Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Qupperneq 8

Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Qupperneq 8
8 NVJA STÚDENTAHLAUli) eftirlíkt vara, sem skáldin hafa lofsungið um aldir og fram á þennan dag. Við megum ekki gleyma því, að rætur bókmenntanna fá næringu sína úr lífinu sjálfu. Hreint og saklaust var í raun og veru tii á hinum »gömlu og góðu tímum« og er til enn í dag, þótt ræktun þess sé minni í bókmennt- unum, nema hjá einstaka eftirleguskáldum. sem gleyma því, að fortíðin liggur að baki þeim. Ef við virðum fyrir okkur hina tegundarhreinu Gretchen-fyrirmynd, hvert er þá einkenni hennar? Hið »blíða, hreina og skæra«, sem skáldin hafa tilbeðið, lýsir sér fyrir sjónum hins hlutlausa, raunsæja áhorfanda sem feimni, óframfærni eða hjáræna. Þetta eru þau nafnorð, sem honum myndi detta fyrst í hug. Raunsær nútímamaður lætur sér ekki nægja ytri einkenni ein. Hann rýnir sálarlífið, sem gef- ur útlitinu sakleysissvipinn. Þá finnur hann, að það, sem mótar þennan svip, er undarlegt tóm, skortur á lífsreynslu; óvitund og úrræðaleysi gagnvart hlutlægum fyrirbrigðum veruleikans. Hann skyggnist enn lengra, leitar að orsök. Úr bláu, saklausu augunum les hann misheppnað uppeldi, úrelta fordóma og siðaprédikanir, sem fyrir löngu eru óframkvæmanlegar í sjálfu lífinu og valda því eingöngu truflun á eðlilegri þróun sálar- lífsins hjá viðkomandi unglingi og skilur hann eftir úr- ræða- og varnarlausan, þegar hann þarf sjálfur að fara að hugsa og framkvæma. Það úir og grúir í íslenzkum bókmenntum af lýsingum, sem sýna, hvernig hin »dyggð- uga« mær, nýkomin úr föðurhúsunum í hið ólíka »synd- um spillta« umhverfi, fellur fyrir fyrstu freistingunni, sem mætir henni. Þar að auki kannast flestir við slík »æfintýri« úr sjálfum veruleikanum. Astin er notuð sem yfirskin, og Gretchen-fvrirmyndin, sem er samgróin »hin- um hreinu dyggðum«, glæpist á henni í trúgirni sinni. Glöggt dæmi þess sýnir Zuckmayer á einum stað í »Fröhlicher Weinberg«. Það er Gyðingur, farandsali, sem dregur unga, ásthneigða stúlku inn í geymsluhús til að ná samvistum við hana. Hún veitir honum mótstöðu, þangað til hann fullvissar hana um »eilífa ást« sína. Gamli »frasinn« nægir. Þannig eru ástarheit og önnur fögur orð skæð vopn í höndum ófyrirleitinna manna, hvar sem Gretchen-»typan« verður á vegi þeirra. Yið sjáum á þessu, hvernig ástatt er fyrir henni, þegar hún kemur í nýtt umhverfi, sem hefir, 1 fljótu hragði séð, allar heimsins lystisemdir að hjóða. Annars vegar strang- ar, óraunhæfar uppeldisreglur, hins vegar hennar eigið eðli. Með þessu er teflt fram tveimur »ég«-um á móti hvoru öðru í sálarlífi hennar. Hún á í ráðvilltri barátlu við sjálfa sig. Ákvörðun, sem gerð er eftir slíka baráttu, lendir oftast út í öfgar. Hún velur annað og lokar aug- unum fyrir því, sem hún hafnar. Þar er enginn meðal- vegur. Þetta er árangur hins stranga uppeldis. Það er fjandsamlegt veruleikanum. Þótt hún sé alin upp við ströngustu siðareglur, þá er hún þó allt af kvenmaður. Eðlilegt og