Skutull

Árgangur

Skutull - 23.05.1928, Síða 2

Skutull - 23.05.1928, Síða 2
s SKUTTTLL Nokkrar smágreinar. Eftir William J. Robertson. Tveir drengir. I dag sá eg drengi þyrpast vxt úr skóla. Hvað verðnr úr þeim? Hvaða afstöðu taka þeir í málutn þjóðfélagsins? Hór fer drengur, snotur, sterk- legur og rjóður í kinnum. Hópur af öðrum drengjum flykkist. utan um haan. Hann talar hátt, slær á herðarnar á þeim næsta og virðist ánægður með lífið eins og það er. Það er auðséð, að þessi piltur sér urn sig og leyfir ekki öðrum að troða sór um tær. Þarna fer annar drengur. Fölur yfirlitum, grannvaxinn og veiklu- legur, feiminn, íhugandi og fer einn sér. Augsýnilega ekki vin- sæll af flokknum. Eg er ekki spá- maður og tel raig yfirleitt ekki færan um að skygnast inn í fram- tíðioa, en þó væri eg reiðubúinn að veðja um það, að fyrir þessum dreng liggur erfið æfi og ham- ingjusnautt lif. Fyrri drengurinn er eins og drengir gerast. Hahn á somleið með fjöldanum. Hvort sem hann fer fyrir fjöldanum eða eltir aðra, þá beyrir hann fjöldanum til. Ef til vill verður hann atvinnurek- andi, iögfræðingur, lögreglumaður eða stjórnmálamaður. „Heimsböl- iðu lætur hann ekki á sig fá. Eg get eklti hugsað mór, að hann fórni nokkru fyrir sannfæringu sína. Hann hefir ekki skapað heim- inn og ber enga ábyrgð á því, að hann er ófullkominn. Slík verður heimspeki hans. Seinni drengurinn getur orðið mikið skáld, rithöfundur, djúp- hyggjumaður, vísindamaður. Hans vegir verða ekki vegir fjöldans. Það er líklegt, að haun vilji breyta veröldinni, að hann talji það köllun sina að betra og lyfta meðbræðr- urn sínum, og þes3Ír vanþakklátu meðbræður hans eru visir til að loka hann inni í fangelsum, tím- um saman. Fyrri drengurinn sór sór og sinum vel farborða og verður sennilega miklu betri eiginmaður og faðir en seinni drengurinn. Fyrri drengurinn verður eldheitur „föðurlandsvinuru og þjóðernis- hetja. Hann trúir á það, að deilur verði best jafnaðar með styrjöld- um, krefst öflugs hers og flota og að lægri stéttunum verði haldið niðri á sínum stað. Seinni dreng- urinn verður alheimsborgari, hann berst eins og ljón fyrir róttindum framandi þjóða og mun færast í fang mörg ófær verkefni. Eða, ef hann verður afburðamaður, þá gerir hann það fært, sem áður var ófært. Vitaskuld getur spá mín reynst röng. En á þessa leið hugsaði eg, er eg horfði á drengjahópinn þyrp- ast heim úr skólanum. Drengurinn er maðurinn, sem koma skal, og ef þú hefir nokkra sálfræðilega gáfu, geturðu farið furðu nærri um, hverskonar maður verður úr hverjum dreng. En mikla ábyrgð taka þeir á sig, sem börn fæða í heiminn. Hvorn drenginn, hinn fyrri eða þann siðari, mundi eg kjósa inér að eiga? Drengsins vegna sjálfs og minnar eigingjörnu persónu kysi eg fyrri drenginn. En vegna mannkynsins kysi eg hinn síðari. Þanhig svara eg í einlægni. Ráð handa þeim, sem vilja verða hamingjusamir. Leitaðu ekki á móti straumnum. Fáir eru þess megnugir og það er miklu auðveldara að fljóta með honum. Hugsaðu ekki frumlega hugsun. Hugsaðu að eins það, sem meiri hlutinn hugsar. En ef þú getur ekki að því gert, að frumleg hugs- un sæki að þér, skaltu bæla hana niður með þér. Láttu hana ekki uppi, hvorki munnlaga nó skrif- lega. öruggast er að hugsa alls ekki neitt. Reyndu æfinlega að fylgja þeira, sem meira megnar. Gerðu þór ekki rellu út úr mismun á róttu ög röngu. Meiri hlutinn hefir altaf rótt fyrir sér, en minni hlutinn rangt. En mundu eftir því, að meiri hlutinn fer ekki nærri því altaf eftir böfðafjöldanum. Minni hluti, trygður af völdum og sér- róttindum, er oft hinn eiginlegi meiri hlnti. Reyndu, reyndu og reyndu aftur — ef þú reynir nógu oft getur þér tekist það á endanum — að gera þig tilfinningarlausan fyrir þjáningum mannkynsins og kæru- lausan urn alla rangsleitni og mis- rétti„ sem þú sérð i kringum þig. Ef samviskan rumskar annað slag- ið, geturðu gert hana rólega með þeim ómótmælanlega sannleika, að þú hefir ekki skapað heiminn og berð enga ábyrgð á því, sem fram fer. Leyfðu ekki neinni umhugsun um velferð mannkynsins að halda fyrir þér vöku. Lærðu ekkert og lestu sem allra minst. Reyndu að lifa eina og skopna. Mannkynið draslast einhvernveginn áfram, án þinnar hjálpar. Ef þú ferð að framanskráðum ráðum, verðurðu miklu sælli maður eða kona en ella. Þó að þú verðir ekki beinlínis farsæll — farsæld er hlutskifti fárra í þessum tára- dal — þá veitir þetta þór altaf mikil þægindi, og hvers virði eru hugsjónir í samanburði við þægindi. Frá bæjarstjórn. Bæjarstjórnin hólt fund 16. þ. m. Gerðist þetta þar helst tiðinda: Frestað var uppkasti frá vatns- nefnd, að reglugerð um vatns- veitu fyrir kaupstaðinn. Gerði vatnsnefnd, að M. Ój. undanskild- um, tillögur um skatt at vatni til. iðnaðarþarfa, svo og vatnsskatti af virðingarverði húsa. Uin hið fyrra voru menn mjög á einu máli, en greindi á um bið síðara. Þá lagði oddviti fyrir uppkast að samningi við Shellfólagið. Vil- mundur Jónsson hafði gert við þær nokkrar breytingartillögur; var það samþykt með þeim og hljóðar svo: „Bæjarstjórn ísafjarðarkaupatað- ar annarsvegar, og Jón S. Edwald konsull, ísafirði, fyrir hönd og í umboði hlutafólagsins Shell á ís- landi að Skildinganesi við Skerja- fjörð, hinsvegar, gera með sór bvo- feldan samning: 1. gr. Bæjaratjórn ísafjarðar veitir hlutafólaginu Shell á íslandi leyfi til þess að setja upp oliugeyma ásamt nauðsynlegum pipuleiðslum á svonefndu Axelsplani á Stakka- nesi hór í bænum, ennfremur að leggja bryggju fráplaninu og veg að því, út frá Seljalandsvegi, alt með eftirgreindum skilyrðuin: a. Mannvirki þessi verði ein- ungis notuð 1 þágu verslunar-

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.