Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Síða 5

Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Síða 5
NVJA STÚUKNTABLAÐIÐ 5 l^orvaldm- Þórarinsson: Heidnr háskólans. Á Alþingi 1909 voru samþykkt lög um stofnun Há skóla íslands, eftir margra ára harða baráttu. Um ára- tugi höfðu hinir heztu og einlægustu ÍTainherjar íslenzkr- ar sjálfstæðisbaráttu alið í brjósti hugmyndina um sjálf- stæða íslenzka þjóð, ekki aðeins efnahags- og stjórn- skipulega, heldur einnig og umfram allt andlega sjálf- stæða þjóð, sem um alþýðumenntun og liverskonar menn- ingu stæði öðrum þjóðum fullkomlega á sporði. En til þess að slíkt mætti takast, töldu þessir inenn nauðsyn- legt að koma hér á fót innlendri vísindastarfsemi, sem auðvitað hlaut að fá beztan grundvöll, ef hér var stofn- aður háskóli. Sem íulltrúa þessarar hugsjónar nægir að nefna þá Jón Sigurðsson forseta, glæsilegasta og óeigin- gjarnasta foringja hinnar þjóðernislegu frelsisharáttu Is- lendinga, hinn alkunna skörung Benedikt Sveinsson sýslu- mann og Björn Jónsson ráðherra, að ógleymdum Skúla sýslumanni Thoroddsen. Fyrir öllum þessum mönnum og fjölda annara framsýnna og frjálshuga samtíðarmanna þeirra vakti fyrst og fremst nauðsyn og heill hinnar vaknandi íslenzku þjóðar. Öllum var þeim ljóst, liverj- um annmörkum það var bundið, að reisa hér frá grunni af litlum efnum sjálfstæða vísindastofnun. En þessir menn gerðu það, sem í þeirra valdi stóð. Og háskólinn var stofnaður og tók til starfa 1911. Honum var til bráðabirgða fengið húsnæði í Alþingishúsinu og starfs- kraftar eftir því, sem föng stóðu til. Þeir menn, sem gert höfðu að veruleika hugsjónina um íslenzkan háskóla, liöfðu leyst hlutverk sitt vel af hendi, eftir því sem framast var unnt á þeim tíma. En þeir gerðu þá kröfu til eftirmanna sinna, að þeir slægi skjaldborg um liinn unga háskóla og héldu áfram bar- áttunni fyrir vexti hans og þroska. Þeir trúðu því, að ræktarSemi við þessa stofnun, sem svo mikla baráttu hafði kostað, trúin á vísindin, samfara heilbrigðum metn- aði, myndi reynast nóg til að efla gengi háskólans og skipa honum á bekk með hliðstæðum stofnunum, þar sem þær gerast beztar erlendis. — — Nú eru liðin 24 ár síðan háskólinn var stofnaður. Hvernig er nú eftir 24 ár komið hugmyndinni um full- kominn íslenzkan háskóla og vísindastarfseminni í sam- handi við hann? Við skulum aðeins líta á staðreyndir. Háskólinn er enn til liúsa í kompum Alþingishússins, þrátt fyrir það, þótt nemendatala hafi þrefaldast síðan hann var stofnaður. Háskóladeildirnar eru ennþá aðeins fjórar eins og í upphafi. Kennslukröftum hefir í rnörg- um tilfellum stórhrakað, í öðrum staðið í stað. Mér þykir sennilegt, að í 3—4 embættum sé um framför að ræða. Hverjir eiga sökina á þessu ófremdar ástandi? Alþingi og hinar mörgu ríkisstjórnir, sem setið hafa hér, eiga sinn þátt, stúdentar eiga sinn þátt, en langstærstan þátt- inn eiga þó prófessorarnir, forráðamenn háskólans, menn- irnir, sem tóku við þessu óskabarni brautryðjendanna 1911. Hugsjónadeyfð og heigulsháttur margra þessara manna í haráttu fyrir bættum kjörum háskólans, eða al- gert viljaleysi til slíkrar baráttu, hefir verið svo áber- andi, að margir liafa talið það einkennandi fyrir starf- semi og mannval háskólans, og virðast vart eða ekki hafa komið auga á þá menn í kennaraliði skólans, sem jafnan liaía rækt kennslustörf sín og vísindaiðkanir með frábærri alúð og samvizkusemi og unnið traust nemenda sinna og erlendra stéttarhræðra. En þessir menn eru því miður allt of fáir, hinir fyrnefndu of margir, og lijá þeim og þeirra líkuni liggur liöfuðsökin. Hinir andlega daufu prófessorar liöfðu smám saman komið þeirri skoðun inn hjá valdhöfum landsins, að há- skólinn væri einkisverð stofnun, sem ekkert væri ger- andi fyrir. Áhrif þessa hal'a löngum komið fram í full- komnu hirðuleysi valdhafanna um hag og heill háskól- ans, en nú síðast heinlínis í árásum á hann (sbr. till. Jónasar Jónssonar á Alþingi 1934 og nýsamþ. lög um rannsóknarstofnun í þágu atvinnuveganna). Fyrir rúmu ári tók til starfa Happdrætti Háskóla Is- lands. Ágóðanum skyldi varið til liáskólabyggingar. Allir unnendur háskólans fögnuðu þessu og töldu nú hinn gamla draum um sjálfstæðan háskóla, vísindastofnunina, vera að færast út í veruleikann. En Adam var ekki lengi í Paradís. Nú í marz sl. berst mönnuni til eyrna sú fregn, að meirihluti Háskólaráðs liafi afsalað a. m. k. 200 þús. kr. af ágóða Happdrættisins, helmingurinn verður endurgreiddur smátt og smátt á 10 árum til stofnunar, sem háskólanum er, og verður um ófyrirsjáanlegan tíma, algerlega óviðkomandi. Er þetta mál rækilega tekið fyrir á öðrum stað hér í blaðinu, og skal ég því ekki fara nánar út í einstök atriði þess. Álirif þessa eru þau, að ekki verður liægt að hefjast handa um háskólabyggingu fyr en í fyrsta lagi á árinu 1939. Almennur stúdenta- fundur var lialdinn um málið og var meirihluti Háskóla- ráðs þar hvattur til að gera grein fyrir framkomu sinni á viðunandi og eðlilegan hátt. Jú takk! Það stóð ekki á því. Ágúst H. Bjarnason tók til máls. Sá hafði nú ekki óhreint í pokanum! Það, sem réð afstöðu lians, var, nú eins ogætíð(!), heiður háskól- ans utan lands og innan (sic)!!! Að öðru leyti var ræða hans ineð þeim eindæmum, að sennilega liefir það aldrei komið fyrir í veraldarsögunni, að prófessor í rökfræði hal'i haldið aðra eins ræðu 1 áheyrn nemenda sinna og samkennara. Það væri freistandi að gefa lesendum blaðs- ins stórt sýnishorn af ræðu hans. En sakir þess að rúm er ekki aflögu til slíks, læt ég mér nægja, að hirta smækkaða mynd af ræðunni, einkum rökfræðilegu hlið-

x

Nýja stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.