Hænir - 23.11.1927, Blaðsíða 2

Hænir - 23.11.1927, Blaðsíða 2
2 H Æ N I R Seyöisfiröi hafa fyrirliggjandi: Hesta-hafra. 0c®(2X5><axs><2X5)<2xst2acs)®<aix5><aac5><axs<aac5)®acs><SEC5)C5» § VERZLUNIN ST.TH. JÓNSSON1 hefir umboð fyrir: Brunaábyrgðarfélagið „Nye Danske" Lffsábyrgðarfélagið „Danmark" Sjóvátryggingafélagið „Danske Lloyd“ Munið eftir að tryggja bæöi líf og eignir. — ><2OC5X»><2a25X2aCS>0 Innilegustu hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn- ingu viö hiö sviplega fráfall og jaröarför okkar elskulega sonar og bróöur, Karls Stefánssonar. Fáskrúðsfirði, 19. nóv. 1927. Móðir og systkini hins látna. Hnífsdalsmálið. Þeir Hálfdán Hálfdánsson og Eggert Halldórsson voru leystirúr varðhaldinu fimtudaginn 10. þ. m. Réttarhald f Bolungarvík. í Hæni 12. þ. m, er í fréttaskeyti getið um réttarhald í Bolungarvík yfir hreppstjóranum þar og úr- skurð um gæzluvarðhald, en ekki greint frá ástæðum. En í „Vestur- Iandi“ frá 12. þ. m. er greint svo frá þessu: „Tók hann (rannsóknardómar- inn) hreppstjórann þar, Kristján Ólafsson, fyrir rétt, lagöi fyrir hann tvo atkvæðaseðla fjærgreidda í N-Isafjarðarsýslu og lýsti hrepp- stjórinn yfir, að hann hefði skrifaö þá báða. Tilnefndi hann gömul hjón þar í Bolungarvík, sem á kjörskrá voru í Súðavíkurhreppi og kusu hjá hreppstjóranum. Sögðust þau ekki geta kosið sjálf og báðu um aðstoð. Veitti hreppstjórinn þessa aðstoð, eftir að hafa geng- ið all-fast eftir því, hvort kjósend- urnir gætu ekki greitt atkv. að- stoðarlaust. Tveir vottar voru við kosning- una, og mættu í réttinum. Bar þeim báðum í öllum atriðum saman við hreppstjórann En ei gömlu hjónin komu í réttinn, könnuðust þau í fyrstu ekki við, að hafa fengið aðstoð, þótt þau breyttu þeim framburði síðar í réttinum. Er það álit manna í Bolungarvík, og raunar vissa, að þessi gömlu hjón hafi, þegar dóm- arinn hóf yfirheyrsluna orðið hrædd um það, að hreppstjóri hafi gerst brotlegur í því að að- stoða þau, og hafi viljað firra hann vandræðum. En dómarinn notaði þetta til þess að snúast með miklum fárskap gegn hrepp- stjóranum, sem er valinkunnur maður og nýtur almennings trausts í Bolungarvík. Dómarinn kærður. Má af fram- komu dómarans nokkuö af því marka, að hreppstjórinn hefir kært hann fyrir ríkisstjórninni fyrir hlutdræga bókun og ósæmilega framkomu í réttinum". Afskifti borgaranna. Um af- skifti borgaranna í Bolungarvík í sambandi við þetta var einnig drepið á í Hæni 12. þ. m., en frá þeim segir Vesturland á þessa leiö: það er nú svo, að til eru enn í ísafjarðarsýslu menn, sem ekki láta bjóða sér alt; greip gremja Bolvíkinga og fyrirlitningfyrir fram- ferði dómarans svo um sig, að á þriöjudagskvöldið, er þeir þóttust ekki sjá, hvarfárskapur hans mundi láta staðar numið, gengu þeir all- margir heim til hans. Fór Pétur Oddsson kaupmaður inn til hans og tilkynti honum í sínu nafni og margra þorpsbúa, að þeir mundu ekki leggja fram þá 4000 kr. trygg- ingu fyrir návist hreppstjórans, er dómarinn krafðist, og að þeir mót- mæltu því, að hreppstjórinn yrði fluttur í gæzluvarðhald að ekki meira rannsökuðu máli. Enn frem- ur að dómarinn gæti þá þegar fengið flutning til ísafjarðar. Dómarinn ætlar nú „í konungs- ins og laganna nafni“ aö setja