Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 09.08.1941, Qupperneq 4

Skutull - 09.08.1941, Qupperneq 4
118 SKtlT ÚLL Ófpidupinn. RÚBsar hafa búiö sig undir ófriö í 20 ár. Þeir hafa nóg hrá- oíni af flestu tæi, og þeir eiga á a8 skipa tugmilljóuum yerkamanna á vinnualdri. Þeir hafa notað sér brezka, sænska, ameríska og þýzka sórfræöinga á fjölmörgum sviðum. þaö var og vitað, að þeir áttu mikinn her og mikiö af hergögn- um. Hvernig herinn og hergögnin mundu duga, varð minna um vitað. Þó var það kunnugt, að ýmislegt það, sem Þjóðverjum hefir reynzt bezt. í hertækni, er ættað frá Rússum, svo sem notkun fallhlífahermanna aö baki hersveit- um óvinanna — og sjálí fleyga- sóknin, sem Rússum hefir reynzt allskæð. Það er þegar séð, að leiftur- stríð Þjóðverja hefir að nokkru mislánast, en að hve miklu leyti — því er ekki gott aö átta sig á, svo ósamhljóða sem fregnirnar eru. Þó er það eftirtakanlegt, að Þjóðverjar segja sinn daginn hvað. Þeir sögðust hafa tekið Kænu- garöa, en siðar hermdu svo fróttir frá þeim, að hersveitir þeirra hefðu aldrei komizt nær borginni en svo, að þangað hefðu verið ó» farnir 20 km. Þeir kváðu sig hafa Lekið Smólensk, en svo kom önnur fregn, er sagði, að þeir væru að þvi komnir að taka borgina. Þeir kváðust hafa gersigrað loftflota Rússa, en seinna skýrðu þeir frá mjög hatrömmum orrustum við hinn sama loftflota. Þeir kváðu sig hafa sigrað meginher Rússa, svo að nú væri öll veruleg mót- staða brotin á bak aftur, en siðar ijáðu þeir aftur og aftur, að Rússar verðust af mestu grimmd og gerðu jafnvel gagnáhlaup. Þeir sögðust mundu sigra Rússa að fullu á tiu vikum, en nýlega gerði einn al fyrirlesurum þeirra ráð fyrir sigri næsta vor. Þegar við svo athugum fregnirnar þýzku, sem við getum með fullri vissu vitað um, hvort sannar eru, þá verður fréttaburður Þjóðverja enn tor- tryggilegri. Þeir sögðu í fyrra, að fslendingar verðust Bretum af mikilli hreysti uppi i fjöllunum. Þeir sögðu frá því í vetur, að þeir hefðu varpað sprengjum á vigi Breta utan við Reykjavík. Þeir tjáðu veröldinni það um daginn, að Hermann Jónasson hefði átt viðtal við stórbiað i Bandarikjun- um og lýst þar yflr mótmælum við hernám Bandarikjamanna. Þarna eru nokkur dæmi, og hvað sem öðru líður, eiga Þjóöverjar áreiðanlega við mikla erfiðleika að striða í Rússlandi — og fari nú svo, að þeir sigri ekki Rússa áður en vetur gengur í garð, þá á Hitler og lið hans — og raunar allt Þýzkaland og hernumdu löndin — miklar þrengingar fyrir hönd- um. Og þegar er það auðséð, að Þjóðverjar hafa ekkert gagn aí rússneskri íramleiðslu á þessu án — heldur standa ver aö vigi en ef þeir hefðu ekki farið i styrj- öld gegn Rússum. Þeir eyða dýr- mætum hernaöarverðmætum og fara nú algerlega á mis við öll þau verömætu hráefni, sem þeir hefðu fengið frá Rússlandi, ef þeir hefðu ekki ráðist á Rússa. Austur í Asíu hafa Japanir haf- izt. handa. Þeir hafa hernumið Indókína. Þeir vofa yfir Malakka- skaganum með hinni miklu flota- höfn Breta í Singapore. Þeir ógna Síam, Rússum í Siberiu, Banda- rikjamönnum á Filipseyjum, Holl- lendingum í nýlendum þeirra — og jafnvel Nýsjálendingum og ríkjasambandinu á meginlandi Ástralíu. Hverri stjórnmálalegri og hernaðarlegri hreyflngu Japana er fylgt af eftirvæntingu um heim allan — og má búast við, að til styrjaldar dragi á næstunni — milli Japana annars vegar og Síams- búa, Breta, Rússa, Bandarikja* manna, Hollendinga og Ástralíu- búa hins vegar — að Kínverjum ógleymdum, sem Japanir hafa átt