Hænir - 10.11.1923, Side 5
1 tbl.
H Æ N I R
3
Auglýsing.
Stjórnmálafundur verður haldinn að Egilsstöðum 24. jnnúar 1924
og byrjar kl. 12 á hádegi, að búnaðarnámsskeiðinu loknu.
Hallgr. Þórarinsson. Björn Hallsson.
Sveinn Jónsson. Benedikt G. M. Blöndal.
Ásmundur Guðmundsson.
Tilkynning.
Eigendur Aurasjóðsbóka eru hér með beðnir um að afhenda þær
hið bráðasta formanni Aurasjóðsnefndar, Einari Methúsalemssyni,
heildsölustjóra, til vaxtainnfærslu.
F. h. Verzlunarmannaíélags Seyðisfjarðar.
Sig Arngrímsson
formaöur’
Prentsmiðja Austurlands
selur eftirfarandi gegn pöntun:
Nótubækur tvíritaðar og allskonar aðrar afhendingabækur. Reikninga,
ávísana- og víxil-eyðublöð, áprentuð bréfsefni, umslög og fleira. —
Verð og allur frágangur samkeppnisfær við aðrar prentsmiðjur.
— Leysir af hendi allskonar prentanir, bæði fljótt og vel. —
Sameinuðu íslenzku verzlanir, Seyðisf.
hafa mikið úrval af álnavöru og nærfatnaði allskonar-
Flugur
eftir Jón Thoroddsen yngri,
höfund leikritsins MaríaMagdalena.
Jón Thoroddsen: FLugur, bls. 5—6:
„Eg lá uppí sóffa, og lasskáld-
skap eftir ungan og efnilegan rit-
höfurid. Eg naút þess, ,að hafa
ekki skrifað bókina sjálfur, ogtaut-
aði fyrir munni mér:
Aumingja maðurinn. Og þetta
er víst allra vænsti piltur.
Sfðan lagði eg frá mér bókina
og brosti.
Eg veit ekki hvort á mig hefir
runnið svefnmók, en margt kom
mér undarlega fyrir. Eg horfði á
skrifborðið og kinkaði kolli til
skúffu, sem er verð þunga síns í
gulli. Eg sá ekki betur en hún'
væri opin, og upp úr henni flaug
eitthvað svart.
Ha — ? Hvað — ? Flugur.
Hamingjan góðá. Og eg sem
var að vona, að eg væri í bind-
indi.
Flugurnar flykkjast að mér, sóp-
ast í kriiig um mig, sveima um
höfuð mitt. Þær hafa mig að háði
og spotti . . .“ etc. í sama tón.
Undirritaður:
Ég lá uppi á legubekk og las
Flugureftir Jón Thoroddsen yngri.
Ég naut þess að hafa ekki skrifað
bókina sjálfur — og tautaði fyrir
munni mér:
— Aumingja maðurinn. Og þetta
er víst allra vænsti piltur.
Síðan stakk ég bókinni ofan í
tómaskrifborðsskúffu — og brosti
ekki.
Ég veit ekki, hvort á mig hefir
runnið svefnmók, en margt kom
mér undarlega fyrir. Ég kinkaði
kolli til skúffu, sem í voru 53
prentsvertar blaðsíður. Ég sá ekki
betur en hún væri opin, og upp
úr henni flaug eitthvað svart.
— Ha —? Hvað —? Flugur?
Hamingjan góða! Og ég, sem
var að vona, að ég hefði ekki
bragðað annað vott en vatn og
kaffi dögum saman.
Flugurnar flykkjast um bækur
þeirra Maeterlincks og Wildes,
srnjúga inn á milli blaðanna, sjúga
svertuna, efnið, orðin — en and-
inn er ekki flugnafæða. Og alt í
einu þjóta þær innan í gamalt
„Óðins“b!að, stinga Jón Björnsson
í nefið og suða vonzkulega. Síð-
an flögra þær undir fötin hjá Mar-
íu Magdalenu — og — guði sé
lof — síðan hefi ég ekki séð flug-
ur . . . En ég hefi ekki gætt ofan
í skúffuna.
Guðm G. Hagalín.
Loftskeytanýjungar.
Vélfræðisieiðbeiningar í loftinu.
Sjaldgæft dæmi um hina miklu
jjýðingu loftskeytatækjanna fyrir
siglingar, skeði nýlega á amerísku
mótorskipi, sem varð olíulaust á
langri leið. Skipið náði með
naumindum höfn á afskektum stað,
þar sem engin olía var fáanleg,
nema af einni tegund, sem enginn
kunni deili á til motorneyzlu.
Skipið sendi út fyrirspurn um
olíuna, frá loftskeytastöð sinni, og
fékk samstundis frá v.élfræðingum
olíufélagsins nauðsynlegar leið-
beiningar, um notkun olíunnar
fyrir vélina, og gat þannig haldið
áfram ferðinni.
Nýmæli.
Stjórnin í Kanada hefir nvlega
skipað loftskeytastjóra („Radio-
minister“), sem á að hafa á hendi
gæzlu allra mála á því sviði. í
Kanada eru talin að vera um
150,000 loftskeyta móttökutæki í
notkun, og hvert þeirra gefur rík-
inu 1 dollar árlega <\ tekjur.
Loftskeytetæki í fangelsunum.
í Ameríku er á dagskrá að setja
toftskeytatæki í fangaklefana. Og
er álitið, að það mundi geta haft
milda þýðingu í síðmenningarlegu
tilliti, og bætandi áhrif á hugarfar
fanganna og líferni.