rétt yfir Péti i, en vottar voru ekki viðlátnir. Benti Pétur honum þá á, að þar úti fyrir mundi kostur nægra vitna. Gengu þeir þá út í dyrnar, en þar voru 80—100 menn saman komnir. Hermdi Péturfyrir þeim þau orð, er hann hafði bor- ið dómaranum — og spurði þá, hvort rétt væri flutt og í þeirra umboði. Svöruðu þeir aliir játandi og með almennu dynjandi húrra- hrópi. Var sem dómaranum gleymdist í þessum svifum, að hann væri „lögreglustjóri yfir öllu fslandi“. Akvað hann að þyggja hinn boðna farkost þegar í stað. Og engin svigurmæli hafði hann á leiðinni til skips; fylgdu honum þó um tvö hundruð manns. Voru kveðjur af hendi Bolvík- inga á þessa Ieið: „Burt með hlut- drægnina! Réttlæti og drenglyndi lifi!“ Á fimtudagskvöldið v<ar almenn- ur borgarafundnr í Bolungarvík. Voru þar í einu hljóði samþykt mótmæii gegn aðförum rannsókn- ardómarans". Þó að það rirðist nú ætla að sýna sig, að Bolvíkingar hafi haft rétt fyrir sér um sakleysi hrepp- stjórans, mun alment litið svo á, að mótþróanum hefðu þeir ekki átt að beita. Drög til skýringar. Uppruni málsins er þessi: Að kvöldi 4. júlí s. 1. snúa þrír alþingiskjósendur sér til Hálfdánar Hálfdánarsonar hrepp- stjóra í Hnífsdai,af því þeir töldu ekki líklegt að þeir yrðu komnir heim fyrir kjördag 9. júlí, úr sjóferð er þeir voru aö búa sig í. Mennirnir hétu Kristinn PétUrsson skipstjóri, Halldór Kristjáns- son og Sumarliði Hjálmarsson. Innílegt þakklsti til þeirra, sem auðsýndu mér hjálp og hluttekniugu við veikindi og útför litlu stúlkunnar minnar, Jðnínu Aðalheiðar Oddsdðttur. — Einnig bið ég „Hæni“ að bera kveðju mína og hjartans þakklæti þeim, sem á síðasti. vori hjálpuðu og sýndu mér hluttekningu í tilefni af hinu sorglega fráfalli eiginmannsins míns, Odds Gíslasonar á Dallandi. Anna Sveinsdöttir. Hreppstjóri og skrifari hans voru ekki heima er mennirnir komu, voru við fjársmölun, en komu þó brátt heim, og snéri hreppstjóri sér þá þegar til kjósendanna, er biðu á skrifstofu hans, afhenti þeim kjörseðla með viðeigandi umslögum. Voru kjósendurnir látnir fara inn í annað herbergi til þess, að skrifa nöfnin á seðlana, og fór ekki nema aðeins einn kjósandi í einu inn í kosningaherbergið, eins og lög mæla fyrir. Síðan voru fyigibréf kjörseðlanna út- fylt samkvæmt fyrirmælum laganna. Eggert Halldórsson skrifari var viöstadd- ur og var hann annar vitundarvottur að undirskrift hreppstjóra, en kjósendurnir skiftust á um að vera annar vitundar- votturinn. Atkvæðaumslögin skyldu þeir svo allir eftir hjá hreppstjóra. En er þeir fara þaðan, kemur fjórði kjósandinn til að kjósa, Sigurður Guðm. Sigurðsson að nafni. einnig, eins og hinir, úr Hnífsdal. Kosningaathöfn fer enn fram á sama hátt og hjá hin- um, fylgibréf útfylt og frá öllu geng- ið. En að kosningu lokinni tekur hann atkvæðisumslag sitt meö sér sjálfur. Af hinum þremur er það að segja, að á heimleiðinni heyra þeir talaö um að óvarlegt geti verið að skilja at- kvæðaumsiögin eftir hjá hreppsstjóra. Hafa þeir borið, að m. a. hafi Ingi- mar nokkur Bjarnason bent þeim á þetta, en hann hefir hinsvegar heldur viljað færast undan að svo hafi verið. En um það klukkustundu eftir að hin- ir þrír höfðu farið frá hreppstjóra komu þeir Kristinn og Sumarliði