Skutull - 06.02.1937, Qupperneq 4
4
S K U T U L L
Stækkun
síldarverksmiðjanna.
(Framhald).
um er varla hægt að koma fyrir
viö síldarverksmiðjurnar á Siglu-
flrði, vegna þess hve oft er óró-
legt í sjóinn við bryggjurnar.
Hinsvegar hefir núverandi stjórn
verksmiðjanna fullan skilning á,
hversu nauðsynlegt er að búa
betur í haginn fyrir sjómenn og
mikinn hug á að koma á hið
allra fyrsta verulegum umbótum
við uppskipun á síldinni, og hefir
falið framkvæmdastjóra að athuga
og gera tillögur um þær, einkum
í sambandi við hina fyrirhuguðu
þróarbyggingu. Sennilega mun það,
hve vélaafl verksmiðjanna er tak-
markað, vera nokkur þrándur í
götu þess, að framkvæmdir í
þessu efni geti orðið eins miklar
og skjótar og nauðsynlegt er, en
þetta mál er í rannsókn og ekki
unnt að s^gja neitt um það með
ákveðinni vissu.
Svo sem sjá má af framan-
rituðu, fara flestar tillögur þær,
er stjórn síldarverksmiðjanna þeg-
ar heflr gert til ríkisstjórnarinnar,
á sl. hausti, saman við þær kröf-
ur, er sjómenn almennt gera um
umbætur á verksmiðjunum, og
væri vel, ef fó fæst til að koma
þeim í framkvæmd sem allra fyrst,
en á því veltur raunar að öllu
leyti.
Formaður verksmiðjustjórnar er
nú á förum hóðan til Alþingis og
mun, ásamt meðstjórnendum sín-
um og framkvæmdastjóra verk-
smiðjanna, halda áfram að vinna
að framkvæmd þessara mála að
svo miklu leyti, sem undirbún-
ingur til framkvæmda ekki er
þegar haflnn áður.
Að þessu sinni lítur óvenjuvel
út með verð á bræðslusíld, þar
eð stjórn síldarverksmiðja ríkisins
heflr selt 5000—6000 smálestir
af síldarlýsi fyrirfram fyrir 21
sterl.pd. smálestina, en meðal-
verð á síldarlýsi í fyrra var 16.15
st.p. Öll lýsisframleiðsla síldarverk-
smiðjanna á Raufarhöfn og Siglu-
firði er venjulega áætluð um
7000 smálestir. Flestar síldarverk-
smiðjur einstaklinga hafa einnig
selt lýsi fyrir þetta verð og ein
verksmiðja nokkru hærra. Ætti
því bræðslusíldarverð að geta orð-
ið talsvert hærra næsta sumar,
en sl. sumar, þrátt fyrir mikla
hækkun á ýmsu, er verksmiðj-
urnar þurfa að nota til fram-
leiðslunnar, svo sem bæði kolum
og salti.
Dagatöl
seljast nú með niðursettu
verði.
Jónas Tómasson.
Bæjarstjórn
leysir vandræði
landróðrabátanna.
Hvað er um h. f. Huginn?
Eitt hundrað og tuttugu sjó-
menn fara nú í atvinnu fyrir
atbeina bæjarstjórnar.
Fiskurinn kemur í bæinn til
verkunar.
Svo sem skýrt var frá í síðasta
Skutli hafði bæjarstjórn gefið
hinum stærri skipum kost á svo
nflegri aðstoð, sem óskað hafði
verið eftir. Þá var það jafnframt
tryggt með skilyrðum bæjar-
stjórnar, að fiskurinn kem-
ur allur hingað í bæinn til verk-
unar. Eftir var að leysa vandræði
landróðrabátanna, en það var gert
á síðasta bæjarstjórnarfundi, svo
sem hér segir:
Bærinn ábyrgist helming trygg-
inga, eða 75 krónur fyrir hvern
skipverja. Bátunum sé haldið út
héðan úr bænum á vetrar- og
vorvertið, og leggja þeir upp allan
afla sinn hér til verkunar. Veiðist
ekki fyrir tryggingunni fái bærinn,
sér framseldar þær kröfur skip-
verja, er hann leysir út, enda
ganga þær þá yfir á næstu vertíð.
Hefir bæjarstjórn þannig að
öllu leyti uppfyllt kröfur sjó-
mannafélags Isfirðinga.
Nú er verið að búa skip Sam-
vinnufélagsins út á þorskveiðar,
og landróðrabátamir byrja veiðar,
þegar er gefur á sjó. Fá þarna
120 sjómenn atviunu fyrir atbeina
bæjarstjórnar, og jafnframt er
tryggt, að allt, sem aflast, kemur
hingað í bæinn til verkunar.
