Dvöl - 04.02.1934, Page 6

Dvöl - 04.02.1934, Page 6
4 D V Ö L 4. febrúar 1934 M. Lantin féllu þessi umsvif illa og það var að honum komið að segja: „Ég veit vel, að þetta er einskis virði“, þegar skartgripa- salinn tók til máls: — Herra minn, þessi hálsfesti er tólf til átján þúsund franka virði; en ég get ekki keypt hana, nema þér skýrið mér nákvæmlega frá því, hvernig á henni stendur. Ekkjumaðurinn stóð þarna og glá])ti opnum munni, og hotnaði hvorki upp eða niður í því, sem kaupmaðurinn var að segja. Loks stamaði liann: — Þér segið .... eruð þér viss- ir um þetta? Hinn svaraði þurrlega: Þér getið l'arið til einhvers annars og vitað, hvort yður býðst meira. Ég álít, að festin sé fimmtán þúsund franka virði i mesta lagi. Komið þér aftur, ef yður hýðst ekkert hetra. M. Lantin tók við festinni, al- veg steinhissa, og fór út, hlýðinn einhverri óljósri j)rá el'tir því að vera einn og liugsa mál sitt. Þegar hann kom út, lá honum við að hlægja, og hann sagði við sjálfan sig: Bölvaður asninn! Bara ég hefði tekið hann á orðinu. Hann ])ekkir ekki eftirlíkingu frá egta demöntum! Fáum mínútum síðar gekk hann inn i aðra húð í Bue de la Paix. Óðara og kaupmaðurinn leit á feslina, gall hann við: — Iivert í logandi! Hana kann- ast ég við, liún var keypt hér. M. Lantin varð órótt og spurði: Hvers virði er hún? — Nú, ég seldi liana fyrir tutt- ugu og fjögur þúsund. Ég er til með að taka liana aftur fyrir álj- án, ef þér skýrið mér frá því, eins og lög mæla fyrir, hvernig hún er komin i yðar eign. Nú settist M. Lantin niður, eins og þrumulostinn af undrun. Hann svaraði: — En — en alhugið hana vel. Þangað til nú hefi ég haldið, að J)etta væri eftirlíking. Þá mælti kaupmaður: Hvað heitið þér, herra minn? Lantin — ég er skrifstofu- maður í innanrikisráðuneytinu. Ég á lieima á Rue des Martyrs 16. Kaupmaður fletti upp i hókum sínum, leit yfir þær og mælti: — Þessi festi var send heim til frú Lantin í Rue des Martyrs 16, tuttugasta júlí 1876. Þeir horfðust í augu ekkju- maðurinn orðlaus al' undrun, skartgrapasalinn með grunsemd um að hér væri þjófur á ferðinni. Hinn síðarnefndi rauf þögnina og mælti: Viljið þér skilja festina eftir hjá mér þangað til um jjetta leyti á morgun ? Ég skal láta yður liafa viðurkenning fyrir að liafa tekið við henni. —- Sjálfsagt, sagði M. Lantin, og var fljótur lil svars. Svo stakk hann viðurkenningunni í vasa sinn og gekk út. Hann gekk yfir um slrætið og |

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.