Skutull - 06.02.1937, Side 3
SKUTULL
3
Alþýdufólk, verzliö viö Kaupfelagiö á ísafiröil
Perla inniheldur hreina sápu og súrefni.
Vér ábyrgjumst, að klór
eða skaðleg klórsam-
bönd eru ekki notuð í
Perlu-þvottaduft.
Perla þvær vel
og fer vel með þvott
og hendur vegna þess,
að aðalefnið er bezta
tegund af þvottasápu,
sem verksmiðjan sjálf
framleiðir úr fyrsta
flokks olíum.
Vélsmiðjan ÞÓR, ísafirði.
Rennismiðja, eldsmiðja, kopar-
steypa, logsuða. Framkvæmir fljótt
og vel viðgerðir á mótorvélum,
gufuvélum, og annast allar aigengar
smíðar.
I^.úgur er meðal holluslu
næringarefna. — Gefið börn-
um yðar, og étið sjálf, meira
af rúgbrauði.
Reynið rúgbrauð frá Bök-
unarfélagi ísfirðinga.
Bæði seydd og óseydd.
Ekkert brauðgerðarhús á I
Vésturlandi framleiðir nú I
meira af þessari brauðteg- I
und en Bökunarfélagið.
ísfirzku rækjurnar nið-
ursoðnu eru mesta lost-
'j ætið, sem framleitt er
á íslandi.
| Fást bjá kaupmönnum
og kaupfélögum.
ij
Nýtízku tæki til brauðgerðar.
TpúlofunarhiriiigaF.
Allskonar gull og silfursmíðar
ódýrast og best hjíL ÞÓRARNI.
Hefi verið beðinn að útvega
allan Skutul frá byrjun.
Guðm. G. Hagalín.
Þvottaduftið Perla er bezt.
Happdrætti Háskólans.
Sala fyrir 1937 er hafin. — Sama fyrirkomulag
og í fyrra.
Enginn hefir efni á að vera ekki með.
Til 15. þ. m. hafa menn rétt á að fá sín gömlu númer.
Dagatal ókeypis.
Harald Aspelund.
Það er aðeins eitt ís-
lenzkt líítryggingar-
íelag,
og það býður betri kjör en
nokkuð annað líftryggingarfélag
starfandi hér á landi.
Liftryggingardeild.
Líftryggingardeild
Sjóvátryggingarfélags íslands h.f.
Umboð á ísafirði: Verzlun J. S. Edwalds.
botnum (minnst 8 mm.) og suðan gengur
mikið ver og suðuvélarnar eyðileggjast af
ofhitun«. (Nik. Fr.: Raftækjasýningin í Oslo.)
Upphitun suðuplötunnar.
Talsverður hluti þeirrar raforku, sem þarf
til þess að koma suðu upp í pottinum, fer
í það eitt að bita sjálfa plötuna, sem er
þykk og þurftarfrek. Er af þessu auðsætt,
að mest bagsýni er í því fólgin, að nota
suðuplötuna livað eftir annað, án þess að
hún kólni á milli. Húsmæðurnar ættu því
ætíð — þegar tök eru á því — að haga
suðu og hitun matar og vatns þannig, að
eitt sé hitað eða soðið á eftir öðru, á sömu
plötu. Upphitun siiðuplölunnar er dýr; þess
vegna á að hita hana eins sjaldan og unt
er að komasl af með.
Suðan.
Ef maturinn þarfnast langrar suðu, ber
manni ávalt að draga úr rafstraumnum
átrax. og suðan kemur upp, og láta eins
lítið streyma og komist verður af með, l.d.
!/4, eða jafnvel aðeins lJ6 af fullu orku-
streymi. Fullur rafstraumur myndi aðeins
auka á gufumyndun að þarllausu, án þess
þó að flýta suðu matarins um svo mikið
sem eina sekúndu.
Lág- og há-watt-tæki.
Menn gera greinarmun á svonefndum
lág- og há-watt-tækjum. Tæki, sem eru
minni en 1500 watt, eru að jafnaði
talin vera lágwalt-lœki; önnui', sem eru
1500 watt, eða þar yfir, eru þá köll-
uð háwatt-lœki. Háwatt-suðuplöturnar eyða
miklu meiri raforku í hlutfalli við hitaflöt
sinn en lágwatt-plöturnar. Af þessu leiðir,
að háwatt-platan verður allheit, eða ca.
200° C., en lágwatt-platan aðeins ca. 150° C.
Matur eða vatn, sem á að sjóða, kemst því
fyr í suðuhita (100° C) á háwatt-plötu.
Önnur afleiðing þessa er og sú, að séu
notaðar stórar háwall-plötur, safnast fyrir
í þeim miklu meiri hiti en í lágwatt-plöt-
um, eða litlum háwatt-plötum. Upphitun
stóru háwatt-platanna er því dýr, og þessi
mikli hiti, sem safnast fyrir í þeim, fer for-
görðum, nema hægt sé að nota hann á
eftir, t. d. til upphitunar á vatni.
Með nákvæmum samanburði á notagildi
þessara suðuplötutegunda, stórra og lítilla,
sézt, að noti maður t. d. slóra háwall-plölu,
sparast nokkrar mínútur við suðuna, en
rafmagnseyðslan verður miklu meiri en
þegar noluð er o'rkuminni plala. Munur
þessi kemur þó skýrast fram á rafmagns-
x'eikningnum. Ættu menn því ekki að nota
oi'kufi'ekari eða stæri'i plötur en nauðsyn
krefui'.
Hraðsuðutæki.
Á allra síðustu árum hafa komið á mark-
aðinn svonefndar ))hraðsuðuplötur«. Með
þeim má koma upp suðu í pottinum á ca.
"V4 þess tíma, sem venjulegar plötur þurfa.
Með 18 crn. breiðri hraðsuðuplötu mundu
þannig sparast ca. 4—5 mínútur. Hinsveg-
ar eyða þessar plötur ca. 7—15% meiri
orku til upphitunarinnar, og við framhalds-
hitun eyða þær jafn mikilli orku og venju-
legar plötur. Þessar hraðsuðuplötur geta
verið þægilegar stöku sinnum, t. d. þegar
seint er risið úr rekkju og allt er komið í
ótíma, eða þegar gest ber óvænt að garði
og hafa verður hraðann á. Annars er eigi
ráðlegt að gera mikið að notkun þeirra.
Það mun hefna sín um næstu mánaðamót,
þegar rafmagnsreikningurinn kemurl
(Framhald.)