Skutull

Árgangur

Skutull - 06.09.1936, Blaðsíða 3

Skutull - 06.09.1936, Blaðsíða 3
SKUTULL 8 Ur stefnuskrá spönsku stjórnarinnar. Lesið hina ágætu grein Sigurðar Einarssonar í Alþýðublaðinu 25. ágúst sl.: „Um hvað er barist á Spáni? Allir, nema íhaldsritstjórar á landi hér, vita það, að hin löglega ríkisstjórn á Spáni er ekki skipuð jafnaðarmönnum og því síður komm- únistum. Þetta er frjálslynd stjórn, sem nýtur stuðnings sócialista á Spáni, þótt þeir eigi engan ráðherra í henni úr sínum hópi. Aðalvið- fangsefni stjórnarinnar er viðreisn atvinnulífsins, sórstaklega landbún- aðarins. Sóst vel, hver aðalatriðin eru í stefnu stjórnarinnar fyrir viðreisn landbúuaðarins af eftirfarandi út- drætti: 1. Vinna skal að því, að undir- byggja viðskiítalíf ríkisins út á við, með því að gera það sem ó- háðast innflutningi landbúnaðar- afurða. Jafnvel í aíburðagóðum uppskeruárum verður Spánn nú að tlytja inn hveiti og aðrar korn- vörur, grænmeti og aðrar landbún- aðarafurðir, sem með betri nýtingu' landsins mætti rækta í landinu sjálfu. í fornöld var Spánn kallaður kornforðabúr Rómaveldis. Með skipu- legum aðferðum má skera innflutn- ing landbúnaðarafurða niður um 75% (% hluta) á öifáum árum, skaffa óhemju atvinnu og spara tugi miljóna af gjaideyri. 2. Atvinnuleysi í sveitum og þorpun ber að útrýma með því, að setja verkamennina niður á jarðir sem ríkið sér þeim fyrir, og koma þannig í veg fyrir, að fjöldi verka- manna vinni nálega ólaunaða þræla- vinnu á stórgóssunum, eius og nú er, en aðrir gangi atvinnulausir. 3. í stað hinna víðáttumiklu góssa, sem lítt eru notuð og rekin með úreltum aðferðum, komi kapp- ræktun á litlum jörðum í sjálfs- ábúð eða félagsábúð. Skal því taka 1 500 000 hektara af landi stór- góssanna og skifta í þessu skyni. Þrír stærstu jarðeigendur Spánar eru hertogarnir af Medina og Alba. Þeir eiga, í sömu röð, yfir 79 000, yflr 52 000, yfir 36 000 hektara lands, eða alls um 170 000 hektara. Samkvæmt spönskum hagskýrslum eiga 5 næst-stærstu jarðeigendur á Spáni hver um sig yflr 17000, yfir 10000, yflr 8000 og yfir 7000 hektara lands. Þannig eiga 8 helztu jarðeigendur á Spáni til samans um 230 000 hekLara lands. Spán* verjar eru um 22 miljónir að tölu. 1300 fjölskyldur eiga meira en 40% af öllu ræktanlegu landi á Spáni; en næstu 20% eru í hönd- um 75000 fjölskyldna. í Andalúsiu og Estremadúra má heita, að stór- gósseigendur eigi hvern einasta íermetra af jörðinni, og þessi góss eru um aðferðir og vinnukjör rekin á beina miðaldavísu. Skip brennur. í fyrri viku kviknaði í norsku sildveiðiskipi á Siglufjarðarhöfn. Brann það að mestu á nokkrum dögum. Skipið var 580 tonn brúttó að stærð og með 1900 tunnur salt- síldar. Farmurinn ónýttist allur. Embættaveitingar. Gústaf A. Jónasson, lögreglustjóri í Reykjavík, höfir verið skipaður skrifatofustjóri í stjórnarráðinu í stað Guðmundar Sveinbjörnssonar, sem lætur af því starfl sökum heilsubrests. Jónatan Hallvarðsson hefir verið settur lögreglustjóri í Reykjavík. Þá hefir ísleifur Árnason lög- ftæðingur verið skipaður prófessor í lögum við Háskólann í stað Þórðar Eyjólfssonar, hæztaréttar- dómara. Mannslát. Á Hesteyri er nýlátinn Gísli R. Bjarnason kennari. Gísli heitinn var um fimmtugt. Hann var hægur í lund, greindur vel og hvers manns hugljúfi, er honum kynntust. Guðmundur G. Hagalín og frú, sem dvalið hafa erlendis í sumar, eru komin heirn úr för sinni. Lagði Hagalín leið sína um Danmörku, Svíþjóð og Noreg. Silfurbrúðkaup. Hjónin Valgeiður GuðuadóUir og Óli G. Halldórsson kaupmaður áttu 25 ára hjúskaparafmæli 