Dagblað

Tölublað

Dagblað - 27.06.1926, Blaðsíða 1

Dagblað - 27.06.1926, Blaðsíða 1
t Jón Magnússon forsætisráðherra. Hann lézt snögglega síðastl. þriðjudagskvöld, 22. þ. m., aust- ur á Norðfirði. Var hann á heimleið ásamt konu sinni, eftir að hafa fylgt konungshjónunum til Seyðisfjarðar, og var hann nýskilinn við þau. Konungur lagði af stað frá Seyðisfirði kl. 9 á þriðjudagskvöldið, en her- skipið Geysir hélt suður um og átti að flytja forsætisráðherra hingað til Reykjavíkur. Eftir ósk hans fór hann í land á Norð- firði til að sjá æskustöðvar sínar, e;n þar hafði hann ekki komið í 45 ár. Heimsótti hann Jón , Guðmundsson prófast og virtist ekki kenna sér neins meins en eftir að hafa dvalið þar stutta stund hné hann niður og var þegar dáinn. Jón Magnússon var fæddur 16. jan. 1859 að Múla í Aðaldal en ólst upp á Skorrastað í Norð- firði frá 7—21 árs aldurs. — Rað er óþarfi að rekja hér æfi- feril J. M. því hann mun flest- ■ m íslendingum kunnur. J. M. hefir langa og merkilega starf- sögu að baki sér, sem sýslu- maður í Vestmannaeyjum, land- ritari, bæjarfógeti í Reykjavík, alþingismaður og forsætisráð- herra tvisvar. J. M. var sérstakt ljúfmenni, yfirlætislaus og jafn alúðlegur við hvern sem var. Skapgerð hans og framkoma aflaði hon- um trausts og vináttu allra sem kyntust honum, enda voru vin- sældir hans mjög almennar og víðtækar. Á seinni árum var J. M. þekt- astur fyrir stjórnmálaafskifti sín. Stóð oft um hann nokkur styr, en þó minni en búast mátti við þar sem hann hefir verið helzti maður stærsta stjórnmálaílokks- ins um langt skeið. Um stjórn- málastarfsemi hans verður eng- inn dómur lagður hér, en það mun fiestra manna mál, að hann hafi verið bæði gætinn og glögg- skygn stjórnmálamaður. — G. Björnsson landlæknir, sem þekti J. M. flestum mönnum betur segir m. a. svo i minningarorð- um eftir hann. »Hann var — nei, ég deili ekki við neinn um það, hver hefir verið mestur maðurinn hér á landi undanfarinn mannsaldur, en Jón Magnússon var, að minu viti, gætnasti og vandaðasti maðurinn, hann var einn heið- arlegasti og besti maðurinn. Ress vegna var hann láns- maður. t*ess vegna var því líkast, sem þjóðinni yrði alt það til gæfu, sem hann lagði á gjörva hönnd, og það var bæði margt og mikið«. — Hann hefir nú lokið löngu og miklu æfistarfi, sem var ó- venjulega verulegt. Én yfir frá- falli hans hvílir hugþekkur æfin- týrablær, sem að nokkru dreg- ur úr sársauka saknaðarins. Tvö stórhýsi. ii. Pjóðleikhúsið. Bjartsýnustu mennirnir og þeir, sem verst'una seinagangi íslenzkra framkvæmda, hafa jafnvel látið sér koma til hugar, að byggingu þjóðleikhússins yrði flýtt svo, að það verði komið upp árið 1930 og tekið þá til starfa. Það er þegar á- kveðið að þjóðleikhúsið verði bygt, og er því þeim mun lengra á veg komið en ráðhús- byggingunni, að um hana er alt óákveðið enn þá. Leikhússjóð- urinn er nú þegar orðinn all- álitleg upphæð og vex óðum, vegna hins vissa tekjustofns, sem honum er lögfestur. Hvort svo vel verður að verlð, að þjóðleikhúsið verði komið upp 1930, eða ekki, þá má samt telja alveg vist, að það verði bygt áður en mörg ár liðaT. En alls vegna væri það lang æskilegast, að það yrði al- bygt fyrir þann tima, því það ár mundi það a. m. k. gefa af sér tvöfalt meiri tekjur en hvert ár annað. Og á það atriði ber óneitanlega að lita viðvíkjandi leikhússbyggingunni, og einnig gagnvart öðrum framkvæmdum, sem liklegar eru til að gefa af sér miklar tekjur einmitt það ár, vegna hinnar sérstöku að- stöðu sem þá verður fyrir hendi. En hvar á þjóðleikhúsið að standa? Um það hefir lítið verið rætt enn þá eins og eðlilegt er, með- an að eins hefir verið unnið að nauðsynlegasta undirbúningi þess. En úr því málið er nú komið á þann rekspöl sem raun er á, verður að telja það full- komlega tímabært að fara að

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.