóðinni, að úr þvi henni vinst tími til að at- huga málið til hlýtar, munu koma fram eindregnar og al- mennar áskoranir um að ráða bankamálunum til lykta á þeim grundvelli. Frh. Borgin. Nætnrlæknir. Gunnlaugur Einars- son, Stýrimannastíg 7. Sími 1693. Næturvörðnr i Laugav. Apóteki. Esja kom hingað i morgun úr hringferð, meö um hálft annað hundraö farþega. Voru það flest sjómenn úr Vestmannaeyjum. Þrcttáudakvöld! verður Ieikið i kvöld, og er það alþýðusýning aö þessu sinni. Svanur fer héðan á morgum til Snæfellsness hafnanna, lengst til Stykkishólms. Guðspckifélagið. Septímufundur i kvöld kl. 8'/». Grétar Fells flytur erindi. Efni: Helgir siöir. Kuldatfð má nú telja um alt land, a. m. k. móts við það sem áður var. í gær var 5 st. frost á Gríms- stöðum og 4 st. i morguu. Er víða frost á nóttum og mikill snjór í fjöllum. ísland kom frá Kaupmannahöfn i morgun. Farþegar: Eggert Glaessen hankastjóri, Thor Jensen franikv.stj. og frú, Matthías Einarsson læknir og frú, frú Ágústa Thomsen, A. Obenhaupt stórkaupm., Matthias Pórðarson o. fl. Ingimnr Jónsson bakari hefir tek- ið á leigu bakaríið. á Hverfisgötu 41, sem Sig. heit. Gunnlaugsson átti og rak um langt skeið. Mun Ingimar hafa allan hug á að afla því sama álits og það hafði i tíð Sigurðar, og er líklegt að honum takist þaö.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.