þangað aft- ur og sækja atkvæðaumslögin þrjú. Hafa þeir borið, að hreppstjóri hafi af- hent þau tregðulaust. Heiina hjá sér opna þeir umslögin í viðurvist Ingimars Bjarnasonar og segja þeir að staðið hafi nafn Jóns A. Jónssonar á seðlinum, en að þeir hafi skrifað nöfn Finns Jónssonar. . Þegar Sumarliði var spurður að hversvegna hann hefði opnað umslag sitt, sagði hann það hafa verió af því, að hann hefði tvíbrotið seðilinn áður en hann lét hann í umslagið hjá hrepp- stjóra og hefði atkvæðið því verið ó- nýtt hvort sem væri. — Ingólfur Jóns- son lögfr. segir að Sumarliði hafi sagt, að hann hafi þuklað á umslaginu og fundið að seðillinn innan í því var ein- brotinn og paö því vakið sinn grun. En Sumarliði neitar að hafa skýrt svo frá. Kristján og Sumarliði geymdu svo atkvæðaseðlana undir koddanum um nóttina, rísa árla morguns og fara inn á ísafjörð og með þeim Halidór Krist- jánsson. En umslag hans var óopnað. Á ísafirði fóru ,þeir fyrst til Ingólfs Jónssonar og hann með þeim til Finns póstmeistara, en 'Finnur síðan með þeim til Haraldar Guðmundssonar. Þar var umslag Halldórs Kristjánssonar opnað í viðurvist Finns og Haraldar. Sig. Guðm. Sigurðsson kom einnig til ísafjarðar. Segist hann einnig muni hafa tvíbrotið kosningaseðil sinn, áður hann lét hann í umslagið, hefði hann því gert sér feíð til að kjósa að nýju. Fór hann rakleiðis á' bæjargjaldkera- skrifstofuna og hitta þar Ingólf Jónsson og Guðm. Geirdal. Opnaði síðan ums- lagið í þeirra viðurvist, og stóð Jón A. Jónsson á seðlinum, og hafði þó at- kvæöisumslagið aidrei úr vörslum hans farið. Var nú tafarlaust kært út af kosn- ingasvikum og bæjarfógeti setur rétt undir eins, og rannsóknin hefst. Hreppstjóri hefjr skýrt frá, að 24 kjósendur hafi kösið hjá honum. 10 seðlar voru eftir hjá honum ónotaöir með kjörgögnum. En 35 seðla segist hann hafa tekið hjá bæjarfógeta. Hefir fulltrúi bæjarfógeta talið að þetta mundi rétt, en bæjarfógeti sjálfur álítur enga vissu fyrir að svo hafi ver- ið, því að engin skrá sé þar gerð yfir seðla og kjörgögn sem hreppsstjórar fái. — Fimm kjósendur er kosið iiöfðu hjá hreppstjóranum í Hnífsdal og sögðust hafa kosið Finn Jónsson, þektu at- kvæðaseðia sína úr kosningaseðlum sýslunnar. Lauslega eftir „Morgunbl." Hyndsíminn og auglýsingarnar. Eftir að nefnd sú, innan leðuriðnað- ar Bandaríkjanna, sem ákveðaskyldi liti skófatnaðar fyrir haustið 1927, hafði tekið ákvörðun sína, lét hún útbúa auglýsingapésa með myndum og les- rr.áli, sem síðan var afhentur til send- ingar með myndsíma. Eftir hálfan ann- an tíma var hann kominn í hendur 150 Ieðurvöruverzlana hingað og þangað um landið. Voru pésar' þessir nákvæm- lega eins og frumritið. Litirnir voru útskýrðir í texanum. — Er þetta í lyrsta skifti í sögu myndsímans, að heil bók er send með honum. („Símablaðið"). Á aftökudag Jóns Arasonar! Hólabiskups, hinn 7. nóv. s. 1. héldu Akureyrar-bolsjevikar fagn- aðarhátíð til samgleði Rússa-bol- sjevíkum í tilefni af 10 ára bylt- ingarafmælinu. Aðalræður héldu barnaskólastjóri bæjarins og 3 af kennurum gagnfræðaskólans, hinn- ar upprennandi stjörnu Norður- lands — hins nýja lærðaskóla — „arftaka“ Hóia-skóla!

x

Hænir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.