Hænir - 23.11.1927, Side 1

Hænir - 23.11.1927, Side 1
Ritstjóri og ábyrgöarm.: Sig. Arngrímsson Talsími 32 :: Pósthólf 45 jamtTTrnrmm-iTm-minrnTTTnaaaq : Kemur út einu sinni í viku : minst 52 blöö á ári. Verð 6 kr. árg. Gjaldd. 1. iúlí, inn- : anbæjar ársfjórðungslega. — ■ L-r... ■■ .r, ^. v.-.^rTrTrj 5. árg. Seyöisfiröis 23. nóvember 1927. 32. tbl. Kristjén Kristjánsson héraðslæknir. Nemuin staðar! Hljóðir — hljóðir! Hringja ■klukkur: dáinn— dáinn! Ómar líða englaslóðir ofar, hærra’ í stirndan bláinn. — Hlýrra söngva’ er horfinn kliður, harpan þögul, strengur brostinn. Hjúfrar sorgar helgur friður, harmi fjöldi Vir.a lostinn. Glóðir himins gullnar slökna, gjóstar kalt af útnyrðingi, angrast hjörtu, augu vökna •ærið mörgum Seyðfirðingi: Hniginn er hinn höfðinglyndi, hjartaprúði, góði drengur,' læknirinn, sem allra yndi ætíð var, og munast lengur. En, — er rödd, sem unnum, þagnar, út er ljósið skæra brennur, bylur kurlar eik til agnar, æfi manns á helþrep rennur, — er ei von aó við sé dvalið, veki athug: kurlið, flagið, brendur stjaki, bráljós kalið, brostið hjarta, útcfautt lagið. Óðul áttu í hug og hjarta hreinskilni og íturlyndi. Lengi minning manns þess skarta niun því, björt sem mjöll á tindi geisium blikuð sólar sjálfrar. Sorti hræsnis náði’ ei taki. Einlægninnar aldrei hálfrar af ugg hann neytti’ eða smaugað baki Að drengskap varhann margra maki, máttu tugir afls þar neyta, aldrei bragði eða taki áníðs þó hann hygöist beita. Réttlætinu vildi’ hann vinna, varast aðra röngu beita, vildi’ í hlut sinn heldur minna hljóta’ en falskrar rnyntar leita. Frjáls í hugsun, heill í skapi, hreinn og djarfur þegar reyndi. Máli vildi’ ei vita að tapi víl og engan ráðum leyndi. Hvar sem góðverk var að vinna vildi’ hann reynast brattasækinn. Öllum vildi’ af alhug sinna, örlátur og vinarækinn. Vinur lista — vinur ljóða — vinur söngs og hörpuleika, lék við móðurmálið góða, mátti hvergi’ í svörum skeika. Oddviti á öllum fundum örra leika, skemti-siyngur, góðsamlega glettinn stundum — gleðin lék við hvern sinn fingur. En mundi ei kenna sviða í sárum særöur þröstur, vængjabrotinn, að líknarstarfi á liðnum árum, loks að kraftur afls var þrotinn? Nú skal ekki honum hæla. Helgir dómar verða’ ei skakkir: Ef að dúfan mætti mæla mundi kveðjan: hjartans þakkir. Lífið átti ást hans alla, engjablóm og fuglinn smái. Hörpu guðs síns heyrði’ hann gjalla í hjarta barns, í smæsta strái. Lífsins djúpa lyfti’ hann rómi létt úr gullnum strengjum sínum. Gakk nú heill að helgum dómi. Hvílík birta á vegi þínum! Sig. Arngrímsson. Jarðarför Kristjáns læknis Krist- jánssonar fór fram í gær áð við- stöddu alveg óvanalegu fjölmenni, víðsvegar að úr Seyðisfirði og ennfremur Mjóafirði. Hófst hún kl. 12 á hádegi á heimili hins látna með ágætri húskveðju, er sóknar- presturinn séra Sveinn Víkingur flutti. Á undan húskveðju varsung- ið „Kallið er komið“, en á eftir henni voru sungin yndisleg kveðju- erindi frá söngfélaginu „Braga“, eftir Jóhannes Arngrímsson verzl- unarmann, og birt eru hér á öðrum staö. í kirkjunni flutti presturinn aftur sérstaklega góða ræðu. Á undan ræðunni vai sung- inn sálmurinn „Ó, blessuð stund“, og á eftir „Alt