Kosningablað kvenna - 01.06.1922, Qupperneq 3
KOSNINGABLAÐ KVENNA
gildi, að málin séu skoðuð frá
almennu, heilbrigðu sjónarmiði,
laust við ofstæki og flokka-
drátt.
Og nú er komið að annari að-
alástæðu fyrir því að sérlisti
kvenna er kominn fram. Landið
á völ á svo mörgum nýtum,
starfshæfum „konum, er vilja
starfa að heill þjóðar sinnar
bæði út á við og inn á við. Eng-
inn mun með nokkurri sann-
girni bera brigöur á að kvenna-
listinn, C-listinn, sé jafnvel
skipaður og hinir listarnir, er
fram hafa komið af karlmanna
hálfu.
Konur! Sýnið við kosningar
þessar, að þið viljið ekki láta
lítilsvirða rétt ykkar til þátt-
töku í alvarlegustu málefnum
þjóðarinnar. Látið karlmennina
sjá að þið getið verið annað og
meira en bergmál af skoðun-
um þeirra í þessum efnum.
---o----
Kosningarnar
og kostnaðurinn.
0
Margur spyr okkur konurn-
ar: Hvernig dettur ykkur í hug
að reyna að keppa við karl-
mennina í kosningabardagan-
um ? pið hafið engan kosninga-
sjóð, getið engan launað til
þess að starfa fyrir listann
ykkar og engum ekið í bíl
sjálfan kosningadaginn. Ekki
eruð þið heldur togaraeigend-
ur, kaupmenn o. s. frv., þó að
Tíminn segi það, og því. síður
hafið þið nokkurn Ólaf eða
Hendrik til að hlaupa fyrir
ykkur • landshornanna milli. —
.Tá, alt er þetta satt og rétt, en
við störfum nú samt að kosn-
ingunum og ætlum að koma að
minsta kosti einum að. Við
ætlum að láta það spyrjast, að
hægt sé að vinna að kosning-
um, án þess að það kosti marga
tugi þúsunda. Að sjálfsögðu
verður ekki hjá því komist, að
prentunar- og burðargjalds-
kostnaður verði nokkur, en við
treystum því, að hagsýni
kvenna og ósérhlífni muni hér
sem oftar koma að góðum not-
um. Konur vita, að líkt og
störfin heima fyrir þurfa elju
og ósérplægni til þess að verða
leyst sem best af hendi, líkt er
og um stærri störfin út á við.
Og ekki telur konan eftir sér
sporin á heimili sínu — fyrir
vandafólk sitt og vini. Og þar
ser.' augljóst er, að konur þær,
er C-iistann skipa, eru einmitt
konur, sem erindi eiga á þing,
að efsta konan, Ingibjörg H.
Bjarnáson, er sjálfkjörin til
þess að fylgja fram málum,
svo sem uppeldis- og meptamál-
um, heilbrigðis- og fátækramál-
um, að hún mun með athugun
og samviskusemi styðja öll
þörf og góð mál, sem uppi æru
á dagskrá — þá teljum við
Allar hyg^nar
húsmæður
nota aðeins þær vörur sem búnar eru til úr beztu efnum, og eru
þar af leiðandi ódýrastar. Reynslan hefir sýnt þeim, sem þessari
reglu fylgja, að vöruverð og gæði eru altaf bezt í
Smjörhúsími, Hafnarstr. 22.
Símí 223.
Ovðsending.
Notid
eingöngu beztu efni til
þvotta cg hreing,erninga
svo sem:
Sunlightsápu,
Brúnsápu,
Crescentsápu,
Litunarsápu „Twink“,
„Selvvask“ þvottaduftið góða,
Lux, og Y. Z. þvottaduft,
Soda,
Skurepulver E. K. F.,
Bonevox,
Fægilög,
Hnífapúlver,
Ofnsvertu (Zebra),
Skósvertu „Shinol’A“ og „Sun“
frá
Verzlun G-uðm. Olsen.
Við hina sívaxandi sblu á trúlofunarhringum, alstaðar að af
landinu, frá verslan minnF’hér, heflr/það valdið talsverðum óþæg-
indum fyrir báða aðila, auk bagalegs“dráttar, að mál hringanna
hefir stundum reynst ónákvæmt, svo að endursenda hefir orðið
hringana. Vit eg því biðja alla þá sem panta og kaupa hringa
lijá mér, að senda nákvæmt hringmál, helst mjóa pappírsreim (t.
d. úrtgömlu spili) sem lögð hefir verið stöðug yfir um fingurinn,
ofan við hnúann, þannig að endar ræmunnar yddi s’aman.
Hringarnir eru sendir með póstkröfu, ei' þess er óskað.
Með* mikilli virðingu.
Halldár Sigurðsson,
Ingólfshvoli. Reykjavík.
víst, að konur búi þannig í hag-
inn, að þær geti 8. júlí, n. k.
látið spor sín liggja á kjörstað
og kjósi allar C-listann. ■
-——o---
Karlmennirnir
og C-listinn.
