Kosningablað kvenna - 01.06.1922, Page 1

Kosningablað kvenna - 01.06.1922, Page 1
KOSNINGABLAÐ KVENNA Júní 1922 Háttvirtu kjósendur! J>ar sem eg hefi látið til leið- ast að gefa kost á mér til lands- kjörs við koshingar þær, er fram eiga að fara 8. júlí n. k., mun mér skylt að ávarpa yður nokkrum orðum. pað hefir ver- ið tekið fram áður í blaðinu „19. júní“, af hverju konum virtist þær verða að setja upp sérstak- an kvennalista — og mætti auðvitað endurtaka hér, hvaða ástæður þær færðu fyrir því, — en eg tel það óþarft; vil að- eins geta þess, að eg var sam- þykk þessum ástæðum og leiddi það til þess að mitt nafn stend- ur á C-listanum eða kvenna- listanum. þingmál og þingmenska eiga að vera sámeiginleg áhugamál vor allra, jafnt kvenna sem karla, en þar sem þjóðin hefir veitt oss, konum, rétt til þing- setu, hlýtur hún að hafa gert ráð fyrir, að vér gætum fylt þann sess, henni til gagns, og svo má það einnig verða, þar sem vér jafnt og karlmenn get- um aflað oss þekkingar á al- mennum málum, og auk þess hljótum vér, sem konur, að geta bætt upp skilning karlmann- anna á sumum löggjafaratrið- um, er varða miklu framtíð þjóðarinnar. Mér er vel ljóst, að eg hefi gengist undir mikla ábyrgð með því að gefa kost á mér til þingsetu, þó eg telji það langt frá, að það þurfi að leiða til þess, að eg nái sæti á þingi. En skyldi svo fara, að leið mín lægi inn á þingið — mun eg álíta mig komna þangað til þess að gæta hagsmuna þjóð- ar minnar, svo sem eg best veit — til að fylgja því sem flestum má að gagni koma á sameiginlegu þ j óðfélagsheimili karla og kvenna. En auðvitað býst eg við að þau mál gætu komið fyrir, að eg sérstaklega yrði að gæta hagsmuna okkar kvenna. Eg treysti því, að vér kon- ur eigum mál að fylgja og munum fylgja þeim með fullri sannfæringu við kosningar þessar. því að eins reynist kosningarréttur vor og kjör- gengi réttmætur — að vér reynumst hæfar til að neyta hans, þjóð vorri til gagns. Og í því trausti sný eg mér nú til allra kvenna, að þær reyn- ist ötular og öruggar í fylgi sínu við C-listann eða kvenna- listann, til þess að slá því föstu einu sinni fyrir alt, að vér met- um jafnréttið, sem vér hlut- um 19. júní 1915 svo mikils, % að vér viljum leggja út í ofui'- lítinn kosningabardaga — sem‘ af vorri hálfu er knúinn fram af karlmönnum í þetta sinn, þar sem með sanni verður sagt, að þeir hafi ekki orðað það við nokkurt af hinum mörgu kvennfélögum þessa bæjar, að vinna saman við væntanlegt landskj ör. Vér höfum þannig alls ekki skorist úr leik í samvinnu þeirri, er hafin var 1916, þar sem Iieimastjórnarflokkurinn tók þó konu á lista sinn í 4. sæti. Kjörorð vor kvenna í þetta sinn verður að vera: Sýnum í verki að vér metum fengin réttindi! Samtaka sigrum vér! é Virðingarfylst. Ingibjörg H. Bjainason. o- Xja.n_dskj örið. Með stjórnarskránni, sem staðfest var 19. júní 1915, var konum á íslandi veittur kosn- ingaréttuf og kjörgengi til Al- þingis. pá hurfu líka úr sög- unni konungkjörnu þingmenn- irnir, en í stað þess var tekið í lög hið svonefnda landskjör. Eftir þessum lögum var svo, í fyrsta sinn 1916, kosnir 6 þing- fulltrúar og 6 varafulltrúar. 8. júlí næstkomandi fer lands- kjör fram í annað sinn, á 8 þingfulltrúum og jafnmörgum varafulltrúum. pað er í sjálfu sér ekkert einkennilegt, að stjómarfars- leg réttindi kvenna og lands- kjörnir þingmenn, í stað hinna konungkjörnu, skyldi verða samferða í lög með stjórnar- skránni frá 1915, en nú, þegar kominn er fram listi til lands- kjörs, eingöngu skipaður kon- um, þá kynni margur að halda, að þetta tvent hefði ekki fylgst að alveg út í bláinn. Síðan sambandslögin frá 1918 gengu í gildr, hefir oft kveðið víð, að nú væri það skylda þings og þjóðar, að snúa huga og kröftum inn á við; bæta atvinnuvegina,byggja upp landið; í fám orðum að vinna að því, að þjóðin mætti vaxa að þroska á öllum sviðum, svo hún gæti borið fullveldisnafnið