2. þessa mánaðar. Bréfpokagerð er ný tekin til starfa í Reykjavík. Var verksmiðju þessarar mikil þörf, því sl. sumar hefir ekki verið hægt að fá nauðsynlegar umbúðir um söluvörur. Verksmiðjan hefir þegar framleitt um 4 miljónir poka, og eru afköst, hennar á dag um 300 þúsund bréfpokar. í bréfpokagerð- inni vinna nú 12 manns. Alþýðutryggingarnar. Margir hafa orð á því, að þoir þurfi að hafa lögin um Alþýðu- tryggingarnar í höndum til þess að geta kynnt sér sem rækilegast, hvaða réttindi þau veita, og hvaða skyldur þau leggi mönnum á herðar. Nú um skeið hafa lögin um Al- þýðutryggingarnar komið út neðan- máis í Aiþýðublaðinu ásamt ítar- legum útskýringum frá trygginga- stjórn ríkisins. Með því að gerast kaupandi Alþýðublaðsins, rneðan þessi yflrgripsmikli lagabálkur er að koma þar út, getur því hver mað- ur eignast hann í bókarformi ásamt góðum útskýringum við alþýðu hæfi, eftir séifræðinga í tryggingamálum. Vili Skutull vekja athygli almenn- ings á þessu, því vaila koma lögin að fullu gagni, nema misskilningi og fáfræði almennings um þessi stórkostlegu menningar- og örygg- ismál verði útrýmt sem allra fyrst. Skuldlausir Baldursfélagar ættn að sækja félagsskírteini sín sem allra íýrst. Þau eru daglega afhenl á skrifstofu Alþýðulnissins af Hannibal Valdimarssyni. Vélsmiðjan ÞÓR, ísafirði. Rennismiðja, eldsmiðja, kopar- steypa, logsuða. Framkvæmir fljótt og vel viðgerðir á mótorvélum, gufuvélum, og annastallar algengar smíðar. Matsala. Ég undirrituð byrja matsölu í Sólgöt.u 3 frá 15. september næst- komandi. í^.úgur er meðal hollustu næringarefna. — Gefið börn- um yðar, og étið sjálf, meira af rúgbrauði. Heynið rúgbrauð frá tíök- unarfélagi ísiirðinga. Bæði seydd og óseydd. Ekkert brauðgerðarhús á I Vesturlandi framleiðir nú I meira af þessari brauðteg- I und en Bökunarfélagið. Nýtízku tæki til brauðgerðar. Trúlofunarhringar. Allskonar gull og silfursmíðar ódýrasl og best hjá ÞÓRARNI. María Benediktsdóttir. Auglýsing um einkaskóla fyrir bbrn. Suukvæmt 2. gr. laga nr. 20, 1936, um breytingu á lögum um skipuu barnakennara og laun þeirra og 19. gr. laga nr. 94, 1936, um ftæðslu barna, veiða kennarar við einkaskóla að hafa kennarapróf eða kennararéttindi. Þó er fræðslumálastjórninni heim- ilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði, ef viðkorhandi skólanefnd og skólastjóri mæla eindiegið með því, euda fullnægi skólinn kröf- um heilbrigðisstjórnaiinuar um húsakynni og hollustuhættí. Samkvæmt því, er að ofan greinir, ber öllum, sem ætla að reka einkaskóla fyrir skólaskyld börn næsta vetur, að senda við- komandi skólanefnd beiðni um leyfl til þess. í leyfisbeiðni skal gerð grein fyrir kennaramenntun eða kennararéttindum. Ennfrem- ur skal fylgja vottorð skóla- eða héraðslæknis um húsakynni skólans og hollustuhætti. Skólanefnd sendir síðan leifisbeiðuina til fræð3lumálastjóra ásamt, umsögn sinni og viðkomandi skólastjóra. Forstöðumaður (kennari) einkaskola skal 1 byrjun keunslutíma senda viðkomandi skólanefnd skrá ytír þau skólaskyld börn, sem sækja skólann, og tilkynna sömu aðiijum allar breytingar jafn- óðum og þær verða. Reykjavík, 26. ágúst 1986. Fræðslumálastj órinn. Matsala Alþýðnlinssins tók til starfa 1. september. Þar geta bæjarbúar og gestir því fengið Ó D Ý R T og GOTT FÆÐI — einnig EINSTAKAR MÁL- TÍÐIR og KAFFI, ÖL og GOSDRYKKI, hvenær sem er frá kl. 8 árdegis til kl. 11 síðdegis. Reynið viðskiftin við Alþýðuhúsið, og þér munuð sjá yður hagkvæmast að halda þeim áfram. Kaupfólagiö á ísafirði. '

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.