óþvingað uppeldi skapar aldrei neina Gret chen með sakleysi, þ. e. þekkingar- og úrræðaleysi, í augum. Frá barnæsku kynnist stúlkan öllum hliðum lífsins og varar sig á freistingum þess. Hún stendnr aldrei ráðvillt og úrræðalaus með hendur í skauti sér og bíður þess sem verða vill. Hún veit, hvað hún vill. Líf hennar verður ekki barátta milli tveggja andstæðra »ég«-a. Það er ómögulegt fyrir skáldin að nota hana sem sakleysis-fyrirmynd. Þetta er nútímastúlkan, sem kyn- slóðin frá í gær hristir höfuðið að og finnst siðspillt. Munur þessara tveggja tegunda liggur í uppeldinu. Uppeldið kennir nútímastúlkunni: Jafnaldrar þínir af gagnstæðu kyni eru félagar þínir. Umgengni við þá á að vera óþvinguð og eðlileg. Yeljirðu þér einhvern af kyn- ferðilegri þörf, þá er hann samt sem áður fyrst og fremst félagi þinn. Reynslan kennir henni að dýrka ekki, tilbiðja ekki, heldur standa sjálfstæð, jafnvel liálf lramandi gagn- vart honum vel vitandi það, að þau eru tveir einstakl- ingar, sem bæði eiga sín réttindi, sjá glöggt galla hans, en meta þó manninn í honum, þrátt fyrir allt. Uppeldið kennir Gretchen—fyrirmyndinni: Þú ert dýrmætt og fjarlægt hnoss (hlutur), sem þarf að keppa eftir og sigra. Þér er aðeins einn útvalinn. Þangað til liann kemur, átt þú að bíða með langlundargeði dyggð- ug og hrein. Helzt máttu ekki kynnast neinum öðrum. Þegar liann kemur, kemur hann tilbiðjandi fegurð þína og dyggð, og þegar þú svo ert gengin í heilagt hjóna- band, þá áttu að vera manni þínum auðsveip og undir- gefin. Þótt henni sé ekki sagt þetta með orðum, þá drekk- ur hún í sig þennan uppeldisanda í heimilislífinu, þar sem faðirinn er einvaldur og dýrkun karlmennskunnar situr í öndvegi. í fáum orðum er munurinn þessi: Nútímastúlkan er aktiv. Gretchen er passiv. Þessi siðíræði og árangur hennar, Gretchenfyrir- myndin, er engin ímyndun. Fyrirmyndin hefir ver- ið dýrkuð allt frá fyrstu tímum liinnar yfirborðsfáguðu menningar. Eftir að hún komst inn í bókmenntirnar, hafa þær stuðlað að því, að lialda fyrirmyndinni sem hreinastri: saklausri, einfaldri, auðsveipri, tryggri. Mynd- in verður þar fögur hlekking. Ef til vill liggur aðal- blekkingin í þeim mun, sem er á bókmenntunmn og lífinu, því að sagan og Ijóðið endar með giftingu, þegar Gretchen innheimtir alla jafnan sín laun, en líf'ið held- ur áfram, meðan hún tekur út á þau aftur. Áður tiJ- hiður maðurinn konuna. I hjónahandinu tilhiður kon- an manninn. Áður gerði maðurinn sig að Jjræli kon- unnar (1 orði kveðnu), nú er konan ambá.tt mannsins. Árangur gömlu siðfræðinnar, sein fær ljóma sinn frá fyrirmynd sakleysis og hreinleika, og konan ber úr hýtum, er þá annað tveggja: Þrælkun í hjónahandi eða »hrösun« eins og áður er lýst. (Undir þennan lið heýra ekki þær, sem nota aðdáun karlmannsins til að auka vald sitt og dýrð. Þær liafa aldrei verið á valdi þessar- ar siðfræði, heldur hafa þær hana á valdi sínu). Hver er svo frumrótin að þessum blekkingaleik? Það hefir

x

Nýja stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.