Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 10.02.1940, Qupperneq 3

Skutull - 10.02.1940, Qupperneq 3
SKUTULL 17 Alþýðufólk, verzlið við Kaupfélagið á Ísaíirði. í kringum hann er, hugsar um það og leitast við að móta það af persónuleika sínum. Um þetta síð» asta ber stíllinn og blærinn yftr bókinni gleggst vitni. Þar köma mjög glögglega fram séreinkenni höfundarins, sem mér virðast vera: Hispursleysi, er sýnir, að höfund- urinn gerir sér fyllilega grein fyrir nöturleik hins ytri veruleika — og sársaukablandin viðkvæmni og al- vara þess manns, sem þyrstir eftir að skynja hinn innri veruleika, sjá þar tilgang, fegurð og frjóleik, er geti einnig borið ávöxt hið ytra. En upp af slíkum rótum er yfir- leitt sprottið mest af hinum já- kvæða skáldskap allra tíma. Svalt og bjart. Jakob Thorarensen lagði ein- göngu fyrir sig Ijóðagorð framan af æftnni. Þótti hann á því sviði skipi virðulegan sess. Eu nú á siðari árum heflr Jakob skrifað margt af smásögum, og heflr oft tekizt mætavel. Siðasta bók hans heitir Svalt og bjart. Það eru nokkrar smásögur. Eru þær mis- jafnar að efni og gerð og einnig að gæðum. En yflr þeim er yfir- leitt eitthvað svalt og bjait, eitt- hvað hreint og blátt áfram. Það er gengið að verkefnunum með opin augu fyrir hinum blákalda veruleika, og hvort sem höfund- urinn bregður fyrir sig spotti og glensi, eða þungri, siðferðilegri al- vöru,*er með verkefnin farið af ör- yggi og festu. Og sumar sögurnar eru bráðskemmtilegar. Förumenn. Elinborg Lárusdóttir heflr nú sent frá sér sína fjórðu bók, og áreiðanlega þá merkustu. Pyrsta bók hennar voru látlausar en til- þrifalitlar smásögur. Önnnr bókin, Anna í Heiðarkoti, gaf ekki góðar vonir, en sú þriðja, smásögurnar Gróður, sýndi mikla framför. Og Förmenn bera hiklaust af fyrri sögum höfundarins. Þetta er fyrsta bindið af þremur — og heitir það Dimmuborgir. Efnið er, eins og nafn bókarinnar ber með sér, líf hinna íslenzku förumanna — eða flakkara, sem voru hór áður fyrrum fjölda margir og fóru víða um land. Til förumennsku þeirra lágu ýmsar og misjaínar orsakir, en allar stóðu þær að meira eða minna leyti í sambandi við það umkomu- leysi, sem hór áður á árum lá fyrir ílestum, sem svo bjátaði á fyrir, að þeir urðu ekki sjálfum sór nógir, andlega eða líkamlega. Þessir menn voru sumir land- plágur, en aðrir voru til skemmt- unar, enn aðrir hreinir og beinir fræðarar fólksins — og mjög margir þeirra boðberar milli fjar- lægra hóraða. Saga förumannanna er mjög merkilegur þáttur í sögu íslenzkrar menningar. Elinborgu Lárusdóttur heflr þeg- ar tekizt í þessu bindi hinnar stóru skáldsögu sinnar að draga upp nokkrar mjög skýrar myndir af förumönnum 19. aldarinnar, lífskjörum þeirra og sálarlífl. Hún hefir líka brugðið þarna upp lif- andi myndum af öðru fólki, fátæku og ríku, af þjóðtrú, af atvinnu- háttum, siðum og menningu. Til oru þær lýsingar í bókinni, sem verða lesandanum ógleyínanlegar. Málið á bókinni er yfirleitt ágætt, og stíllinn viðíeldinn og fellur vel að ' efninu, þótt því kunni raunar að bregða íyrir á köflum, að í hann eins og skorti fjör og blæ- brigði. Verðúr fróðlegt að sjá framhald þessa skáldverks. (Framhald.) Jens Hólmgeirsson bæjarstjóri lætur af starfi. Jens Hólmgeirsson bæjarstióri ílytur með fjölskyldu sina til Reykjavikur með nBergenhus“ i komandi viku og lætur þá auð- vitað um leið af störfum som bæjarstjóri á ísafirði. Eins og allir bæjarbúar vita, var Jens Hólmgeirsson forstjóri kúabús bæjarins frá stofnun þess og þangað til hann varð bæjar- stjóri eftir bæjarstjórnarkosning- arnar i ársbyrjun 1935. Ýmsu var um það spáð, hvernig það mundi gefast, að gera bú- stjórann að bæjarstjóra, en þéir, sem þekktu Jens persónulega og af störfum hans við búið, þóttust þess fullvissir, að hann mundi rækja starf sitt sem bæj- arstjóri af stakri samvizkusemi. Og reyndin hefir lika orðið sú. Jens hefir lagt við starfið geysi- mikla rækt, verið sívinnandi að því, er það hefir varðað — og stundum mun vinnudagur hans hafa orðið nokkuð langur. Hefir hann kappkostað reglusemi og áreiðanleik um allt það, er bæ- inn hefir