Nýja stúdentablaðið - 16.12.1934, Page 3

Nýja stúdentablaðið - 16.12.1934, Page 3
INVJA STÚDENTABLAÐIÐ 3 Takmörkun barneigna. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um leiðbein- ingar fyrir konur um varnir gegn því að verða barns- hafandi og um fóstureyðingar. Hefir frumvarp þetta vakið miklar umræður, enda er málið merkilegt. Nokkrar bræður hafa risið upp á afturfótunum og and- mælt frumvarpinu kröftuglega. Er þetta ekkert einstakt fyrirbrigði, og má sem dæmi nefna þá grimmilegu and- stöðu, er það mætti víða um heim, er fyrst var farið að lina þjáningar kvenna við fæðingar með deyfingum. Hitt er miklu merkilegra frá sjónarmiði þeirra, sem vonast höfðu til, að frumvarpið hefði mikla nýbreytni að flytja, live andstaðan er veik, enda skýrist það við lestur frum- varpsins. Sérkennandi er það einnig fyrir andstæðinga frumvarpsins, sem mest hafa látið á sér bera til þessa, að annaðhvort liafa þeir atvinnu við að lijálpa nýjum heimsborgurum inn í þennan »jarðneska táradal« eða þá að aðstoða við brottför þeirra síðar, er þeir liafa veslazt upp, vegna þess, að ekki var pláss fyrir þá í heiminum. Þegar þessa er gætt, verður skiljanlegra, hve rökin, sem fram eru færð gegn máli þessu, eru íátækleg. Hin helztu »rök«. sem ég hefi heyrt, eru þau annars- vegai’, að slík lög liljóti að hafa í för með sér »siðleysi« í ástamálum og aukna kynsjúkdómahættn, og hinsvegar, að af þeim muni hljótast geigvænleg fólksfækkun. Hvað snertir liið fyrra atriði, er rétt að benda á, að »syndin« er nú þegar í beiminn komin. Óliætt er að fullyrða, að engin hjón liafi nokkru sinni verið til, sem ekki liafa eftir því, sem þau höfðu þekkingu til, reynt að forðast getnað, enda myndu konurnar margar ekki hafa þurft að kvíða ellmni, ef svo hefði ekki verið. Margir bafa sína fyrstu þekkingu á getnaðarvörnnm úr sjálfri Biblíunni, en mest hefir þetta þó verið vandræða- fálm, sem eðlilegt er, og stórskaðlegt heilsu manna. Þá má ekki heldur gleyma því, að hver, sem er, getur nú keypt getnaðarverjur í opinberum verzlunum eftir vild. Það er því nokkuð öfgakennt að lialda því fram, að verið sé að leiða fólk út í einbverja nýja ógurlega spill- ingu með ákvæðum frumvarpsins um getnaðarvarnir. — Hið eina, sem lögin gætu til leiðar komið, væri því, að getnaðarverjur yrðu notaðar af meira viti og þekkingu en nú gerist. Um kynsjúkdómabættuna er það að segja, að þar er sannleikanum alveg snúið við. Eftir því sem fólk á völ á betri fræðslu og leiðbeiningum í kynferðismálum yfir- leitt, verður sjúkdómaliættan minni. Má því telja víst, skil á róttækum bókmenntum og bókmenntamönnum og getur varað okkur hin við spillingunni og hættunni, sem listasmekk okkar stafar af þeim. Það er eigi út 1 bláinn, að síra B. K. skrifi ritdóma um bókmenntir. (Framh. í næsta blaði). að aukin fræðsla í Jiessum efnum gæti orðið til útrým- ingar þessum sjúkdómum, sem og mörgum öðrum. Annars er það nú svo um bið svonefnda »siðleysi« og »lauslæti«, að það hefir staðið af sér árásir siðfexðispost- ulanna til þessa. Frá alda öðli hefir, með öllurn liugsan- legum ráðum, verið reynt að aftra því, svo sem með trú- arbrögðum og lagasetningum, en þrátt fyrir helvítisógn- anir og dauðarefsingar liefir allt komið fyrir ekki. Enda er það, sem lnæsnarar kalla þessum nöfnum, ekki ann- að en sú sterkasta livöt, sem náttúran hefir útbúið menn og skepnur með til viðbalds lífinu. Út af ákvæðum frumvarpsins um fóstureyðingar, hafa andstæðingar þess gert rnikið liróp, og þá sérstaklega um fóstureyðingar af þjóðfélagsástæðunx. Sannleikurinn er nú sarnt sá, að í frumvarpinu eru ekki með einu orði heimilaðar fóstureyðingar af þessum ástæðum. Aðeins eru lieimilaðar fóstureyðingai’, þegar líf eða lieilsa kon- unnar er í veði, og leyft að taka tillit til þjóðfélagsað- stæðna »við mat á því, livert tjón er búið lieilsu kon- unnar af burðinum* (9. gr. frurnv.). Einnig um þetta at- riði má því fullyrða, að hér er ekki um neina nýbreytni að ræða, því eins og kunnugt er, hefir þetta verið gert og verður gert alltaf, meðau til eru læknar með ábyrgð- artilfinningu, þrátt fyrir lagasetningar. Óneitanlega er það þó viðkunnanlegra, að heimilað skuli vera með lög- um, að bjarga lífi konu með slíkii aðgerð en að við því liggi margra ára fangelsisrefsing, eins og nú er. Eins og af framansögðu sést, er ekki í umi’æddu frum- varpi farið inn á neinar nýjar leiðir, lieldur er þar veitt lagavernd því, sem nú er gert í trássi við lög, þ. e. a. s. fóstureyðingum af læknisfræðilegum ástæðum. Að mínu viti er það einmitt stærsti gallinn, að ekki skidi vera gengið lengra, þó ekki sé liægt að neita því, að lög þessi muni geta bætt úr ýmsum misfellum, sem nú eiga sér stað. Annars er það vitanlega eðlilegast, að konunni væii algerlega gefið það á vald, hvort liún vill verða rnóðir eða ekki. Eins og þjóðfélaginu er nú háttað, lilýtur það að vera öllu fólki með áhyrgðartilfinningu mikið áhyggjuefni að ala börn, ef það liefir elcki ástæður til að geta veitt börnum sínum viðunanlegt uppeldi og lífsskilyrði. Börn umkomulítils fólks eru að jafnaði dæmd til að fara allra lífsgæða á mis, því eins og kunnugt er, liggur aðstoð liins opinbera í því, að slíta börnin frá foreldrunum og ala þau síðan þannig upp, að þau eigi sér vart viðreisn- arvon á lieiðai’legan liátt. Munu margir þeir foreldrar, sem l'inna til sektarmeðvitundar um seinan, fyrir að hafa gefið slíkum fórnardýrum lífið. Hins vegar hlýtur það að vera, og er líka í reyndinni, hverju lieilbrigðu lor- eldri rnikið gleðiefni, að eignast börn, er möguleikar eru til að veita þeirn viðunandi aðbúð og uppeldi. Þá er einnig vert að hugsa um hina »ógiftu« móður, þ. e. a. s. konuna, sem ekki liefir látið löggilda mök sín við karl- mann lijá presti eða veraldlegu yfirvaldi. Eins og kunn- ugt er, er það oft í slíkum tilfellum, að konurnar hafa

x

Nýja stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.