Dvöl - 04.02.1934, Side 14

Dvöl - 04.02.1934, Side 14
12 D V O L 4. febrúar 1934 Kaffib olli. Eftir Ivan Cancar. Um æfina hefi ég oft hryggt þá veru, sem ég unni mjög. Það er trú min, að um þetta sé líkt farið og syndiria gegn heilögum anda, sem hvorki yerður fyrirgefin ])essa heims né annars. Minningin um þetta getur sofið í mörg ár, nærri því gleymzt í ys og erli hins daglega lífs. Svo vakn- ar hún skyndilega. Það getur skeð á gleðimóti, eða i iiræðileg- um draumi um þögla nótt. Og hún leggst þungt á sálina, hún l)rennir og kvelur samvizkuna, eins og- verknaðurinn sé nýlega framinn. Aðrar minningar er hægt að þurka út og afmá með góðum verkum, heilögum hugsunum eða djúpri iðrun. En þessi gleymist aldrei. Hún hvílir alltaf eins og skuggi á sálinni. Hversu feginn myndi maðurinn ekki reyna að þvo þennan blett af samvizkunni, reyna að draga úr afhrotinu .... Það var ekki alveg svona slæmt .... Þú ert of viðkvæmur og ger- ir úlfalda úr mýflugunni .... Þetta var aðeins tilviljun, slikt skeður oft á dag, myrkranna á milli .... En þetta er aðeins svikul Imggun, þvi maðurinn veit mjög vel og finnur sárlega til þess, að hann er einungis að hlekkja sjálfan sig. Verlcnaðurinn er og verður hinn sami, hvort lieldur hann er framinn sjaldan eða oft, einu sinni eða þúsund sinnum. Hjarta mannsins er ekki eins og hegningarlagabálkur, sem gerir greinarmun á ásetningi og gálevsi, drápi og morði. Hetjan eyðir og drepur með sverðinu, en svikarinn gerir hið sama með einu augna- tilliti. Og hjartað er fúsara til að fyrirgefa hið fyrra lieldur en hið síðara. Ekki likist hjartað lieldur trú- arkenningum kirkjunnar, scm að- greina syndirnar í stórsyndir og smásvndir, dauðasyndir og fyrir- gefanlegar syndir. Hjartað er rétt- látur, óskeikull og ólilutdrægur dómari. Það dæmir hinar leynd- ustu hugrenningar, skyndilegt augnatillit, sem engiun sér; allar liugsanir mannsins, sem ekki eru látnar i ljós. Það leggur jafnvel dóm á það, hvernig maðurinn gengur, I)er að dyrum eða drekkur te. Iljartað er rannsóknardómari, sem sannprófar innstu fylgsni mannlífsins. Trúarlærdómarnir taka ekki til allra synda og vissulega ekki til þeirra þyngstu. Væri hjarta vort skriftafaðir, hversu langar og hræðilegar játningar yrði það þá ekki að lieyra! Syndir, sem liægt er að kannast

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.