í styrjöld við árum saman. Ófriðurinn er að breiðast út. Hann er að verða heimsstyrjöld í enn þá stærri stil en styrjöldin 1914—1918. Og baráttan stendur fyrst og fremst milli iýðræðis og einræðis, þó að Rússar hafi raunar að flestu leyti á sér snið einræö- isþjóðanna. En búast má við þvi, að afstaða Rússa kunni að breyt- ast nokkuð við þessa styrjöld. Þeir róðust aftan að Pólverjum, en hafa nú gert viÖ þá griðasátt- mála, þar sem þeir lýsa þvi yfir, að þeir felli úr gildi sáttmála sinn og Þjóðverja um skiptingu P61» lands. Þeir viðurkenndu fyrstir allra uppreistarstjórnina í írak fil þess að þóknast Þjóðverjum. Nú hafa Rússar gert formlegt banda- lag við Brefa. Rússar neituðu stjórn frjálsra Tókka, Belga, Hol- lendinga, Norðmanna o. s. frv. um viðurkenningu — til þóknunar Þjóðverjum. Nú hafa Rússar LekiÖ upp samvinnu við allar þessar sfjórnir. Það er hætt við, að ýmis- lega geti lika slegið í baksegl bjá þeim um afstöðuna til fyrirkomu- lagsins innanlands. Og vel er, ef upp úr blóðbaðinu risi samstarf, sem væri grund- vallað á skynsemi i skipulags- viðskipla- og fjárhagsmálum, hvað sem 'lfður öllum vonum um hug- sjónatrúskap og kærleikssamfélag. Björgunarskútan Sæbjörg kom hingað í morgun meö lik Ingvars heitins Vigfússonar. Jarðarförin fer fram mánud. 11. ágúst og hefst kl. 2. e. h. Nýjar bækur. Nýútkomnar eru þessar bækur: Arfur, skáldsaga eftir frú Ragn- heiði Jónsdóttur, Oddur Oddsson: Sagnir og þjóöhættir — og Sagna- þættir úr Húnaþingi eftir Theódór Arnbjörnsson. Japðapföp Ingvars Vigfússonar fer fram mánudaginn 11. ágúst, og hefst kl, 2 e. h., frá heimili Jónasar Tómassonar. Hluthafar í íslmsfélagi ísfiröiiiga h. f.9 sem ekki hafa tekið arð af hlutabréfum sinum, geta fengið greiddan arð fyrir árið 1940 á skrifstofu félagsins, Mánagötu 1. — Jafnframt komi þeir með hlutabréfin, svo þau verði skráð í bókum félagsins. fsafirði, 8. ágúst 1941. ísliúsfélag íslirdinga H. f. Jón A. Jónsson. SHdveiðin. Aíli Samvinnulelagsbátanna var í fyrradag eins og hér segir: Ásbjörn 3000 mál i bræðslu, 1230 fn. í íshús. Auðbjörn 4000 mál í bræðslu, 300 tn. í salt. Gunubjörn 4000 mál í bræðslu, Sæbjörn 1600 mál í bræðelu, 2239 tn. i íshús. Valbjörn 5600 mal 1 biæðslu, 410 tn. í íshús. Vébjörn 3500 mál 1 biæðslu. 60 tn. í salt. Brezku samningarnir. Qerðir hafa nú verið viöskipta- samningar við Breta. Það má heita, að verðið á saltfiski og á nýjum upsa sé hið eina góða f samningum þessum. Nýr fiskur, fluttur út i is, lækkar yfirieitt stórum, og verðið á hraðfrystum fiski er allt of iágt. Þá er sama að segja um niðursoðinn fisk. Loks er það ákvæði i samning- unum, að isienzk skip mega ekki kaupa fisk til útflutnings nema á Norðaustur- og Austurlandi. Seint er að iðrast eftir dauð- ann, en ef lágmarksverð það, sem Finnur Jónsson lagði tii á sinum tíma að sett yrði á nýjan Bió Alþýðuhússins sýnir: Lsugardag og sunnudag kl. 9: í þjónustu Englands (The Sun never Sets) Spennandi og vel leikin amerísk mynd frá Universal Film. Aðalhlutverkin leika: Douglas Fairbanks, Jr. Basil Rathbone. Barbara O’Neil. Virginia Field. Engin sýning sunnud. kl. 5. fisk, hefði öðlazt náð fyrir aug- um annara ráðamanna um fisk- útflutning, þá hefði okkur aldrei verið boðið upp á jafnlágt fisk- verð og það er nú orðið. En aðeins var litið á hagsmuni togaraeig- enda.sem raunar munaði það sára- litlu, hvort fiskverðið var ákveð- ið svo hátt sem Finuur vildi — eða eins og raun varð á.

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.