Eg tala ekki við marga, en
þó hefi eg átt tal við nokkra
karlmenn, sem segja að C-
listinn eigi að sjálfsögðu sitt
atkvæði, og það af því, að
hann sé skipaður góðum þing-
mannsefnum, sem dæma megi
eftir því, hversu vel þær hafa
rækt þau störf, er þær hafa
með höndum.
En nú er karlmönnunum það
ekki öllum nóg, þegar kona á
í hlut. þeir segja þá: Etvar er
hennar stjórnmálaþroski? Hvar
er henriár rökrétta hugsun? þá
vil eg spyrja: Hver munur er
á ungri konu og ungum manni,
sem hvorugt hafa komið ná-
lægt stjórnmálum, standa þar
alveg jafnt að vígi? Sá munur,
að hún er alin upp sem kona,
hann sem karlmaður, og því
verður aldrei breytt. En hafa
þau eklci jafnmikinn rétt til að
njóta sín bæði?
Karlmanninum dettur þetta í
hug, konunni hitt. Iíefir mann-
kynið ráð á því að láta það
órannsakað og óreynt, hvers
virði það er? sem konan kann
að geta lagt til málanna, og
þau nýju mál, sem henni hljóta
að fylgja? Um þennan marg-
umtalaða stj órnmálaþroska get-
ur ekki verið að tala, meðan
konan ekki hefir nein bein af-
skifti af stjórnmálum, og af
því að hún er kona, mun hún
oftar líta á málin frá nýjum
hliðum. Og eru þau mál ekki
talin ná happadrýgstri niður-
stöðu, sem skoðuð eru frá flest-
um hliðum?
Ilvílík vannotkun á krafti er
það ekki, að útiloka allan helm-
ing mannlcynsins frá því, að
leggja sinn skerf til málanna,
og hversu mikil aukning, ef
kraftur kvenþjóðarinnar kæm-
ist þar að.
það sem við konur viljum fá
er fullur réttur, og þá um leið
óbundnar hendur til að velja
þá stöðu í lífinu, er hugur okk-
ar stefnir að. Og karlmennirnir
þurfa líka að sjá og skilja,
að slíkur réftur myndi færa
þeim blessun, bæði giftmn og
ógiftum. þá mun líka aðal-
staða konunnar í mannfélag-
inu, sem ávalt mun verða —
sem húsfreyja og móðir — sú
er gætir heill neimílisins og
elur upp börnin, þá verður hún
hafin til vegs og virðingar og
flytur þá fylstu blessun, sem
kvenréttindunum f ylgj a. En
þangað til eru mörg spor óstig-
in. Við konur þurfum ótrauð-
ar að halda saman og nota
fengin réttindi. það sem við
látum ógjört, er hörmulegt
seinlæti. En því er ver og mið-
ur að margar konur eru of
sinnulausar, þekkja ekki sinn
vitjunartíma, svo þetta gengur
svo seint. þær hinar sömu
taka í sama strenginn og karl-
mennirnir og hæðast að kven-
réttindakonum; á það orð er
fallin nokkurskonar lítilsvirð-
ing hjá- almenningi. En heill
þeim konum, sem þora að
koma fram í dagsljósið undir
því nafni; því fleiri sem ganga
undir það, því meira mun það
hefjast, og að lokum verða ó-
þarft, en aldrei gleymast.
Við getum vel sagt, að karl-
mennirnir hafi gengið eins vel
fram í auknu kvenfrelsi eins
og konur, þar sem þeir hafa
lögleitt réttindi kvenna, áður
en nokkur kona átti sæti á
þingi. Ef þeir ætluðu svo
að fara að hefta þetta gefna
frelsi, hvar er þá þeirra rök-
rétta hugsun?
Ef við sigrum við þessar
kosningar, þá sjá karlmennirn-
ir, að sá fyrirsláttur þeirra, að
ógjörningur sé að vinna
að kosningum með kon-
um, þar sem ekki sé hægt að
treysta þeim sem kjósendum,
er ekki alskostar sannur, og
einnig munu þeir, þegar tím-
a,r líða, finna, að eins gott er
að eiga konu á þingi eins og
margan karlmann. Og eftir
þann tíma þurfum við ekki að
fara sérleiðir með sérlista við
kosningar, þá mun samvinnan
verða sjálfsögð.
8. júlí næstkomandi munu
margir karlmenn kjósa C-list-
ann og aðrir styðja hann, bæði
af því, að af þingmannsefnun-
um má góðs vænta og til að
styðja málefni sem verða má
alþjóð til heilla, og ef konur
gera skyldu sína, þá kjósa þær
allar C-listann, af sömu ástæð-
um.
-----o----
Af 28000 kjósendum sem á
kjörskrá eru til landskjörs, er
fullur helmingur konur. Samt'
þykir karlmönnunum það goð-
gá að konur vilji eignast einn
fulltrúa á þingi.
I