2000 hlusta.
Hinn 26. f. m. hélt Baldwins,
stjórnarforseti Breta, ræðu í
Plymouth um skaðabótagreðslu
Þjóðverja. Viðstaddir voru um
5000 manns. En 2000 hlýddu, auk
þess, á ræðuna gegn um loft-
skeytatæki.
Söngur, bljómiist og fyrirlestrar.
Þeir, sem hafa loftskeytatæki,
bæði á landi og skipum, geta
skemt sér við að hlusta á söng,
hljóðfæraslátt, fyrirlestra og upp-
lestur frá þar til gerðum sendi-
stöðvum í stórborgunum. Þessar
skemtistöðvar gefa út skemtiskrá
eins og hvert annað leikhús. Og
er skemtiskráin auglýst fyrirfram
víðs vegar um heiminn. Sem sýnis-
horn af því hvað þessar stöðvar
geta haft að bjóða, skal hér birt
skemtiskrá frá stöðinni í Lundún-
um (Londons Rundradio) fyrir
fimtudagskvöldið 25. okt. síðastl.:
„Kl. 8.25: Loftskeytafélag mikla Bret-
lands. Nýjungar og veðurfréttir.
Kl. 8.35: Hljóðfærasveit hernranna
„His Majestys Grenadier Guards“:
„A children’s Overture" (Quilter),
Piccolo Solo „Echo des Bois“
(Damare), Præludium (Jarnefeldt).
Tenorsöngvarinn William East:
„Since you have sntiled11 (Dorothy
Forster), „For You Alone“ (Henry
Geehl).
Kl. 9.15: Garðþátturínn úr „Faust„
(Gounod), leiksöngvarar „Old Vic“.
Kl. 10: Hljóðfærasveit hermanna:
„A Keltic Suite“ (Foulds).
Kl. 10.10: Mr. Antony Bertram flytur
fyrirlestur frá „National Portrait
Gallery" um myndir af mönnum
sögunnar.
Kl. 10.30: Fréttir. Lífvarðarsveitin leikur
fjögur sönglög. Opus 54 (Grieg): 1.
Hjarðsveinninn. 2. Norsk Bonde-
march, 3. Nocturne, 4. Dværgenes
March. Williant East: „Indverskur
ástasöngur eftir Woodforde-Finden:
„Song of Araby“ (Clay). Lífvarða-
sveitin: „Valse Lyrique (Sibelius),
Kornetsolo „Quaud tu chantes"
(Gounod).
Skemtiskráin er ekki óálitleg, og
mundi margur hér óska, að geta
notið slíkrar skemtunar við og
Tilmæli.
Þeir einstaklingar og útsölumenn, sem fá
Hænl Scndan, eru vinsamlega beðnir að
tilkynna ritstjóranum, svo fljótt sem
unt er, um kaup á blaðinu.
við, en því er nú ekki að heilsa.
Blaðið vonar samt, að þetta sýnis-
horn hneyksli ekki þá, sem þetta
hefirverið vitanlegt áður. En þeim,
sem ekki er eiris kunnugt um
hina framúrskarandi fullkomnun
á þráðlausa sviðinu, er þetta gefið
til vitneskju.
Markið.
í Þýzkalandi voru um tíma
prentaöir seðlar fyrir 120,000
billjónir mörk daglega, og hrökk
ekki til. Fyrir skömmu var einn
daginn eftirspurn eftir hér um bil
1 billjón billjóna marka í ríkis-
bankanum. En þar eð bankinn
hafði ekki svo mikla peninga til,
varð að stöðva útborganir. Seðla-
útgáfan var aukin svo, að eftir
nokkra daga voru prentaðir seðl-
ar fyrir x/a triljóri á dag. Samtímis
voru út gefnir 1 milljónar mark-
seðlar.
Sögur Rannveigar, 1. hefti,
eftir Einar H. Kvaran, er komið
út í danskri þýðingu hjá Asche-
haug.
Heyrt og séð.
Hjúskapur.
Laugardagskvöldið 3. þ. m. gaf sókn-
arpresturinn saman ungfrú Unni Sveins-
dóttur (yfirfiskimatsmanns Árnasonar)
og Snorra símritara Lárusson (Tómas-
sonar bóksala).
Til hamingju.
Blaðiö
„Austanfari11 er hætt að koma út.
Ritstj. Guðm. G. Hagalín mun flytja til
Reykjavíkur innan skamms ogsnúa sér
meira að skáldritagerð.
Umdæmisstúka
fyrir Austurland v*r stofnuð á Norð-
firði hinn 30. f. m. Tóku 5 undirstúkur
og 3 barnastúkur þátt í stofnuninni.
Árni Vilhjálmsson,
læknir, er seztur að hér f bænum
sem aðstoðarlæknir héraðslæknisins.
Mikill ósómi
er að því sem skrifað er innan á
þiljur „litla hússins11 við brúna. Er það
þeim mun andstyggilegra þar sem ýmis-
Iegt bendir á, að þetta sé gert af ungl-
ingum og jafnvel börnum. Þetta ætti að
afmá þegar í stað. Annars er og verður
þessi staður bæjarskömm. Eða hvaða
álitætli ferðamenn fái á siðferðisástand-
inu, ef slíkt er látið viðgangast? Því
er víst fljótsvarað.
Úr símanum.
Þeir eru að tapa þingsætum,
þeirra er dapur kliður,
— þæfa krapa í þjóðmáluin,
þeir eru að hrapa niður.