Skutull - 26.02.1928, Side 3
SKUTULL
3
Hefir það.þegar sýnt sig nokkuð.
Því að almælb er, af þeim, sem
þar á kunna best skil, að engu
því sem nemur af áfengi, hafi
verið laumað hér á land, síðan
tollvörðurinn kom. Er það- því
eftirtektarverðara, sem áfengís-
neytendum hér hefir aldrei ver'ið
meiri þört á smyglun en einmitt
á þessum tima, þar sem Hæsti-
réttur hefir sett stíflu nokkra í
helstu áfengisuppspretturnar i bæn-
um: læknana og iyfjabúðina.
Er óskandi að stjórnin láti verða.
framhald á þassari ráðstöfun og
má ekki minna vara, en hér á
ísafirði sitji sífelt einn tollvörður,
en annar ferð.ist um áðra Vestfirði.
Áfengið og gáfu.rnar.
„Eg hefi alla æfi verið að kynn-
ast góðum mönnum og gáfuðum,
sem hafa verið að stytta sér aldur
með áfengisnautn. Eg kalla áfengið
verstu gildruna, sem lífið leggur
fyrir afburða gáfumenn, og eg
er þess íullviss, að ákvæðið um
áfengisbannið í stjórnarskránni, er
stærsta framfarasporið, sem Banda-
ríkin hafa stigið, síðan þrælahaldið
var afnumið.u
(Upton Sinclair
í „Money Writesu.)
ITrát a,l]pincri.
Þaðan er helst til tíðinda, að
frumvarpið um laun yfirsetukvenna
var felt við mikinn atkvæðamun,
við 1. umræðu, var þó að eins
farið fram á sanngjarna hækkun
launa þeirra. Er ekki að sjá, að
yfirsetukonurnar,'eigi upp á pall-
borðið hjá þjóðinni.
Frumyarp Erlings og Ingvars,
um síldareinkasölu, er komið tjl
neðri deildar og samþykt til 3.
umræðu. þar. Er svo að sjá, sem
það muni ganga ^fram óbreytt.
Frá 1. maí þ. á. skal vera einka-
sala á saltaðri og kryddaðri sild,
eða verkaðri á annan hátt til út-
flutniúgs. Stjórnina hefir B manna
stjórn á hendi, og nefnist útflutn-
ingsnefnd, 3 kosnir af sameinuðu
alþingi til þriggja ára, 1 skipaður
af verklýðssambandi Norðurlands
og 1 af Útgerðarmannafélagi Akur-
eyrar, eða víðtækari félagsskap
nyrðra. Hæður nefndin tvo fram-
kvæmdarstjóra, er hafa jöfn völd.
Hafa þeir skrifstofu á Siglúfirði.
og allar framkvæmdir’ einkasöl-
unnar.
Þingsályktun er fram komin,
um að fela stjórninni að láta koma.
tih framkvæmda lögin um stein-
olíueinkasölu, frá árinu 1917. Þá
mun og koma fram frumvarp frá
jafnaðarmönnum, um tóbakseinka-
sölu.
Fjárlögin koma til 2. umræðu
í þessari viku, litið breytt.
Til félaga „Baldurs".
Kæru félagsbræður og systur!
Sérhver félagsskapur saman-
stendur af mörgum einstaklingum,
og velferð fólagsins er undir því
■komin,'hvað einstaklingarnir vilja
hugsa og breyta gagnvart þv'i.
Verklýðsfélagið hérna á Isafirði
hefir hingað til staðið af sér alla
utanaðkomandi storma. En það
þarf.að gjöra meira.
Ekkert félag getur staðið lengi,
án þess að fá inn sín lögboðnu
ársgjöld, og hver einasti meðlimur
þe9s verður að hafa hugsun á og
góðan vilja til að standa í skilum
árlega. Ef tilfinnánlegur misbrest-
ur verður á þessu, er félaginu
haétta búin.
Þess vegna, góðu félagar, vil
eg alvarlega rnælaet til þess, að
þið heimsækið mig sem allra fyrst
og greiðið ársgjöld ykkar, bæði
gömul og qý. .
Afsláttur gefinn af gömluni
skuldum eftir samkomulagi. Sé eg
ekki heima, skiljið þið eftir nafn
ykkar. og heimilisfang, og mun
eg þá heimsækja .ykkur við tæki-
færi.
Verður hjálpin hundraðföld
h,ér, er inest á ríður,
vilji þessi greiða gjöld
glaður verkalýðq,r.
Hjálmar Hafliðason.
Tangagötu 4.
Elepliant oigarettur
(Fíllinn)
erú ljúffengar#og.kaldar,
mest rcyktu eigarettur
hér á lahdi.
S-U-N-N-A
besta ijósaolía.
37 aura kg. = 28 aura ltr.
2£s/u.p£élagið.
Sýnd vciði — ekki gefin.
Á norsku skipi, sem var á leið
til ltvíkur með salt, brotnaði stýr-
ið, og flaut það því stjórnlaust
um hafið. Sendi það skeyti í allar
áttir. Korn þá til fjöldi skipa og
vildu draga skeiðina til lands.
Var Goðafoss um tíma talinn einna
líklegastur til 'að lenda í krásinni
og innvinna sínum eigendum þar
með ca. 100000 kr., en ekkert
varð samt af því. Norskt björg-
unarskip varð hlutskarpara.
Þakklætl.
Sjúklingar í Sjúkrahúsi ísa-
fjarðar hafa beðið Skutul að færa
Leikfélagi Isafjarðar og söngflokk
Jónasar Tómassonar bestu þakkir,
Leikfélaginu fyrir það, að það
bauð öllum rólfærum sjúklingum
á „Lénharð fógeta“ s. 1. föstudag
og söngflokknum fyrir sönginn í.
Sjúkrahúsinu á sunnudaginn.
•W VERSLIÐ Vlf) KAUPFÉLAGIÐ.