með sóma, og sá kostnaður, sem fullveldið hlýtur óhjá- kvæmilega að hafa í för með sér, yrði ekki þjóðinni þyngri byrði, en það stjórnarfyrir- komulag var, er vér áður bjuggum við. En til þess að þetta verði, dugir ekki eingöngu að efla at- vinnuvegina, auka framleiðsl- una og lyfta sölu afurðanna. Að þetta nægir ekki sýndu stríðsárin. Við þurfum ekjíi eingöngu að afla, við þurfum að læra að meta og taka tillit til lífsins á héimilunum. þau, íslensku heimilin, eru undirstaða þjóð-. lífsins íslenska, vagga þess og athvarf. Frá því fyrsta að heimilin urðu til, hefir konan verið þar sterkasti þáttui'inn. Englendingar kalla konuna höf- und heimilisins. Eg hefi heyrt góðan og vitran Islending nefna hana sálina í heimilinu. Nú býst eg við að þér hugs- ið: Með öllu þessu vafsi ykk- ar í pólitík og öð.ru, sviftið þér heimilin þessu dýrmæti, eyði- leggið þar, sem þér hyggist að vera að byggja upp. En þá vil eg svara: þegar vér snúum oss inn á við, að þjóð- inni, megum vér ekki gleyma því sem mest á ríður. Gerum við það, verða endurbæturnar ytri gylling, eða sem blóm án rótar. Stéttirnar vilja hafa sína talsmenn á þingi, og kjördæm- in sína, og það að sjálfsögðu, bæði til að bera fram áhugamál sín, og láta þinginu í té þá séi’- þekkingu, sem þeir hafa, hver á sínú sviði og í sínu héraði. Hvað þá um þahn þátt þjóð- lífsins, er mest ríður á að styðja- og halda héilbi'igðum ? Vér þöi'fnumst að þekkingar á því, sem oft er talið smátt, gæti á Alþingi. Margt af því, sem þingið fjallar um, grípur beinlínis inn í lífið á heimilun- um. pað væri því undarlegt, ef því væri ekki alment fagnað að fá konur inn á þingið. Konur, með skilningi og reynslu ein- mitt þar, sem þekking karla þrýtur. Vér viljum nú nema staðar og athuga lítið eitt framboðs- lista þann, sem kominn er fi'am af hendi kvenna, og hlotið hef- ir i-öðinaæða nafnið C-listi. I-Iann er skipaður fjórum konum. Ingibjöi'g H. Bjarnason, for- stöðukona kvennaskólans í Reykjavík, skipar þar efsta sæti. Ilún hefir, sem kunnugt er, stýrt með fi'ábærum dugn- aði og viturleik einum af allra stærstu skólurn landsins nú í 16 ái'. Má að minsta kosti segja, að ekki var það neinum heigli hent, að halda þar öllu í horfinu á stríðsárunum. For- maður landsspítalasjóðsins hef- ir hún vei'ið frá byrjun og unn- ið þar mikið og gagnlegt stai-f. Auk þess hefir frk. Ingibjörg alla tíð síðan hún kom til Reykjavíkúi', fylgst með í landsmálum, enda tekið þátt í pólitískum félagsskap um fleiri ara skeið. Inga L. Lái'usdóttii', ritstjóri „19. júní“, hefir þessi síðustu ái'in unnið allra kvenna mest að almennum i«iálum. Hún hefir setið í bæjarstjórn Reykjavík- ur, og af hendi kvenna hefir hún gegnt fjölda trúnaðar- stai-fa, t. d. fyrir landsspítala- sjóðinn, hefir verið ritai'i hans frá byrjun, fyrir Bandalag kvenna o. fl. Fui'ðar oss oft, sem þekkjum, hve miklu hún fær afkastað. pó hefir hugur hennar hneigst rnest að því, er verðá mætti smælingjum mann- félagsins til heilla. það á við um ungfrú Ingu, er nýlega var sagt um mei'ka, danska konu. Sérhvert gott og þarft mál á vissan skilning og stuðning, þar sem hún er. Halldói’a Bjarnadóttir á Ak- ureyri, fi'amkvæmdarstjóri heimilisiðnaðax’félaganna, er kunn fyrir áhuga sinn og starf í þarfir heimilisiðnaðai-félags- ins. Síðan Sambandsfélag norð- lenskra kvenna var stofnað, hefir hún verið formaður þess, og unnið þar ótrauð að ýmsum þjóðþrifamálum, t. d. að fjár- söfnun til væntanlegs bei'kla- hælis á Norðurlandi. Ungfi'ú Halldóra gefur út Ársritið Iilín, sem náð hefir mikilli út- breiðslu og unnið sér hylli al- mennings. Urn 10 ára skeið stýrði hún bai'naskóla Akui'- eyrar, og nú á hún sæti' í bæj- arstjórn Akureyrar. Theódói’a Thoi’oddsen, rit-

x

Kosningablað kvenna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kosningablað kvenna
https://timarit.is/publication/622

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.