skipt. Það er óhætt að segja, að vart hafi komið erfiðari ár yfir ísafjörð en þau, sem Jens hefir veitt málefnum bæjarins forstöðu. Aflaleysi og almenn kreppa hafa hjálpazt að um að gera allt sem erfiðast. Ýmiskonar löggjöf, sem raunar hefir ýmist verið til nauð- synlegrar lýðtryggingar eða ver- ið sett vegna vandkvæða sveita- fólaganna í landinu, hefir aukið útgjöld bæjarins á þessum tíma — ofan á þann aukakostnað við fátækraframfæri og atvinnubætur, sem verið hefir samfara aflabresti og almennri viðskiptakreppu. Og oft hefir Jens áreiðanlega virzt svo svart framundan, að ekki væri neinar likur til, að allt flyti. En hann hefir ekki gefizt upp, og þrátt fyrir allt unnið sór traust þeirra, sem átt hafa skuldaskipti við bæinn. Jens hefir haft og liefir mjög glöggan skilning á þvi, að hið eina, sem gæti verulega bætt úr ástandinu, væri aukin arðbær at- vinna. Og öll viðleiini í slíka átt hefir átt i honum öruggan talsmann og málsvara. Hann hefir stutt að útgerðarframkvæmdum af heilum hug, og hann hefir reynt að auka áhuga fyrir auk- inni lifsbjörg úr njoldinni hór i kringum bæinn. Og nú hefir hann i huga mjög víðtækar broytingar á atvinnuháttum og atvinnumöguleikum kaupstaða og kauptúna og mun í hinu nýja starfi sinu leggja mikla áherzlu á, að fá þvi þokað áleiðis, som honurn leikur mestur hugur á. Byrjunin er ákvarðanir bæjar- stjórnar ísafjarðar um skipulagn- ingu og hagnýtingu landsins, sem næst er bænum. Jens mun jafnan verða ísa- fjarðarkaupstað hfiðhollur til ráðuneytis og fyrirgreiðslu, þá er hann hefir tekið við starfi sem formaður bjargráðanefndar. Og vel er það, að hór mun hann hafa fengið i bæjarstjórastörfun- um þann undirbúning og þá reynslu, sem mun geta orðið honum happadrjúg á hinu nýja starfssviði. Nánustu samstarfsmenn hans um bæjarmál ísafjarðar og Al- þýðuflokkurinn á ísafirði óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og vænta þess, að starf hans verði framvegis heilla- og notadrjúg. Alþýðufiokksfélag ísafjarðar hélt aðalfund sinn í gærkveldi. í stjórn voru kosnir: formaður Hannibal Valdimars- son, varaformaður Helgi Hann- esson, ritari Ágúst Elíasson, gjaldkeri Gunnar Bjarnason og meðstjórnandi Guðmundur Gisla- son Hagalín. Endurskoðendur vorukosnir: Þorsteinn Sveinsson og Ólafur Magnússon. Bökunarfélag ísfirðinga. Beztar brauðvörur. Ibúd til leigu. Ritstj. vísar á. Fyrir skömtnu hélt félagið mjög fjölmennan og fjörugan skemmtifund. Vesturland er nú allt af að dásama verka- lýðsvináttu Sjálfstæðisflokksins. bessi vinátta verður bráðlega gerð að umræðuefni hér í blað- inu i allitarlegu máli. Þá er Vesturland upp með sér af sigri sjálfstæðismanna i verkalýðsfé- laginu Hlif i Hafnarfirði. Sá sigur er unnin fyrir samvinnu sjálf- stæðismanna við kommúnista. sjálfstæðismenn kusu kommún- istana í fyrra og létu þá hjálpa sér til að reka úr Hlif fjölda af Alþýðuflokksmönnum. Siðan kusu sjálfstæðismenn út af fyrir sig að þessu sinni og sigruðu. Rétt á eftir greiddu þeir svo saineiginlega atkvæði á móti þvi, sjálfstæðismenn og kommúnist- ar, að Hlíf segði sig úr komm- únistasambandinu, Una sjálf- stæðismenn sér vel i sænginni hjá kommum f Hafnarfirði — og er vonlegt, að þeim svíði það hér, að hafa ekki gefizt kostur á að nota Guðmund Bjarnason til að koma verkalýðsfélaginu Baldri f samskonar hendur og Hlif er nú komin. Annars er framkoma þessara flokka í Hafn- arfirði svo skýrt hættumerki fyrir verkalýðinn í landinu, að hann ætti ekki að þurfa að fara villur vegar: Kommúnistar hafa yfir* leitt verið og eru hjálparkokkar íhaldsins við að koma verka- lýðshreyfingunni í landinu í þess hendur. Undir minningargrein um isfirzkao togaraskipstjóra í Grimsby i siðasta blaði átti að standa Kristján Jónsson frá Garð- stöðum. Baldursfélagar I Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Baldur verður haldinn mánud. 12. febr. 1940 kl. 8 síðdegis i Alþýðuhúsinu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Uppsögn núgildandi kaupgjaldssamninga. 3. Önnur mál. Sýnið félagsskírteinið við innganginn. Stjórnin.

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.