Skutull

Volume

Skutull - 23.05.1928, Page 3

Skutull - 23.05.1928, Page 3
SKUTULL 3 KLÆÐAYERKSMIÐJAN GEFJUN, AKUREYRI, hefir alt af fyrirliggjandi nægar birgðir af allskonar dúkutn við allra hæfi. Ullareigendur fá að rninsta kosti kr. 2.00 meira fyrir kgr. af ull sinni, með því að láta vinna dúka úr henni í verksmiðjunni. Yerksmiðjan leggur alla áherslu á það, að vinna úr islensku ullinni sem fallegasta og haldbesta dúka, þótt sú starfsemi só enn ekki fullkomnuð, hefir þó stórkostlega áunnist. ◄---► íslendingum verður að lærast að nota serxi meKt isitt eigið- <——. ► Klæðaverksmiðjan hefir umboðsmenn á hverri einustu höfn kringmm landið og víðar, og gefa þeir allir upplýsingar um verkstniðjuna, . aem óskað er eftir. rekstura leyfishafa, og starf- rækt að öllu leyti í hans eigin nafni. b. Útbúnaði öllum verði hagað eftir fyrirmælum brunalaga og reglugerðar um brunamál fyrir ísafjarðarkaupstað, eins og nú eru þau, eða siðar kunna að verða, svo og eftir fyrirmæl- um brunamálanefndar. Leiði hækkun iðgjalda af húsum eða vörum, af olíugeymslu á þess- um stað, skal leyfishafi bera kostnað þann, er af slíku leiðir, svo og vera skyldur að bæta tjón það að fullu, er á ein- hvern hátt kynni að stafa af olíugeymslunni og ekki fæst bætt á annan hátt. c. Ekki má byrja á bryggjugerð- inni fyr en uppdráttur og ná- kvæm lýsing hefir legið fyrir hafnarnefud og bæjarstjórn og hún lagt samþykki sitt á. Fer bryggjugerðin síðan fram undir eftirliti hafnarnefndar. Um af- not bryggjunnar fer samkv. hafnarlögum og hafnarreglu- gerð fyrir ísafjarðarkaupstað, eins og nú eru þau eða síðar kunna að verða, og fyrirmæl- um hafnarnefndar. d. Ekki má byrja að leggja veg- inn fyr en veganefnd hefir mælt út fyrir honum, og skal vegagerð að öllu leyti hagað samkvæmt fyrirmælum vega- nefndar. Leyfishafi ber allan kostnað af vegagerðinni og annast viðhald hans, ef bæjar- stjórn krefst þess. e. Vegurinn skal vera opinn til almenningsafnota og bryggjan að svo miklu leyti sem það kemur ekki í bága við atvinnu- rekstur leyfishafa. Bænum sé heimilt að leggja, vatnsæð um lóðina og fram bryggjuna, án endurgjalda. 2. gr. Leyfi þau, er um getur í 1. gr., veitast til 50 ára, frá 1. jan þ. á. að telja, og má ekki framselja þau öðrum, nema með samþykki bæjarstjórnar. 3. gr. Yerði eigandaskifti að framan- greindum mannvirkjum, eða hætti leyfishafi verslun þar í sínu nafni áður leyfistími er útrunninn, falla leyfi þesai úr gildi og hefir bæjar- stjórn Isafj.kaupstaðar forkaupsrétt að lóð, bryggju og öðrum mann- virkjum, eftir mati 2ja dómkvaddra manna, ef hún óskar þess. 4. gr. "R.ísi mál út af samningi þessum skal það rekið fyrir gestarétti Isa- fjarðar, án tillits til varnarþings aðilja.u Oddvita gefið umboð til að undirskrifa f. h. bæjarstjórnar. Stjórn Samvinnufélagsins hafði sent bæjarstjórn erindi um ábyrgð bæjarins fyrir félagsmenn, til skipakaupa, i samræmi við sam- þykt síðasta alþingis, sem birt er á öðrum stað hér í blaðinu. Magnús Ólafsson mælti nokkur orð og lagði fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórnin samþykkir að heimila oddvita, í samráði við fjárhagsnefnd, að ganga í ábyrgð fyrir hönd kaupstaðarins, fyrir lán- um til félagsmanna í Samvinnu- fólagi Isfirðinga, til fiskiskipa- kaupa, samt. alt að 320 þúsund krónum, i samræmi við ábyrgðar- heimild þá, er síðasta alþingi veitti í þessu skyni.“ Jón Maríasson talaði mjög ein- dregið gegn ábyrgðinni. OJdviti lýsti yfir því, að hann hefði ætíð verið þannig gerður, að hann hetði haft trú á því, að útgerðarfyrirtæki, rekin á róttum grundvelli, gætu boiið sig hér. Þetta væri bjargráðaráðstöfuníyrir bæjarfélagið, og myndi hann greiða ábyrgðarheimildinni atkvæði. Yilm. Jónsson benti á, að mikill ábyrgðarhluti væri að ganga í þessa ábyrgð, en þó væri enn meiri ábyrgðarhluti að vera á móti henni. Jón Mariasson lýsti því þá yfir, að honum hefði láðst að geta þess, að hann ætlaði ekki að greiða atkvæði. Matthías gaf sömu yfir- lýsingu. Fór fram nafnakall um tillögu Magnúsar. Já sögðu: Oddviti og alþýðufulltrúarnir aliir. Jón Marías- son og Matthías greiddu eigi at- kvæði, en Jóhann Bárðarson var ekki á fundi og slapp þannig við •að tvístíga opinberlega í þessu nauðsynjamáli bæjarins. Galdra-Loftur. Leikfélag ísafjarðar sýnir nú hið stórfenglega leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, Galdra-Loft. / Har. Björnsson leikur Galdra- Loft ágætlega, Sigrún Magnús- dóttir leikur Uísu ljómandi vel, Ingibjörg Steinsdóttir leikur Steinunni alstaðar vel og víðast hvar með afbrigðum. Hin önnur hlutverk leiksins eru og sæmilega af liendi ley9t. Har- W* VERSLIÐ VIÐ KAUPFÉLAGIÐ.

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.