eins og blómstrið eina“. Af heimilinu og í kirkjuna báru bæjarfulltrúar kistuna, en út úr kirkjunni og nokkuð áleiðis Verzlunarmannafélagið, en síðan tók „Bragi" við og bar hana inn í kirkjugarðinn. „Bragi annaðist og allan söng við athöfnina, sem fór mjög vel. í kirkjunni voru til heiðurs hinum látna, kransar born- ir uppi beggja megin kistunnar á meðan þar var staðið við og einn- ig á leiðinni þaðan og inn í kirkju- garð. En fyrir kistunni var borin harpa bundin úr blómum, er var gjöf frá „Braga“. Mesti fjöldi af krönsum og minningarspjöldum frá vinum hins látna, félögum og einstaklingum, hafði borist víðsveg- ar að og sægur af samúðarskeyt- um til ekkj&nnar út af fráfallinu. Auk hörpunnar frá Braga, sem áður er getið, voru blómkransar, frá öðrum en einstaklingum, frá bæjarstjórninni hér, Kvenfélaginu „Kvik“, Kvenfélagi Seyðisfjarðar, Verzlunarmannafélagi Seyðisfjarð- ar, Sjúkrasamlagi Seyðisfjarðar og frá bankastjórn fslandsbanka í Rvík, en gæslustjóri útbús bankans hér hafði Kristján verið langt tímabil. Meðal minningarspjaldanna var eitt frá Læknafélaginu, og af sam- úðarskeytum var eitt frá konsúl Breta í Rvík. Veður var hið ákjósanlegasta meðan á jarðarförinni stóð. Bar athöfnin og alt í sambandi við hana greinilegan vott um virðingu og vinsældir hins látna manns. * Mynd þessi er tekin haustið 1921. Kristján Kristjánsson. Kveðja frá „Braga“. Brostinn er strengur, stendur nú harpan hljóö. Heyrast ei lengur hreimfögur sungin Ijóð. Bar víða yndisóð ómfagur strengur. Grátskýjum ofar gullharpa slegin er, lausnina lofar, Ljóð syngja englaher guðlega gígjan fer, grátskýjum ofar. Jóhannes Arngrímsson. Magnús Helgason kennaraskólastjóri sjötugur. Þann 12. vóv. síðast liðinn átti sjötugsafmæli einn hinn ágætasti og mætasti sonur þessa lands, séra Magnús Helgason kennara- skólastjóri. Hér verður ekki sögð æfisaga þessa ágæta manns, held- ur ekki mældur eða veginn sá menningarskerfur, sem hann með lífsstarfi sínu hefir lagt í viðlaga- sjóðíslenzkrar menningar.það verða örfá orð um kennarann og mann- vininn Magnús Helgason eins og hann kom þeim fyrir sjónir er þetta ritar. Þetta er nú 20. veturinn, sem Magnús Helgason veitir kennara- skóla fslands forsíöðu, og eins og að líkindum lætur eru því orðnir nokkuð margir, sem notið hafa vegsögu hans á þessu 20 ára tíma- bili. Spyrjið þið hvern einasta af þeim eftir Magnúsi Helgasyni og verið viss um, að sama svarið verður hjá öllum, hverjum einasta: Betri kennara og ágætari leiðtoga höfum við engan þekt. Það var sagt um einn ágætan biskup þessa lands: „Þá kemur mér ætíð hann í hug er ég heyri góðs manns getið“. Af öllum þeim, sem ég hefi kynst, mér vanda- lausum, finst mér þetta við engan eiga betur en Magnús Helgasoij, mér hlýnar ætíð í hug, er ég minn- ist hans, og þeirrar stundar, er ég bar gæfu til að vera undir hand- leiðslu hans. En hvers vegna? Hann er óvanalega kærleiksríkur maður. „Mér finst allir menn vera svo góðirogelskulegir“, sagði hann eitt sinn er einhvern mannjöfnuð bar á góma. Hann á þessa dýrmætu bjartsýni á alt þetta góða og göf- uga í manneölinu, og hann á [Framh. á 3. bls.]

x

Hænir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.