Um hf. Huginn er ekki vitað
ennþá. Aðspurður á bæjarstjórn-
arfundi sagði Arngrímur á mið-
vikudaginn er var, að ákvörðun
myndi verða tekin þegar Jóhann
Eyfirðingur kæmi heim. Nú er
Jóhann kominn, og bíða margir
sjómenn með óþreyju eftir því að
vita, hvort stjórn hf. Huginn
ætlar sér að nota hið ágæta til-
boð bæjarstjórnar um sérstakt
heimflutningsgjald, 2 V2 eyri á kg.
fyrir allan fisk, sem skipin flytja
heim undan Jökli eða úr Faxaflóa,
eða hvort félagið ætlar að lóta
Huginn I. og Huginn HI. liggja
hór í vetur.
Kaupdeila við h.f. Huyinn.
Vélstjórafólag ísfirðinga hefir
samning við útgerðarmenn um
kaup og kjör vólstjóra. Huginn I.,
sem menn annars hefðu vonast
eftir, að yrði gerður út á þorsk-
veiðar, var leigður í flutninga,
eftir að tilboðið um heimflutnings-
gjaldið kom frá bæjarstjórn. Samn-
ingur vélstjórafólagsins um kaup
á flutningum er kr. 15.00 á dag
eða mánaðarkaup kr. 360.00 á
mánuði og frítt fæði, en á Hug-
inn I. var vélstjórinn skrásettur
fyrir 5 af hundraði. Sá vélstjóri
úr vélstjórafélaginu, sem gerðist
taxtabrjótur, heitir Arinbjörn
Clausen. Vélstjóraíélag Isfirðinga
mun hafa leitað aðstoðar Alþýðu-
sambandsins, til þess að koma í
veg fyrir þetta samningsrof og
láta setja verkbann á skipið,
verði þetta ekki leiðrótt.
Mjöl breitt á þvottasnúrur.
Jón Fannberg Ieigir Jóhannesi
Hjálmarssyni Huginn I. í flutn-
inga, svo hann só „löglega" af-
sakaður að láta hann ekki fara á
vetrar- og vor-vertíð.
Nasreddin sagðist ekki geta
lánað nágrannakonu sinni þvotta-
snúrur af þvi hann hefði breitt
mjöl á þær.
Að gefnu tilefni
skal þess getið, að Guðmund-
ur Hagalín er ekki meðlimur
í Sjómannafélagi ísfirðinga.
Skattaframtölum
verður að skila í síðasta
lagi
miðvikudaginn 10. þ. m.
Skýrslum er veitt móttaka
á skrifstofu h. f. Fiskimjöl
ad eins kl.1—2
virka daga.
ísafirði, 5. febrúar 1937.
Skattanefndin.
Orgel
— dálítið notað — hefi ég til
sölu.
Jónas Tómasson.
Matsala Alþýðuhúss-
ins selur einstakar máltíðir
aðeins á eina krónu, og afgreið-
ir þær með stuttum fyrirvara.
ísfirðingar!
Búið ykkur undir að nota ódýra rafmagnið!
Við tökum að okkur rafmagnslagnir i húsum. Höf-
um 5 vel færum mönnum á að skipa og munum gera
okkur far um, að lagnirnar verði fljótt og vel af
hendi leystar.
Þeir, sem vilja notfæra sér þjónustu okkar í þessu
efni, eru beðnir að gefa sig fram á skrifstofu okkar
sem fyrst. — Pantanir verða afgreiddar í sömu röð og
þær koma inn.
Pantið suðuvélar, suðuplötur og ofna sem
fyrst hjá okkur.
Kaupfélagið.
Atvinnuleysisskýrslur
Samkvæmt lögum um atvinnuleysisskýrslur fer fram skrán-
ing atvinnulausra sjómanna, verkamanna, verkakvenna, iðnaðar-
manna- og -kvenna á Vinnumiðlunarskrifstofu bæjarins n. k.
mánudag, þriðjudag og miðvikudag, 8., 9. og 10. febr., kl. 10—3
alla dagana.
Þeir, sem láta skrásetja sig, eru beðnir að vera viðbúnir
að gefa nákvæmar upplýsingar um heimilisástæður sínar, eign-
ir og skuldir, atvinnudaga og tekjur á síðasta ársfjórðungi, hve
marga daga þeir hafi verið atvinnulausir á síðasta ársíjórðungi
vegna sjúkdóms, hvar þeir hafi haft vinnu, hvenær þeir hafi
hætt vinnu, og af hvaða ástæðum, hvenær þeir hafi flutt til bæj-
arins og hvaðan.
Ennfremur verður spurt um aldur, hjúskaparstétt, ómaga-
fjölda, styrki, opinber gjöld, húsaleigu og um það, í hvaða
verkalýðsfélagi menn séu.
Loks verður spurt um tekjur manna af eignum mánaðar-
lega og um tekjur konu og barna.
Bæjarstjórinn á ísafirði, 4. febrúar 1936.
Jens Hólmgeirsson.
Prentstofan íarún.